Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 27
Helgarblað 9. júní 2017 KYNNINGARBLAÐ Til sjávar 3 Sjóarinn síkáti: „Þetta er okkar þjóðhátíð“ Grindavík býr yfir mikilli og merkilegri sögu sjósóknar og þar er sjómannadagur- inn í hávegum hafður; raunar hefur dagurinn breitt úr sér yfir í þriggja daga fjölskylduhátíð hin seinni ár: Hátíðin Sjóarinn síkáti hefur verið haldin síðan árið 1996 og hefur farið mjög stækkandi í seinni tíð. „Hér er fjölbreytt og þétt dagskrá alla helgina, frá föstudegi og út sunnudag. Þetta er fyrst og fremst bæjarhátíð og fjölskylduhátíð og hér er gleðin við völd alla helgina og rúmlega það,“ segir Siggeir Ævars son, upplýsingafulltrúi Grindavíkurbæjar. Segja má að hápunktar Sjóar- ans síkáta séu í raun margir, allt eftir smekk hvers og eins. Það ligg- ur í hlutarins eðli að sunnudagur- inn – sjálfur sjómannadagurinn – er einn þessara hápunkta, afar hátíðlegur dagur sem er Grindvík- ingum hjartfólginn. Þá er meðal annars á dagskrá hátíðarstund í Grindavíkurkirkju og á bryggjunni. Föstudagskvöldið er líka gríðar- stórt fyrir bæjarbúa sem fjölmenna í litaskrúðgöngu á hátíðarsvæðið þar sem slegið er upp bryggjuballi með öllu tilheyrandi. Fyrir aðra nær hátíðin hins vegar hámarki á laugardagskvöld með risadansleik í íþróttahúsinu: „Á laugardagskvöld er stórt ball þar sem SSSól spilar. Körfuknattleiksdeild UMFG heldur þetta ball alltaf. Þeir voru með Pál Óskar í fyrra og það var alveg troðið. Stefnan er að þetta verði ekki síðra í ár. Salka Sól kemur líka fram þarna og Emmsjé Gauti ætlar að loka kvöldinu – þannig að þetta ball verður fyrir alla aldurshópa,“ segir Siggeir. Gríðarlegur fjöldi sækir Sjóar- ann síkáta en vitanlega staldrar fólk mislengi við. Samkvæmt tölum frá Vegagerðinni lögðu um 40.000 manns leið sína á hátíðina í fyrra. „Það er rosalega margt fólk í bæn- um. Þá kemur sér vel að ferða- þjónustuaðilarnir hér eru orðnir mjög öflugir og hér eru margir og fjölbreyttir veitingastaðir, hótel og fleira, þannig að við getum tekið á móti miklum mannfjölda og viljum endilega fá sem flesta. Við hlökk- um til að taka á móti fólki og bjóð- um gesti hjartanlega velkomna til Grindavíkur.“ Siggeir ítrekar að Sjóarinn síkáti sé umfram allt fjölskylduhátíð: „Við leggjum mikla áherslu á barna- dagskrá, að þetta sé fjölskylduvæn hátíð. Síðan erum við með 20 ára aldurstakmark á tjaldstæðið því við viljum umfram allt beina fjölskyldufólki þangað. Auk þess er ókeypis í flest leiktæki. Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi á hátíðinni, hvort sem fólk gerir sér dagsferð suður með sjó eða dvelur hjá okkur alla helgina.“ Hátíðin er brostin á, Grinda- víkurbær hefur verið er skreyttur og búið að skipta honum upp í fjögur litahverfi: rautt, grænt, blátt og appelsínugult. Það er full ástæða til að bregða sér til Grindavíkur um helgina og gera sér glaðan dag. „Þetta er okkar þjóðhátíð og sjómannadagurinn er til dæmis miklu stærri dagur hér en 17. júní,“ segir Siggeir. Ítarlegar upplýs- ingar um dagskrá hátíðarinnar er að finna á vefsíðu hátíðarinnar, sjoarinnsikati.is. Sjómannadagurinn er eins konar þjóðhátíðardagur Grindvíkinga Myndir: Siggeir F. Ævarsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.