Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 58
34 fólk Helgarblað 9. júní 2017 Hverju á að klæðast á tónlistarhátíðum? Rætt við Þórunni Antoníu, kynningarstjóra Secret Solstice T íska og tónlist haldast oft í hendur. Hvort tveggja er skýr vísbending um menn- ingu, samfélag og tíðar- anda. Nú styttist í eina stærstu tónleikahátíð á Íslandi því Secret Solstice mun fara fram í Laugardalnum um næstu helgi. Dagskráin er ekki af verri endan- um en fjölbreyttur hópur innlendra og erlendra tónlistarmanna mun spila á hátíðinni. Stór nöfn eins og Prodigy, Foo Fighters, Chaka Khan og fleiri eru væntanleg til landsins í tilefni sólstöðuhátíðarinnar. Tískutímarit fjalla gjarnan um þessar hátíðir enda oft og tíðum suðupottur tískunnar og margir áhugaverðir karakterar á kreiki. Þróun síðustu ára er slík að fleiri tónlistar- og útihátíðir eru haldnar fyrir ólíkar tónlistarstefnur og mis- munandi hópa fólks. Vegna þessar- ar samheldni tísku og tónlistar er mikil tilhlökkun og undirbúningur hjá tískuunnendum í aðdraganda slíkra hátíða. Hér skapast gott tækifæri að leyfa sér að vera frumlegur í fatavali, sýna sig og sjá aðra. Þekktustu hátíðirnar í þessu samhengi eru óneitanlega Coachella í Kaliforníu og gamla góða Woodstock-hátíð- in. Þekkt vöruhús ganga jafnvel svo langt að framleiða sérstakar fatalín- ur í aðdraganda stærstu hátíðanna. En hvort sem fólk ætlar á hátíð sem rokkari eða bóhem, hippi eða „normcore“, klæða sig í teknó-lit- um og netabol þá er fjölbreytileik- inn skemmtilegur. Hér á Íslandi eru óneitanlega gamla góða lopapeysan og stígvélin vinsælust á útihátíðum. Hönnunarhorninu fannst áhugavert að forvitnast um þessa hluti og heyra í Þórunni Antoníu, kynningarstjóra Secret Solstice, til að heyra hvað hún hefur að segja um þessi mál. Er einhver stíll í klæðnaði sem er einkennandi á Secret Solstice? „Það sem einkennir stílinn á Secret Solstice að mínu mati er gleði og frelsi, fólk mætir í alls kon- ar klæðnaði. Sumir kappklæddir því eins og reynslan hefur kennt okkur á þessu landi er aldrei alveg hægt að treysta á veðurspána, en aðrir mæta léttklæddir og í sumar- skapi. En það er svo mikil gleði að fólk á það til að klæða sig í fatnað sem það notar kannski ekki dags- daglega á tónlistarhátíðum. Meiri blóm, meira glimmer, þægilegri djammskór, því það er ekkert verra en að vera í pinnahælum í grasi.“ En ef við horfum á helstu tón- listarhátíðir á Íslandi, hvað er það sem einkennir stíl fólks sem sæk- ir Iceland Airwaves, Sónar og svo Secret Solstice á annað borð? „Ég held að það sem einkenni ís- lenska tísku yfirhöfuð sé frelsi, fólk klæðir sig almennt hér eins og því sýnist, það er skemmtilegt. Ég á flíkur sem Gísli á Uppsölum gæti hafa átt og einnig Dolly Parton, allt í sama fataskáp – það má. Ég verð stundum örlítið ringluð þegar ég þarf að klæða mig á morgnana en það gerir lífið bara skemmtilegra.“ Myndir þú mæla með að gestir klæddust einhverju ákveðnu? „Ég mæli með því að allir komi með sólgleraugu því það verður glampandi sól alla helgina, ég hvet sem flesta til að mæta í magabolum og frelsa bumbuna og svo að vera í góðum skóm með góðan jakka. Svo verða sölubásar með alls konar skemmtilegt á svæðinu svo fólk þarf ekki að örvænta ef það kemur og er ekki nógu fínt eða nógu hlýtt, við björgum því.“ Verða götutískumyndir teknar af gestum? „Já, og ég veit um fjölmarga sem geta ekki beðið eftir að dressa sig upp fyrir hátíðina og eru jafnvel búnir að plana fyrir fram alla dag- ana! Ég þarf aðeins að fara að gefa í varðandi þessi mál.“ Ert þú búin að ákveða í hverju þú ætlar að vera? „Ég er haldin mikilli fortíðar- ást þegar kemur að tísku, ég elska kögurjakka og svona smá „seventís hippafíling“, en inni í mér blundar líka „næntís bitch“ sem elskar plast- buxur, þannig að þið fáið eitthvað mjög „spontant fusion“ frá konu sem hefur lítinn tíma í að fyrir- fram ákveða fötin sín, þannig að ef einhver er til í að koma og klæða mig á morgnana myndi það spara nokkrar gusur af fataskvettum úr fataskápnum og ég hlaupandi í hringi með símann við eyrað milli spegla. Annars hendi ég mér í eitt- hvað „spontant“ og vona það besta og, alveg grínlaust, ef manni líður vel og er hamingjusamur þá er maður sætur í öllu,“ segir Þórunn Antonía. n Hönn- unar- Horn Kolfinna Von Arnardóttir kolfinna@artikolo.is Þórunn Antonía „Ég er haldin mikilli fortíðarást þegar kemur að tísku.“ „Ég held að það sem ein- kenni íslenska tísku yfirhöfuð sé frelsi, fólk klæðir sig almennt hér eins og því sýnist Smiðjuvegi 4C 202 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.