Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Blaðsíða 60
36 menning Helgarblað 20. október 2017 Þ að er augljóst að kvik- myndahúsagestir tengja vel við þær heiftúðugu ná- grannaerjur sem stigmagn- ast og enda með ósköpum í Undir trénu. Yfir 30 þúsund manns hafa séð þessa nýjustu mynd leikstjór- ans Hafsteins Gunnars Sigurðs- sonar frá því að hún var frumsýnd í byrjun september. Myndin er fjölskyldudrama með óþægilega sótsvörtum kómískum undirtónum. Þar fléttast saman tvær sögur, önnur um forræðisdeilu ungs pars sem hefst þegar konan stendur kærasta sinn að því að horfa á gamalt kynlífsmyndband af sjálfum sér og fyrrverandi kærustu. Ungi maðurinn, leikinn af Steinþóri Hróari Steinþórssyni, neyðist til að flytja tímabundið aftur á æskuheim- ili sitt í Hvassaleitinu, en þar lifa for- eldrar hans, leiknir af Eddu Björg- vinsdóttur og Sigurði Sigurjónssyni, enn í skugga hörmulegs fráfalls eldri sonar síns. Á sama tíma eiga þau í heiftúðugum deilum við nágranna sína sem vilja að veglegt og skugg- sælt tré í garði þeirra verði fellt. Það er rit- og handritshöfund- urinn Huldar Breiðfjörð sem skrif- aði handritið ásamt Hafsteini, en hann skrifaði einnig handritið að síðustu mynd leikstjórans, París norðursins. Samstarf þeirra hófst fyrst þegar þeir voru báðir í kvik- myndanámi í New York um miðj- an fyrsta áratug þessarar aldar og Undir trénu á rætur sínar að rekja allt til þess tíma. Innblásinn af hæstaréttardómi Hugmyndin að Undir trénu fæddist fyrir um áratug, árið 2007, þegar Huldar og Hafsteinn Gunn- ar voru að leita sér að spennandi sögu til að kvikmynda eftir að þeir höfðu báðir lokið kvikmyndanámi í Bandaríkjunum. „Á þessum tíma vorum við svo- lítið að flýta okkur að finna góðan efnivið. Við vildum ráðast í að gera bíómynd og láta það gerast hratt,“ segir Huldar. „Ég talaði við félaga minn sem var að kenna lögfræði við Háskól- ann og spurði hann hvort hann myndi eftir einhverjum skemmti- legum málum sem væri hægt að nota sem innblástur. Hann benti mér á nokkur áhugaverð mál og þar á meðal nágrannadeilu um runna, deilu sem hafði farið alla leið í Hæstarétt. Það fór ekkert af þessu tiltekna máli inn í söguna okkar en það sem kom mér í gang var að sjá hvernig frekar venju- legt úthverfafólk – að því er virtist – breyttist bara í algjöra brjálæð- inga á augabragði. Mér fannst merkilegt hversu hratt deilan stig- magnaðist og hvað það virtist vera svakalega mikil heift í henni. Ég hugsaði að það hlyti að liggja eitt- hvað annað að baki – eitthvað meira en þessi eini runni. Þegar ég fór að velta þessu fyrir mér fóru fyrstu persónur sögunnar fljótlega að koma til mín,“ segir Huldar. „Á þessum tíma vorum við hins vegar með nokkur önnur verkefni í pípunum og fljótlega sáum við að þessi efniviður krefðist eflaust meiri tíma en við ætluðum að nota í verkið og því lögðum hug- myndina til hliðar.“ Kunnum ekki að vera ósammála Huldar segir hins vegar að sagan hafi haldið áfram að mallast og þróast í huga hans næstu árin: „Þegar svona hugmynd hefur fæðst þá fer maður að rekast á hana hér og þar, taka eftir henni úti um allt. Við vorum nýkomnir úr námi erlendis og sáum íslenskt samfélag að vissu leyti með nýjum augum. Við urðum fljótlega frekar upp- teknir af því hvað allt var logandi í deilum í samfélaginu, nágranna- erjur voru reglulega að blossa upp í fjölmiðlum og það voru forræðis- deilur víða í kringum okkur. Þetta voru ágengar deilur frekar en ein- hverjar gæfulegar rökræður.“ Má ekki segja að deilurnar í myndinni séu að miklu leyti til komnar vegna þess að það er ekki tekist á við vandamálin, það er ekki talað um þau og ekki unnið úr áföllum – þannig að í raun ganga þau aftur og ásækja fólk? „Jú, ef málin eru ekki kláruð al- mennilega þá hafa þau tilhneig- ingu til að koma hressilega til baka. Þess vegna er slæmt hvað við erum oft léleg í að vera ósam- mála og rökræða málin. Maður sér þetta til dæmis núna þegar stytt- ist í kosningar, við erum alltaf í einhverri heift. Þetta er allt önnur menning en til dæmis í Englandi þar sem það er mikið sport að rök- ræða, fara í fínlegar skylmingar með kjaftinum. Hérna heima för- um við frekar í að fella manninn og stinga beint í hjartað – bara eins í Íslendingasögunum,“ segir Huld- ar. „Það er eflaust hægt að yfir- færa umræðuna á Facebook jafnt sem Alþingi á myndina. Ég held því bara opnu fyrir áhorfendur fyr- ir hvað tréð stendur fyrir, þeir geta ákveðið sjálfir hverju þeir vilja skipta trénu út fyrir.“ Huldar segir það hafa verið flókið að koma inn öllum þeim sögum og vinklum sem þeir vildu í þröngt form kvikmyndahandrits- ins en það hafi þó hjálpað að hafa tréð sem þungamiðju í verkinu. Hann segir að fyrir hann persónu- lega hafi þó verið erfiðast að skrifa senur þar sem mamman, leik- in af Eddu Björgvinsdóttir, var at- kvæðamikil. „Það er svo mikill tregi og harmur í kringum þessa persónu. Eftir að ég var búinn með sumar senur með henni var ég al- veg búinn á því. Að sama skapi var ótrúlega gefandi að vinna með hana og gaman að skapa svona sterka kvenpersónu. Svo tóku leik- stjórinn og Edda þetta náttúrlega upp á annað „level“.“ Handritshöfundar ættu að lesa Íslendingasögurnar Huldar segir það hafa verið skemmtilega upplifun að fylgjast með áhorfendum á frumsýn- ingunni engjast um á myndinni enda er húmorinn oft kaldur og nístandi: „Maður heyrir það á hlátrinum að myndin færir fólk mjög hressilega úr stað. Þegar líð- ur á hana fer að koma fram eitt- hvert taugaveiklunarfliss sem er allt að því óviðeigandi. Þá veit maður að myndin er farin að skrúfa sig inn í fólk.“ Hann segir að markmiðið hafi fyrst og fremst verið að skrifa dramatíska mynd og þó að hinir kómísku undirtónar séu vissulega í handritinu hafi það verið leikstjórn- arleg ákvörðun Hafsteins Gunnars að draga fram hinn sótsvarta húmor í myndinni. „Okkur langaði alltaf til að gera svolítið dramatískari og átakameiri sögu en við höfðum áður gert, til dæmis í lokaverkefni Hadda í New York, í sjónvarpsseríu sem við höfðum skrifað saman og París norðursins. Það sem ég gerði á meðan ég var að skrifa hand- ritið var að leggjast svolítið yfir Ís- lendingasögurnar. Þar erum við með 40 sögur sem fjalla margar að miklu leyti um nágrannaerjur. Það er til dæmis hægt að benda á Eyr- byggju eða húskarlavígin í Njálu. Þar er líka áberandi hvað deilurn- ar eru oft ótrúlega slóttugar og and- styggilegar – hvað karakterarnir ganga langt og beita illkvittnisleg- um aðferðum til að koma hinum aðilanum úr jafnvægi. Í harmræn- unni allri í Íslendingasögunum er því líka mjög svartur tónn og ég held að hann hafi að einhverju leyti skilað sér inn í handritið.“ Það er áhugavert að þú hafir sótt innblástur fyrir þessa nútímalegu úthverfasögu í Íslendingasögurnar. Er það efniviður sem ætti oftar að geta verið kvikmyndagerðarmönn- um samtímans innblástur? „Já, almennt séð er mjög gagn- legt fyrir handritshöfund að lesa Íslendingasögur vegna þess að þar er frásögnin yfirleitt mjög mynd- ræn – og það er einmitt eitt af því sem handritshöfundar þurfa að ná fram. Líkt og í kvikmyndum ferð þú aldrei inn í hausinn á persón- unum í Íslendingasögunum, þetta liggur allt í atburðarásinni – atvik- um eða samtölum. Ég held að í þessi tilviki hafi ég hins vegar að- allega sótt í átökin, dramað og deilurnar – og svo sótti ég kannski einhvern kraft í þær.“ n Húskarlavíg í Hvassa- leitinu Handritshöfundurinn, Huldar Breiðfjörð, sótti innblástur í hæstaréttadóma og Íslendingasögur við skrifin á Undir trénu Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is „Það er mjög gagnlegt fyrir handrits- höfund að lesa Íslendingasögur Harðvítugar deilur Huldar Breiðfjörð skrifar um harðvítugar nágrannaerjur í Undir trénu en hann segist hafa orðið upptekinn af því hversu logandi íslenskt samfélag var í ágengum og heiftúðlegum deilum. mynd sIGtryGGur arI Edda Björgvinsdóttir Huldari fannst gefandi að vinna með henni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.