Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 16
16 Helgarblað 9. júní 2017fréttir - erlent N ú um stundir eru fimmtíu ár liðin síðan ein frægasta plata poppsögunnar kom út. Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band kom út 26.  maí 1967 og er platan af mörg- um talin hafa valdið straumhvörfum í sögu popptónlistar. Óhætt er að segja að umslag plötunnar, albúmið, hafi sömuleiðis valdið straumhvörfum. Að mörgu leyti voru Bítlarnir brautryðjendur í þróun plötuumslaga, sem með tíð og tíma urðu flókin listaverk og hluti af plötunni í stað þess að vera svip- laus hulstur utan um innihaldið. Með umslagi Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band var bryddað upp á nokkrum nýjungum sem síðar urðu algengar. Á meðal þess sem taldist til nýlunda var að lagatextana var að finna á bakhlið umslagsins. Braut blað að mörgu leyti Til að byrja með er vert að minnast á þær nýjungar sem umslagið og inni- hald þess bryddaði upp á. Umslagið var með glansáferð sem hafði ekki tíðkast fyrr. Það var tvö- falt þannig að hægt var að opna það og þar blasti við mynd af fjórmenningunum. Ástæðan fyrir því var sú að Bítlarnir hugðust hafa plötuna tvöfalda, eins og sagt er, en það gekk ekki eftir. Á baki umslagsins gat að líta texta allra laga plötunnar og var þar um enn eina nýjung að ræða. Innra umslag plötunnar var í fyrstu útgáfu hennar ekki hvítt eins og algengt var á þeim tíma heldur var það með ofskynj- unarskotnu mynstri sem hollenskir listamenn, The Fool, hönnuðu. Þess má geta að upphaflega hugðust Bítl- arnir láta The Fool hanna umslagið, en horfið var frá þeirri hugmynd. „Brúnir pappírspokar fyrir Sgt. Pepper“ Síðast en ekki síst var að finna með plötunni útklippimyndir; yfirvara- skegg, myndakort, strípur að hætti hermanna, merki sem líktust nælu- merkjum og fleira. Reyndar hafði það verið upphafleg ætlun Bítlanna að láta fylgja með einkennismerki, blýanta og annað smávægilegt sem tengdist Sgt. Pepper, en það reyndist of kostnaðarsamt þegar upp var staðið. Reyndar hugnaðist Brian Epstein umboðsmanni Bítl- anna umslagið ekki betur en svo að hann lét Nat Weiss, sem hafði yfir- umsjón með varningi tengdum Bítlunum, hafa orðsendingu sem á stóð: „Brúnir pappírspokar fyrir Sgt. Pepper.“ Epstein voru í fersku minni lætin sem svonefnt „Butcher Cover“ bandarísku útgáfunnar af plötunni Yesterday and Today olli árið áður. Heiður þeim sem heiður ber Listræn yfirumsjón yfir umslaginu var í höndum Roberts Fraser sem var vel þekktur listaverkasali í Lund- únum og rak sitt eigið gallerí. Robert taldi Paul McCartney hughvarf með að fá The Fool-hópinn til að hanna umslagið og taldi að hönnun hans myndi ekki verða langra lífdaga auðið. Þess í stað stakk Robert upp á „popp“-listamanninum David Blake, sem á endanum hannaði umslagið í félagi við konu sína. Að sögn Davids Blake var fyrsta hugmyndin sú að búa til senu þar sem Sgt. Pepper- hljómsveitin léki í almenningsgarði, en hugmyndin þróaðist síðan yfir í hina endanlegu mynd; Bítlana í gervi Sgt. Pepper-hljómsveitarinnar í stór- um hópi þeirra sem töldust til hetja þeirra. Hetjur Bítlanna voru klipptar út í fullri líkamsstærð, en vaxmynd- ir af Bítlunum, að láni fengnar hjá vaxmyndasafni Madame Tussauds, standa til hliðar við hinar raunveru- legu fyrirmyndir. Fólk sem við kunnum við Hópmyndin sem prýðir umslagið gekk undir nafninu „Fólk sem við kunnum við“ og var listinn fenginn frá Bítlunum. Flestar tillögurnar komu frá John Lennon, Paul McCart- ney og George Harrison, en Ringo Starr lét þetta sig litlu varða og sagði að hann væri sáttur við hvaðeina sem hinir vildu. Eins og við var að búast komu gúrú- arnir frá George Harrison og mörgum af hugmynd- um Lennons var hafnað. Á meðal þeirra sem Lennon vildi fá, en fékk ekki, var Adolf Hitler og kannski ekki undarlegt að sú hug- mynd fengi lítinn hljóm- grunn, en reyndar var búið að klippa út mynd af Hitler í fullri líkamsstærð. Einnig vildi Lennon sjá Jesú á umslaginu, en Epstein fannst ekki nægilega fennt yfir þau ummæli Lennons að Bítlarnir væru stærri en Jesús. Mahatma Gandhi var einnig fórnað á þeirri forsendu að plat- an fengist þá ekki útgefin á Indlandi, en útgáfufé- lagið var með útibú þar. Lögfræðileg áhyggjuefni Eins og gefur að skilja var ekki ein- falt mál að ganga frá öllum lausum endum varðandi lokahugmyndina. Lögfræðingar EMI þurftu að hafa samband við alla sem voru á lífi og fá leyfi fyrir notkun af mynd af þeim á umslaginu. Leikkonan Mae West var í fyrstu ekki ginnkeypt fyr- ir hugmyndinni og neitaði með orðunum: „Hvaða erindi á ég í fé- lagsskap einmana hjartna?“ En eftir að Bítlarnir sendu henni persónu- legt bréf sá hún að sér. Einn þeirra sem leitað var til var leikarinn Leo Gorcey, en eftir að hann fór fram á þóknun fyrir vikið var hann fjar- lægður hið snarasta. Mexíkóski leikarinn Tin-Tan fór þess á leit við Ringo Starr að sér yrði skipt út fyrir mexíkóskt tré og varð Ringo við beiðninni. Kveðja til Rolling Stones Á umslaginu getur að líta Shirley Temple-dúkku sem klædd er í rönd- ótta peysu. Á peysunni stendur „Welcome the Rolling Stones“, sem eins konar kveðja til Rolling Stones sem var helsti keppinautur Bítl- anna á þessum tíma. Meðlimir Roll- ing Stones svöruðu kveðjunni með því að vera með litlar felumyndir af Bítlunum á næstu plötu sinni Their Satanic Majesties Request, sem kom út síðar það ár. Á bakhlið umslagsins eru textar laga plötunnar og mynd af Bítlun- um. Þrír Bítlanna snúa fram, en Paul McCartney snýr baki í myndavélina. Þetta tókst sumum að túlka sem staðfestingu á dauða McCartneys, en orðrómur þar að lútandi hafði lengi verið á sveimi. Önnur skýr- ing sem kom til greina var sú að um staðgengil hefði verið að ræða því McCartney hefði einfaldlega verið fjarverandi. En myndir frá myndatök- unni sýna svo ekki verður um villst að maðurinn með bakið í myndavélina er í raun Paul McCartney, og ekkert dularfullt í gangi. Platan var tilnefnd til sjö Grammy-verðlauna á sínum tíma og vann til fernra, þar á meðal sem besta plötuumslag. n kolbeinn@dv.is Nú hálf öld er liðin n Sgt. Pepper's Lonely Hearts Club Band fimmtug n Braut blað að mörgu leyti Félagsskapur Bítlanna 1. Sri Yukteswar Gigi (gúrú) 2. Aleister Crowley (dulfræðiiðkandi) 3. Mae West (leikkona) 4. Lenny Bruce (skemmtikraftur) 5. Karlheinz Stockhausen (tónskáld) 6. W.C. Fields (skemmtikraftur) 7. Carl Gustav Jung (sálfræðingur) 8. Edgar Allen Poe (rithöfundur) 9. Fred Astaire (leikari) 10. Richard Merkin (leikari) 11. The Varga Girl (e. Alberto Vargas) 12. *Leo Gorcey (málað yfir, vildi fá borgað) 13. Huntz Hall (leikari) 14. Simon Rodia (hönnuður Watts-turnanna) 15. Bob Dylan (tónlistarmaður) 16. Aubrey Beardsley (myndskreytir) 17. Sir Robert Peel (stjórnmálamaður) 18. Aldous Huxley (rithöfundur) 19. Dylan Thomas (ljóðskáld) 20. Terry Southern (rithöfundur) 21. Dion (söngvari) 22. Tony Curtiss (leikari) 23. Wallace Berman (listamaður) 24. Tommy Handley (skemmtikraftur) 25. Marilyn Monroe (leikkona) 26. William Burroughs (rithöfundur) 27. Sri Mahavatara Babaji (gúrú) 28. Stan Laurel (skemmtikraftur) 29. Richard Lindner (listamaður) 30. Oliver Hardy (skemmtikraftur) 31. Karl Marx (heimspekingur) 32. H.G. Wells (rithöfundur) 33. Sri Paramahansa Yogananda (gúrú) 34. Nafnlaus 35. Stuart Sutcliffe (listamaður/fyrrv. Bítill) 36. Nafnlaus 37. Max Miller (skemmtikraftur) 38. The Pretty Girl (e. George Petty) 39. Marlon Brando (leikari) 40. Tom Mix (leikari) 41. Oscar Wilde (rithöfundur) 42. Tyrone Power (leikari) 43. Larry Bell (listamaður) 44. Dr. David Livingston (landkönnuður/læknir) 45. Johnny Weissmuller (sundkappi/leikari) 46. Stephen Crane (rithöfundur) 47. Issy Bonn (skemmtikraftur) 48. George Bernard Shaw (rithöfundur) 49. H.C. Westermann (myndhöggvari) 50. Albert Stubbins (knattspyrnumaður) 51. Sri Lahiri Mahasaya (gúrú) 52. Lewis Carrol (rithöfundur) 53. T.E. Lawrence (hermaður „Arabíu Lawrence“) 54. Sonny Liston (hnefaleikakappi) 55. The Pretty Girl (e. George Petty) 56. Vaxmynd af George Harrison 57. Vaxmynd af John Lennon 58. Shirley Temple (barnastjarna) 59. Vaxmynd af Ringo Starr 60. Vaxmynd af Paul McCartney 61. Albert Einstein (eðlisfræðingur) 62. John Lennon 63. Ringo Starr 64. Paul McCartney 65. George Harrison 66. Bobby Breen (söngvari) 67. Marlene Dietrich (leikkona) 68. Mohandas Ghandi (skyggður að beiðni EMI) 69. Liðsmaður Buffalo-hersveitarinnar 70. Diana Dors (leikkona) 71. Shirley Temple (barnastjarna) 72. Tuskudúkka e. Jann Haworth 73. Shirley Temple-tuskudúkka e. Haworth 74. Mexíkóskur kertastjaki 75. Sjónvarp 76. Stytta af stúlku 77. Stytta 78. Stytta úr húsi Johns Lennon 79. Verðlaunagripur 80. Fjögurra arma indversk dúkka 81. Trommuskinn, hannað af Joe Ephgrave 82. Hookah (vatnspípa) 83. Flauelssnákur 84. Japönsk stytta 85. Stytta af Mjallhvíti 86. Garðálfur 87. Túba „Hvaða erindi á ég í félagsskap einmana hjartna? - Mae West
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.