Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2017, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 13.10.2017, Blaðsíða 60
36 menning Helgarblað 13. október 2017 Tosca er nánasT allTaf eins og ný Kristján Jóhannsson fer með hlutverk Cavaradossi í hinni frægu óperu Puccinis Í slenska óperan frumsýn- ir hina frægu óperu Puccin- is, Toscu, í Hörpu laugar- daginn 21. október. Tosca fjallar um ástir, afbrýði og átök á umbyltingatímum í pólitík. Óper- an var frumsýnd árið 1900 í Róm. Í uppfærslu Íslensku óperunn- ar fer Kristján Jóhannsson með hlutverk málarans Cavaradossi, en á löngum ferli hefur hann sungið hlutverkið um 400 sinn- um, þar á meðal í Metropolitan, Vínaróperunni, Chicago-óper- unni og víðar. Hann segist fyrst hafa sungið hlutverkið árið 1980 með Sinfóníuhljómsveit Íslands í konsertuppfærslu. Hlutverkið er honum skiljanlega kært. Hann er spurður hvort túlk- un hans á persónunni og söngur hans hafi breyst frá því hann söng hlutverkið fyrst. „Maður breyt- ist með tímanum, bæði andlega og líkam lega og um leið breyt- ist röddin sem er orðin þykk- ari. Núna er ég að mörgu leyti ánægðari með með hana. Ég hef sungið þetta hlutverk ótal sinn- um en alltaf með nýju og ólíku fólki, sem veldur því að í mínum huga er verkið nánast alltaf eins og nýtt.“ Tenging við Cavaradossi Hvernig persóna er Cavaradossi? „Hann er mjög sterkur karakt- er, heilsteyptur og yndislegur á margan hátt. Hann er ástríðufull- ur, hefur húmor og það er auð- velt að hafa samúð með honum. Ég tengi mjög vel við hann. Hann er mjög skapmikill og þolir ekki og hatar ofbeldið sem er í pólitík- inni á þessum tímum. Óperan er látin gerast á Mussolini-tímabil- inu á Ítalíu og þar er mikill við- bjóður í gangi. Cavaradossi hjálp- ar strokufanga og sinnir um leið myndlist sinni. Svo elskar hann hina skapmiklu Toscu.“ Hvað er svona heillandi við þessa óperu? „Tónlistin er unaður, þar eru margar aríur og dúettar sem allur heimurinn þekkir, það sem við á Íslandi köllum lög. Þetta er ein besta ópera allra tíma og ein af tíu vinsælustu óperum heims. Eins og Ítalir segja þá er þetta verk „grande“.“ Sjónræn sýning Hljómsveitarstjóri sýningarinnar er Bjarni Frímann Bjarnason sem er þarna í frumraun sinni sem hljómsveitarstjóri hjá Íslensku óperunni. Kristján fer fögrum orðum um hann: „Ég gleðst yfir því að við erum komin með sann- an óperustjórnanda á Íslandi, hinn 28 ára gamla Bjarna Frí- mann sem er óskaplega flottur. Ég er líka mjög sáttur við áhersl- ur leikstjórans Greg Eldridge. Í Hörpu er risastórt svið, eins og úti í hinum stóra heimi. Ef Tosca og Cavaradossi væru mikið tvö ein saman á sviðinu þá yrði það sjónrænt séð fremur fátæk- legt. Það sem Greg gerir er að setja fólk, sem er í daglegu amstri, á sviðið. Þannig skapast hreyfing á sviðinu og sýningin verður fyrir vikið mjög sjónræn.“ Með hlutverk Toscu fer breska söngkonan Claire Rutter sem er þekkt fyrir hlutverkið og hefur sungið það víða um heim. „Hún er frá- bær og flott, mikill fag- maður, og á eftir að slá í gegn hjá Íslendingum,“ segir Kristján. Hann hrósar sömuleið- is Ólafi Kjartani Sigurðarsyni sem fer með hlutverk illmenn- isins Scarpia og segir hann vera magnaðan söngvara og mikinn listamann. Kristján er spurður hvort hann sé alltaf öruggur á sviði. „Mitt mottó hefur alltaf verið að fara ekki á svið nema vera óskaplega vel undirbúinn,“ svarar hann. „Minn gamli kennari sagði alltaf: Kristján, þú átt að kunna hlut- verkið svo vel að þótt húsið hrynji utan af þér þá haldirðu áfram að syngja. Góður undirbúningur skapar öryggi en það er líka gott að hafa smá fiðring í maganum. Manni verður að líða vel og ekki roðna úr skömm yfir því að vera á sviði. Ef söngvari er ekki að gleðja fólk á einhvern hátt þá á hann að fara að gera eitthvað annað.“ Heims um ból í uppáhaldi Senn líður að jólum og Kristján heldur sína árlegu jólatónleika 2. desember í Hörpu. „Það er sér- stök stemning að syngja á jólatónleikum. Gestir mínir á jólatónleikunum verða Ólafur Kjartan, félagi minn úr Toscu, Dísella og framtíðar barítónninn Aðalsteinn Ólafsson, karlakór Kópavogs og óperukór Garðars Cortes og hljóðfæraleikarar úr Sinfóníunni. Þetta verður stórt og glæsilegt og skemmtilegt og öðruvísi, ekki bara eitthvert ship- o-hoj.“ Áttu uppáhaldsjólalag? „Heims um ból er alltaf uppá- haldsjólalagið mitt. Ég er á móti því að byrjað sé að syngja Heims um ból strax á aðventu. Það á að syngja Heims um ból á sjálfum jólunum.“ n „Ef söngvari er ekki að gleðja fólk á einhvern hátt þá á hann að fara að gera eitthvað annað. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Kristján sem Cavaradossi Á sviði í Róm. Kristján Jóhannsson „Eins og Ítalir segja þá er þetta verk „grande“.“ Mynd SigTryggur Ari Sem Cavaradossi Í Vínaróperunni. Með Claire rutter Viðtalinu við Kristján var rétt ný lokið þegar söngkonan, sem fer með hlutverk Toscu, gekk hjá og var lokkuð í myndatöku. Mynd SigTryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.