Morgunblaðið - 14.02.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2017
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Á síðasta stjórnarfundi Faxaflóa-
hafna voru kynntar nýjar tillögur
Yrkis arkitekta að umhverfi innsigl-
ingarvita við Sæbraut í Reykjavík.
Hafnarstjórn bókaði að hún óskaði
eftir því að umhverfis- og skipulags-
ráð borgarinnar lyki gerð deiliskipu-
lags vegna vitans sem fyrst.
Innsiglingarviti við Sæbraut
hefur verið lengi á teikniborðinu.
Innsiglingarvitinn nýi, sem
verður við ströndina rétt austan við
Höfða, kemur í stað vita í turni Sjó-
mannaskólans sem þjónaði hlutverk-
inu allt fram á síðustu ár, eða þar til
byggingar við Höfðatún fóru að
skyggja á hann. Þrátt fyrir að skip
og bátar séu í dag með fullkomnustu
siglingatæki þykir hafnaryfirvöldum
samt sem áður þörf á að hafa innsigl-
ingarvita til að vísa leiðina inn Eng-
eyjarsund. Þá hafi vitinn einnig þýð-
ingu fyrir umferð um Sundahöfn.
Áður en Sjómannaskólinn var
byggður var notaður viti við Vita-
stíg, skammt frá Vitatorgi.
Tillaga Yrkis arkitekta byggist
á því að vitinn verði með sama útliti
og innsiglingarvitarnir í Gömlu
höfninni, sem hafa litið eins út frá
byggingu hafnarinnar á árunum
1913 til 1917. Arkitektarnir skiluðu
tillögu í mars í fyrra. Þar var m.a.
gert ráð fyrir útsýnispalli sem nýt-
ast myndi sem áningarstaður við
göngustíginn meðfram Sæbraut.
Borgaryfirvöld vildu látlausari út-
færslu sem nú liggur fyrir.
Engu að síður er reiknað með
að margir ferðamenn muni stoppa
við vitann og virða fyrir sér fagurt
útsýnið yfir Flóann.
Áætlun sem gerð var í fyrra
gerði ráð fyrir að kostnaður við vit-
ann sjálfan og ljósbúnað yrði á bilinu
20 til 30 milljónir króna. Viðbót-
arkostnaður mundi verða við grjót-
vörn, fyllingar og frágang.
Látlausari útfærsla
á umhverfi ljósvitans
Ljósmynd/Yrki arkitektar
Nýi vitinn Útsýnið verður fagurt yfir Flóann. Eflaust verður þessi staður
vinsæll eins og Sólfarið hefur verið.
Hafnarstjórnin
vill að deiliskipu-
lagsvinnu ljúki
sem fyrst
Vertu upplýstur!
blattafram.is
MÖRG ÞEKKJUM VIÐ BÆÐI
ÞOLENDUR OG GERENDUR
KYNFERÐISOFBELDIS
PERSÓNULEGA.
ERUM VIÐ AÐ SAMÞYKKJA
ÞAÐ MEÐ ÞÖGNINNI?
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Við erum á facebook
Robell
stretcbuxur
kr. 7.900.-
Str. 36-52
7 litir
Hringbraut-Fjölmiðlar ehf. | Eiðistorgi 17 | 170 Seltjarnarnesi | www.hringbraut.is | Sími +354 561 3100
Missið ekki af áhugaverðum þætti um sögu og
starfsemi Veitna ohf. og viðtali við framkvæmdastjóra
auk sérfræðinga.
Hringbraut næst á rásum
7 (Síminn) og 25 (Vodafone)
ATVINNULÍFIÐ ÁdagskráHringbrautar
í kvöld kl. 20.00
Heimsókn til Veitna ohf
í þættinum Atvinnulífið sem er á dagskrá
Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld
• Gvendarbrunnar – eitt
helsta vatnstökusvæði á
höfuðborgarsvæðinu.
• Hvernig fáum við kalt vatn
úr krönunum?
• Umhverfismál, loftlagsmál
og vitund almennings.
• Fjölbreytt þjónusta Veitna
gagnvart fyrirtækjum og
einstaklingum.
Sveitarstjórn
Eyjafjarðar-
sveitar sam-
þykkti á fundi
sínum nýverið að
skoða möguleika
á kolefnisjöfnun
og upptöku kol-
efnisbókhalds
fyrir Eyjafjarð-
arsveit. Haft er eftir Jóni Stef-
ánssyni oddvita á vef sveitarfé-
lagsins að mikil umræða hafi verið
um losun kolefnis frá landbún-
aðarstarfsemi og heldur neikvæð í
garð bænda. „Ég tel ekki augljóst
að allir horfi á heildarmyndina í því
samhengi. Bændur eru víða mjög
atkvæðamiklir skógræktendur og
hafa margir hverjir plantað mikið á
jörðum sínum samhliða búrekstri
sínum, án þess að landsmenn hafi
veitt því sérstaka athygli. Þá má
ekki líta fram hjá því að hér í Eyja-
fjarðarsveit eru til að mynda stór
votlendissvæði sem skapa sterkt
mótvægi við losun kolefnis,“ segir
Jón og telur að bændur og landeig-
endur í Eyjafjarðarsveit hafi síst
legið á liði sínu við skógrækt og
uppgræðslu lands.
Skoða kolefnisjöfn-
un í Eyjafjarðarsveit
mbl.is
alltaf - allstaðar