Fregnir - 01.10.2009, Síða 21
FREGNIR. Fréttabréf Upplýsingar - Félag bókasafns- og upplýsingafræða
34. árg. - 2. tbl. 2009 21
Tímarit sem gefið er út á þremur útgáfuformum:
ISSN-L 1188-1534
Prentuð útgáfa: Plant varieties journal (Ottawa) = ISSN 1188-1534
Rafræn útgáfa: Plant varieties journal (Ottawa. Online) = ISSN 1911-1479
Útgáfa á geisladiski: Plant varieties journal (Ottawa. CD-ROM) = ISSN 1911-1460
Útgefendur geta nálgast töflu yfir ISSN-L númer á vef alþjóðaskrifstofunnar http://www.issn.org/
Helga Kristín Gunnarsdóttir
ISSN/ISBN skrifstofa
Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni
Starfsmenn bókasafns LSH eru þessa dagana að leggja lokahönd á að skanna og skrá inn allar
fræðigreinar úr Sálfræðiritinu. (Tímariti Sálfræðingafélags Íslands) í varðveislusafnið Hirslu.
Samhliða skráningu í safnið er síðan settur rafrænn hlekkur úr Gegnis færslum greinanna yfir í rafræna
útgáfu þeirra í safninu.
Þar sem tímaritið hefur ekki verið til á rafrænu formi, þá er það von starfsmanna LSH að með
þessari vinnu megi auka sýnileika þess. Þannig er hægt að og veita almenningi greiðari aðgang að
áreiðanlegum upplýsinngum skrifuðum af fagmönnum um margvísleg sálræn- og félagsleg vandamál
sem koma upp í nútíma samfélagi.
Efni greinanna er mjög fjölbreytt, og margar þeirra skrifaðar þannig að almenningur, nemar sem og
fagfólk geta sótt sér fróðleik og fræðslu. Sem dæmi um efni sem finna má í þessu greinum er: spila-
og tölvuleikjafíkn, áfallastreita, fræðingarþunglyndi, áraskanir, kvíðanæmi og felmtursraskanir.
Hægt er að skoða þær greinar sem skráðar hafa verði með því að smella á þennan hlekk.
http://hirsla.lsh.is/lsh/browse?type=journal&value=S%C3%A1lfr%C3%A6%C3%B0iriti%C3%B0
&sort_by=1&order=ASC&rpp=100&etal=0&submit_browse=Updat
Heimasíða Hirslunnar er: http://hirsla.lsh.is/lsh/