Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2017, Blaðsíða 63
menning 39Helgarblað 9. júní 2017
in í hugarlund út frá titl-
um þeirra en athöfninni
í skóginum lauk einmitt
á því að Sjón opin beraði
titil verks síns.
Sjón fór frá Noregi
til Þýskalands þar sem
hann dvelur í sumar
sem gestur Loftslags-
rannsóknarstofnunar-
innar í Potsdam. Þar
mun hann hafa að-
stöðu í litlum stjörnu-
skoðunarturni og
vinna að bókmennta-
verki sem tekst á við þá
miklu ógn sem mann-
kyni stafar af hlýnun
jarðar og afleiðingum hennar.
Verk Sjóns halda áfram að koma
út erlendis. Útgáfuréttur CoDex
1962 hefur meðal annars verið seld-
ur til Bandaríkjanna, Þýskalands og
Bretlands, Skugga-Baldur kemur
brátt út á 35. tungumálinu og nú í
lok maí var ljóðabókin Gráspörvar
og ígulker gefin út í franskri þýðingu
Severine Daucourt hjá forlaginu
Editions Lanskine í París. Það síðar-
nefnda sætir nokkrum tíðindum
því afar sjaldgæft er að heilar ljóða-
bækur íslenskra skálda séu gefnar
út á öðrum málum. n
Arnaldur Indriðason Kemst í
virtustu alfræðiorðabók Frakklands.
Handritið afhent Marianne Borgen, borgarstjóri Óslóar, Katie Paterson, og Sjón með handritið í öskjunni. Mynd BjørvIkA UtvIklIng / krIstIn von HIrscH.
árs afmæli þínu. Hvernig finnst þér
að eldast?
„Ég er fáránlega fjörugur,
gríðarlega duglegur að hreyfa mig
og á ung börn sem halda mér á
tánum. Meðan ég eldist þetta vel
þá er það ekkert mál. Hins vegar
er staðreyndin sú að við fæðumst,
eldumst, veikjumst og deyjum.
Þetta er leiðin. Ég er, án þess að
vera í þunglyndi, byrjaður að hug-
leiða það að þegar ég dey vil ég
vita hver ég er. Það er mitt verkefni
þessa daga að komast að því.“
Heldurðu að dauðinn sé enda-
lok?
„Alls ekki. Ég er farinn að temja
mér skoðanir Tíbet-búddista. Það
er enginn möguleiki að dauðinn sé
endalok öðruvísi en þannig að lík-
aminn hverfur og rotnar og verð-
ur að mold. Ég hef öðlast vissu
innra með mér um að sjálfið hverf-
ur ekki. Þá er ég að tala um hinn
innsta kjarna.
Ef dauðinn kemur ekki þegar
við erum ennþá ung og eigum allt
fram undan heldur þegar við erum
gömul og höfum náð að lifa góðu
lífi þá er hann ekkert annað en
fögnuður.“
Það er nóg fram undan hjá
Bubba. Hann heldur afmælistón-
leika í ágúst og í september kem-
ur út hjá Forlaginu ljóðabók hans,
Hreistur. „Án þess að skilgreina
það á neinn máta þá er þetta ljóða-
bálkur um hinn horfna heim ver-
búðar og farandverkamanna,“ seg-
ir Bubbi. n
„Það er
mjög
hollt, gott og
nærandi að
stíga ekki inn í
þetta hávaða-
öskur sem er
svo áberandi í
nútímanum
Bubbi „Mér
finnst skipta
máli að syngja
um hluti sem
alla jafna er ekki
sungið um.“