Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Page 29
Vikublað 20. október 2017 5
svo það hentar að vera mitt á milli.
Svo elskum við bæði náttúruna á
Íslandi og finnst mjög gott að vera
nálægt vatninu, umvafin fallegu
umhverfi. Að auki er þetta nýtt
húsnæði og passleg stærð fyrir
okkur þar sem við erum ekki enn
komin með fleiri börn og erum
alltaf með annan fótinn erlendis.“
Eins og fyrr segir hefur Jóna
ferðast mikið í gegnum tíðina og
það sama gildir fyrir móður hennar
sem hefur búið í Tókýó í Japan
undanfarin ár. Á ferðum sínum
hafa þær mæðgur skoðað fallega
muni í hinum ýmsu löndum, muni
sem er erfitt að finna hérlendis.
Meðal annars mottur frá Íran,
borð frá Indlandi og bollastell frá
Filippseyjum svo fátt eitt sé nefnt.
„Mamma fékk þá hugmynd að
við myndum opna vefverslun og
byrja að selja leirmuni frá Japan.
Verslunin gekk strax mjög vel
og þetta vatt fljótt upp á sig. Við
kynntumst húsgagnaframleiðanda
í Istanbúl sem gerir einstaklega
vönduð og falleg húsgögn og þegar
við fréttum af lausu húsnæði í
Síðumúla 13 þá slógum við
til og tókum það á leigu
undir verslunina, enda betra
fyrir viðskiptavini að fá
tilfinningu fyrir húsgögnum
með því að koma og skoða
þau. Við höfum samt tekið
eftir því að áhugi á netversl-
un hefur stóraukist enda
skilmálarnir og þjónust-
an orðin svo góð að fólk
treystir meira á það.“
margret@dv.is
Royal-Rúmgafl Þennan fékk ég frá sama framleiðanda og gerði sófann. Við seljum þessa rúmgafla í Seimei en það er hægt
að panta þá í hvaða hæð, lit, efni og breidd sem fólk getur hugsað sér. Mér finnst mjög fallegt að hafa þennan ljósbleika gafl
upp við gráa vegginn. Ég veit ekki hvort maðurinn minn var jafn spenntur fyrir þessu en mér finnst þetta alveg æði.
lampi af maRkaði í paRís
Lampinn kemur frá foreldrum mínum.
Þau keyptu hann á antíkmarkaði í París
en við bjuggum þar í borg þegar ég var
lítil. Þau gáfu mér hann nýlega og ég
vona að hann fari ekki aftur. Skermurinn
á honum er reyndar nýlegur en lampinn
sjálfur er mjög gamall.
VegleguR blómaVasi Þetta er í raun bara glerkrukka en mér finnst mjög skemmti-legt að setja blóm í hann og tylla lokinu við hliðina á. Þetta er svona svolítið öðruvísi. Svo er hann extra stór og mikill þannig að þótt það sé ekkert í honum þá hefur hann mikið skreytingargildi.
myndin Myndin í gyllta rammanum er keypt í Zefat, litlum
gyðingabæ í Ísrael. „Þetta er svona hippa- og listamannabær
en samt eru allir strangtrúaðir gyðingar. Frekar fyndin
blanda. Svo lét ég ramma myndina inn hjá innrömmun
Hafnarfjarðar sem mig langar að mæla alveg sérstaklega
með. Íkonamyndirnar keypti ég í Sofia í Búlgaríu en mér
finnst gaman að kaupa mér eitthvað eitt á hverjum stað.
austuRlensk stemning í stofunni
Sófinn er frá Seimei en hann kemur einmitt frá
framleiðandanum í Tyrklandi. Ég fékk hann
bara rétt áður en við fluttum inn og er mjög sátt
við hann. Vanalega er ég ekki mjög litadjörf en
nú er allt í bleiku og bláu og alls konar fallegum
litum svo ég bara lét vaða, keypti bláan sófa
og sé ekki eftir því. Mottuna pantaði ég líka
frá Tyrklandi en sófaborðið er frá indverskum
framleiðanda sem gerir alls konar fallega hluti
sem við mamma seljum í búðinni. Myndir Sigtryggur Ari