Fregnir - 01.10.2009, Blaðsíða 39
FREGNIR. Fréttabréf Upplýsingar - Félag bókasafns- og upplýsingafræða
34. árg. - 2. tbl. 2009 39
nýopnuðu veitingahúsi Drottningholms (Slottskaféet) og á leiðinni þangað þá hlotnaðist okkur sú óvænta
ánægja að sjá hann Daníel, tilvonandi drottningarmann Svía, unnusta Viktoríu krónprinsessu.
Að málsverði loknum fór hluti hópsins að skoða Kínverska listihúsið og höggmyndasafnið Museum
de Vries sem hefur að geyma höggmyndir eftir hollenska myndhöggvarann Adriaen de Vries sem
uppi var um aldamótin 1600. Undirrituð var hins vegar búin að fá nóg af list og tók tunnelbanan til
Stokkhólms enda var þá farið að rigna drjúgt. Það var gott að fá sér heitt sturtubað heima á hóteli og
smá lúr áður en við, hinar li(y)stsólgnu íslensku konur, fórum á næsta veitingahús, Bakfickan, sem
framreiddi fyrir okkur dýrðlegan gotlenskan aspas með tilheyrandi meðlæti. Bragðið af honum og
öllu öðru því sem skynfæri mín brögðuðu á í þessari ferð sitja enn eftir í minni líkama og sálar.
Gróa Finnsdóttir
fagstjóri Bóka- og heimildasafns
Þjóðminjasafns Íslands
Við minnum á að:
10 ára afmæli
Upplýsingar ber upp á
10. október 2010
10.10.10