Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 21
Helgarblað 9. júní 2017 KYNNING 21 Klassískt postulín í bland við nýrri og djarfari stíla Verslunin Borð fyrir tvo, sem meðal annars er þekkt fyrir afskaplega fallegan og vinsælan borðbúnað, flutti snemma árs af Laugavegi 97 upp í Síðumúla 33. Una Gunnarsdótt- ir eigandi er afar ánægð með nýju staðsetninguna: „Það eru að verða svo miklar og jákvæðar breytingar hérna í Síðumúlanum, fjölbreyttari verslanir og töluvert mikið af húsbúnaðarverslun- um. Hér er góð aðkoma og næg bílastæði fyrir fólk að leggja í hér fyrir utan. Ég hef fengið mjög góð viðbrögð við flutningnum hjá viðskiptavinum, fólk er ánægt með að fá okkur hingað.“ Í Borð fyrir tvo fæst gott úrval af vönduðu og fallegu postu- líni á fínu verði, eða eins og Una segir: „Ég náði góðum samningi við framleiðanda sem framleiðir postulín fyrir þekkt merki eins og t.d. Ralph Lauren og Charter Club- línuna fyrir Macy's og með því að versla beint og sleppa milliliðum er hægt að bjóða hagstæðara verð. Annar kostur við þetta fyrirkomu- lag er sá að ég get stjórnað því hvað línurnar fást lengi hjá mér og þarf ekki að sætta mig við að einhver lína sé tekin úr framleiðslu af því hún er ekki nægilega vinsæl lengur á stórum erlendum mörk- uðum. Í þessum bransa eru tísku- straumar eins og annars staðar og framleiðendurnir taka þátt í sýningum tvisvar á ári þar sem þeir eru undir miklum þrýstingi um að koma fram með eitthvað nýtt. Það aftur á móti veldur því að þeir geta ekki haldið öllum fyrri línum í framleiðslu. Ég þarf hins vegar ekki að hafa áhyggjur af þessu.“ Að sögn Unu eru vörurnar hjá Borð fyrir tvo afar vinsælar til brúðargjafa og algengt er að lagðir séu inn brúðargjafalistar í verslunina. Þeir sem skrá gjafa- lista í Borð fyrir tvo fá inneign að verðmæti 10% af því sem keypt er af listanum. Þessar vörur eru líka vinsælar til annars konar gjafa. En hvers konar borðbúnaður er vinsæll núna? „Postulínsstellin eru mjög vinsæl og þar hef ég lagt áherslu á að hafa þau stílhrein og klassísk, eitthvað sem fólk sér fyrir sér að vilja eiga og nota áratugum saman. En svo eru líka aðrar og ólíkar línur að koma sterkar inn. Má þar nefna hollensku línuna PIP Studio þar sem lögð er áhersla á litagleði og skrautleika. Slagorð þeirra er „For Happy People“ og má fullyrða að maður verður glað- ur innan um þessa hluti. Úr allt annarri átt er síðan danska línan Bitz. Þær vörur eru ekki úr postu- líni heldur úr leir. Þar er áhersla á svart, grátt og grænt. Líka svört hnífapör. Þetta er mun grófari hönnun og bæði vinsæl og flott sem slík,“ segir Una. Það er óhætt að mæla með heimsókn í verslunina Borð fyrir tvo að Síðumúla 33. Það er gam- an að skoða þann fallega borð- búnað sem þar er í boði. Verslunin er opin virka daga frá 11 til 18 og á laugardögum frá frá 12 til 16. Símanúmer er 568-2221. Borð fyrir tvo flutt í Síðumúlann
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.