Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Qupperneq 62

Dagblaðið Vísir - DV - 20.10.2017, Qupperneq 62
38 menning Helgarblað 20. október 2017 Vinsælast á Spotify 19. október 2017 Metsölulisti Eymundsson Vikuna 8.–14. október 1 Með lífið að veði - Yeonmi Park 2 Litla bókabúðin í hálöndunum - Jenny Colgan 3 Blóðug jörð - Vilborg Davíðsdóttir 4 Fjallið sem yppti öxlum - Gísli Pálsson 5 Gagn og gaman - Helgi Elíasson og Ísak Jónsson 6 Ósýnilegi verndarinn - Dolores Redondo 7 Stúlkan sem gat ekki fyrirgefið - David Lagercrantz 8 Kanínufangarinn - Lars Kepler 9 Binna B Bjarna Sætasta gæludýrið - Sally Rippin 10 Binna B Bjarna Skröksögur - Sally Rippin Vinsælast í bíó Helgina 13.–15. október 1 Blade Runner 2049 2 Undir trénu 3 My little Pony, the movie 4 The Snowman 5 The Lego Ninjago Movie 6 Kingsman: The Golden Circle 7 Home Again 8 Happy Family 9 Emojimyndin 10 Sumarbörn B lóðug jörð er lokabókin í þríleik Vilborgar Davíðs­ dóttur um landnámskon­ una Auði djúpúðgu. Fyrri bækurnar eru Auður og Vígroði en samtals eru þessar þrjár bækur um 840 síður. Sú fyrsta kom út árið 2009 en Vilborg segist hafa fengið hugmyndina löngu fyrr. „Reyndar er langt síðan ég hreifst af Auði Ketilsdóttur,“ segir Vilborg. „Þegar ég var hálfþrítug ákvað ég að skrifa sögu sem gerðist á land­ námsöldinni því sá tími fannst mér heillandi þótt ég vissi mest lítið um hann. Þá tók ég upp Íslendinga­ sögu, Laxdælu, og hún byrjar á magnaðri sögu af þessari konu: sagnaritarinn fullyrðir að enginn þekki dæmi um að einn kvenmað­ ur hafi komist úr þvílíkum ófriði og með jafnmiklu fé og föruneyti og Auður djúpúðga þegar hún fór frá Katanesi. Hann – eða hún – bætir svo við: ,,Má af því marka að hún var mikið afbragð annarra kvenna.“ Auður lét smíða skip með leynd og lagði af stað í mikla hættuför, orðin ekkja, og var að bjarga börnum í skjól á miklum ófriðartímum. Það er svo margt í þessari sögu sem kallast á við samtímann. Við þurfum ekki annað en að kveikja á sjónvarpinu til að sjá myndir af fólki á flótta yfir hafið í opnum bátum sem halda varla vatni, í leit að stað þar sem það getur fundið skjól og alið upp börn sín í öryggi.“ Reyndirðu þannig meðvitað að tengja sögu Auðar við samtímann? „Nei, þetta er bara nokkuð sem ég hef áttað mig á. Ég sé þessi merki­ legu líkindi æ skýrar. Eitthvað mikið hlýtur að hafa gengið á til þess að fólk yfirgæfi heimahagana og legði í að fara yfir opið úthaf á þessum tíma, án nokkurra siglingatækja og löngu fyrir tíma landakorta. Það var stórhættulegt. Það gerir þetta enginn nema hann sé örvæntingar­ fullur og eygi engin önnur úrræði. Þegar rýnt er í texta Landnámu sér maður að þetta var yfirleitt ungt fólk. Það kom til Íslands og festir þar ráð sitt og eignast börn. Það er mjög eðlilegt að þetta hafi verið ungt fólk því það þarf að vera ungur og vit­ laus til að vera svona fífldjarfur.“ Þroski Auðar Vilborg hefur unnið mikla heimilda vinnu við skrif bókanna um Auði. ,,Hugmyndirnar kvikna oft af heimildavinnunni. Þær koma þegar ég er að lesa um eitthvað sem tengist víkingaöldinni og eins þegar ég ferðast á þessar slóðir. Ég sé kannski á Bretlandseyjum norræn örnefni eða, eins og í Orkn­ eyjum, eldfornan bautasteinahring þar sem hægt væri að láta fara fram brúðkaup. Ég teikna upp hlutina eins og mér finnst líklegast að þeir hafi verið og sé ekkert vitað þá skálda ég í eyðurnar. Ég læt söguna alltaf ráða, framvindan og persónu­ sköpunin er alltaf mikilvægari en sagnfræðin. Lesandinn þarf ekki að þekkja fræðin en mér finnst samt að ég þurfi þess. Það eykur trúverðug­ leikann. Afraksturinn af miklum lestri er oft ekki mikill í orðum talið, til dæmis hef ég lesið feiknin öll um skipasmíði og seglagerð á víkinga­ öld en það sem birtist lesanda er aðeins fáeinar setningar. Auður djúpúðga var ekkja og Vilborg missti mann sinn Björgvin Ingimarsson úr heilakrabba­ meini árið 2013 og skrifaði um þá reynslu í bókinni Ástin, drekinn og dauðinn. Hún er spurð hvort sorgin sem hún upplifði vegna láts eiginmanns síns hafi ratað í nýju bókina. „Já, vissulega,“ seg­ ir hún. „Ég skynjaði mjög sterkt að ég er mun betur til þess fallin nú að skilja ekkjuna Auði en áður en Björgvin dó. Í þessari bók er ég að miðla reynslu minni af eigin sorg og ekki síður því að hjálpa börnum og unglingum að takast á við foreldramissi. Ég get séð, og lesendur eflaust líka, að Auður þroskast í gegnum bækurnar. Hún er ung stúlka í þeirri fyrstu, um þrítugt í annarri og komin nokk­ uð yfir fertugt í þessari bók. Öll þau áföll sem hún verður fyrir, að missa bæði mann og einkason og yfirgefa heimahagana, dýpka og þroska hana sem persónu.“ Kraftur fylgir nafninu Vilborg er spurð hvort hún verði vör við mikinn áhuga Íslendinga á Auði. Hún segir svo vera. „ Auður er þjóðþekkt og það sama á við um fólkið í kringum hana eins og Ingólf Arnarson, Hjörleif Hróðmarsson, bróður hennar Miðlar reynslu af eigin sorg „Öll þau áföll sem hún verður fyr- ir, að missa bæði mann og einkason og yfirgefa heimahagana, dýpka og þroska hana sem persónu. Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Blóðug jörð er lokabókin í þríleik Vilborgar Davíðsdóttur um landnámskonuna Auði djúpúðgu 1 Rockstar - Post Malone og 21 Savage 2 B.O.B.A - JóiPé og Króli 3 Oh Shit - JóiPé og Króli 4 Ég vil það - Chase og JóiPé 5 Sagan af okkur - JóiPé, Króli, Helgi A og Helgi B 6 Havana - Camila Cabello og Young Thug 7 Já ég veit - Birnir og Herra Hnetusmjör 8 Too good at goodbyes - Sam Smith 9 New rules - Dua Lipa 10 Perfect - Ed Sheeran
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.