Morgunblaðið - 14.02.2017, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2017
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fríköfun er tiltölulega ný íþrótta-
grein hérlendis og nýverið æfðu tíu
Íslendingar í dýpstu laug í heimi,
Y-40, sem er í þorpinu Montegrotto
Terme, um 45 km vestur af Fen-
eyjum á Ítalíu.
„Þessi laug er mekka fríköfunar
innanhúss, þegar kemur að því að
æfa dýptir,“ segir Sigríður Lár-
usdóttir, sem náði ásamt þremur
öðrum í hópnum að kafa niður á
botn 40 m djúprar laugarinnar á
einum andardrætti. Hún segir að
fríköfun sé bæði stunduð sem
áhugamál og keppnisíþrótt. Hún
njóti vaxanda vinsælda erlendis og
unnið sé að því að fá hana við-
urkennda sem keppnisíþrótt á
Ólympíuleikum, en fyrsta alþjóðlega
mótið á Íslandi verði í sumar.
Birgir Skúlason er frumkvöðull
íþróttarinnar hérlendis og eini
Íslendingurinn með kennararétt-
indi. Þátttakendur æfa tvisvar í
viku, í Sundhöll Reykjavíkur og
Sundhöll Hafnarfjarðar. Auk þess
fer fólkið í vötn og sjó, oftast í
Silfru, Þingvallavatn, Kleifarvatn og
sjóinn á höfuðborgarsvæðinu. Sumir
hafa æft sig erlendis, meðal annars
við Kanaríeyjar og í Blue Hole,
Dahab í Egyptalandi. „Við búum
ekki við góða æfingaaðstöðu til þess
að kafa djúpt og því voru mikil við-
brigði að æfa á Ítalíu, það var mikil
reynsla að æfa í dýpstu laug í
heimi,“ segir Sigríður, sem fór líka
til Tenerife í nóvember sl. til þess
að æfa.
Stjórn
„Fríköfun snýst um að hafa
stjórn á þeirri þörf að vilja anda,“
segir Sigríður og leggur áherslu á
að fræðslan skipti mjög miklu máli
því þetta sé hættuleg íþrótt ef ekki
er farið eftir reglum, þar sem
manninum sé ekki eðlilegt að vera
svona lengi í kafi. Íþróttina þurfi að
læra undir leiðsögn kennara og
þátttakendur taki bæði bókleg og
verkleg próf. Tekin séu alþjóðleg
réttindastig, allt eftir því hvert við-
komandi stefni með fríköfuninni.
Hún bendir á að líkaminn fari í það
ástand að hægja á allri starfsemi og
þá skipti öllu að bregðast rétt við.
Ekki sé auðvelt að kafa án búnaðar
niður á 40 metra dýpi. Þrýsting-
urinn sé gríðarlegur og allt í lík-
amanum pressist saman. „Maður
þarf að búa yfir gríðarlega mikilli
hugarstjórnun,“ segir hún og bætir
við að tímafrekasta dýfan hennar
niður á botn í Y-40 hafi tekið 1,58
mínútur. „Við keppum líka meðal
annars í því að liggja máttlaus á yf-
irborðinu og halda niðri í okkur
andanum, en alls eru sex við-
urkenndar keppnisgreinar í fríköf-
un.“
Nordic Open-fríköfunarmótið
verður haldið í Laugardalslaug síð-
ustu helgina í júlí. Sigríður segir að
auk erlendra keppenda komi dóm-
arar víðs vegar frá. „Það er mikil
sprenging í þessari grein, þetta er
vaxandi íþrótt.“
Íslendingar köfuðu
í dýpstu lauginni
Fríköfun ryður sér víða til rúms og fyrsta alþjóðlega
mótið hérlendis haldið í Laugardalslaug í júlí í sumar
Dýpsta laugin Y-40 er 40 m djúp og í þorpinu Montegrotto Terme á Ítalíu.
Fríköfun Íslendingar á miklu dýpi í lauginni á Ítalíu.
Í Silfru Sigríður Lárusdóttir fær mikið út úr köfun og æfir mikið.
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600 LIPUR GRIPUR
AVANT - ER TIL Í ALLT - ALLT ÁRIÐ UM KRING
Hvort sem þig vantar öflugt hjálpartæki í skógræktina, fyrir bæjarfélagið, til
meðhöndlunar á vörubrettum, í moksturinn eða snjó- og jarðvinnu, þá getur
þú verið viss um að AVANT leysir málið fyrir þig. Yfir 100 mismunandi aukatæki
eru fáanleg á vélina.
Raf- diesel- bensín- eða gasknúinn – þitt er valið.
Framleiddur í Finnlandi – fyrir norðlægar slóðir.