Fregnir - 01.10.2009, Qupperneq 38

Fregnir - 01.10.2009, Qupperneq 38
FREGNIR. Fréttabréf Upplýsingar - Félag bókasafns- og upplýsingafræða 34. árg. - 2. tbl. 2009 3 rannsóknir tengdar listgreinum. Mér var hugsað til daglegs opnunartíma Bóka- og heimildasafns Þjóðminjasafnsins með nokkru stolti! Nú var komið að því að fara heim á hótel og snurfusa sig fyrir hátíðarkvöldverð í hinu sögufræga Riddarahúsi (Riddarhuset) í Gamla stan. Þar tók á móti okkur þau Antoinette Ramsay-Herthelius og Göran Alm, yfirmenn Bernadotte bókasafnsins, hins konunglega. Göran Alm flutti okkur kostulega skemmtilega frásögn um Riddarhuset og sænska kónga og tilurð Svíaríkis sem ég er ekki alveg viss um að allir sagnfræðingar taki undir! Síðan var etið í fagurlega skreyttum veislusal Riddarhússins og var vín og matur unaðsgott og hef ég aldrei smakkað jafn gott lambakjöt í Svíþjóð (hlýtur að hafa verið frá Gotlandi...). Undir borðum söng svo Kristina Martling, mezzosópran við Konunglegu óperuna við píanóundirleik eiginmanns síns, Göran Martling, tónlistarmanns við Konunglega dramatíska leikhúsið (bróðir Lisu Martling Palmgren). Unaðslegur endir á þéttum degi fróðleiks og skemmtunar. Laugardagur 13. júní - Drottningholm Engin grið voru gefin um morguninn því nú mættu allir niður á Stadshuskajen til að taka gufubátinn til Drottningholmshallar, staðarins sem fyrstur var sænskra staða til að komast á heimsminjaskrá UNESCO. Veðrið var þokkalegt en nokkrir regndropar féllu þó af og til. Samt var bjart og stillt þegar báturinn skreið eftir klukkustundar siglingu inn að litlu höfninni við Drottningholm og geri ég ekki ráð fyrir að eins fögur innsigling finnist víða í veröldinni. Þar tók á móti okkur aftur fyrrnefndur Göran Alm sem mun vera Svía fróðastur um hallir og kóngaslekti langt aftur í aldir. Var nú förinni fyrst heitið í hið sögufræga leikhús í Drottningholm sem byggt var sem slíkt árið 1766 að ósk Louisu Ulriku drottningu eftir að fyrra leikhúsið, sem einnig var byggt að hennar ósk á þessum stað 1754, brann til grunna. Leikhúsið teiknaði arkitektinn Adelcrantz sem einnig teiknaði Kínverska listihúsið í garði Drottningholm. Leiðsögumaður okkar um leikhúsið, klæddur í 18. aldar hirðbúning, var Svíi af kínverskum ættum sem kunni afbragðsskil á leikhússögunni og sögu staðarins. Það var undarleg tilfinning að ganga þarna um sali, vitandi það að þarna hafði aðallinn horft á verk Moliére og Shakespeare og þarna hafði kóngafólk og allt helsta aðalsfólk Evrópu setið (eða staðið!) leiksýningar í ótrúlega framsæknu og tæknilegu leikhúsi sem enn þann dag í dag er notað til leiksýninga og er eftirsótt sem slíkt. Ekki var frítt við að veggir og loft andvörpuðu nokkrum leyndarmálum aðalsins að okkur ... Næst var það svo sjálf Drottningholmshöll sem var skoðuð undir nákvæmri og ítarlegri leiðsögn Göran Alm. Íburður rokkóksins var hér yfirþyrmandi en fagur, og kom undirritaðri satt að segja á óvart hversu mikilfengleg höllin er og vafalaust ein sú glæstasta á Norðurlöndum. En þar sem undirrituð þrífst afskaplega illa í hópleiðsögnum (með fullri virðingu fyrir Göran Alm) læddist hún því oft í burtu þegar skilningarvitin hættu að taka við fróðleiknum og ákvað með sjálfri sér að koma aftur á eigin vegum seinna. Um hádegisbil var síðan hádegisverður snæddur í

x

Fregnir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fregnir
https://timarit.is/publication/283

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.