Morgunblaðið - 14.02.2017, Qupperneq 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2017
Einvígið sem stefndi í á milli popp-
dívanna Adele og Beyoncé, eftir að
báðar voru tilnefndar til allra helstu
Grammy-verðlaunanna sem stóðu
þeim til boða, lauk með afgerandi
hætti þar sem Adele stóð uppi sem
óumdeildur sigurvegari þegar verð-
launin voru afhent í 59. skipti í Los
Angeles á sunnudagskvöldið.
Breska söngkonan Adele hreppti
alls fimm af helstu verðlaununum.
Plata hennar, 25, sem notið hefur
mikilla vinsælda úti um heimsbyggð-
ina, var þar á meðal valin sú besta og
þá var lagið „Hello“ sem er á plöt-
unni valið dægurlag ársins. Adele
hreppti sömu fimm verðlaun fyrir
fimm árum þegar plata hennar 21
kom út og er hún eini listamaðurinn
sem hefur tvisvar hirt öll aðalverð-
launin á Grammy-hátíðinni.
Beyoncé hreppti tvenn verðlaun,
önnur þegar plata hennar Lemonade
var valin sú besta í flokknum „urban
contemporary“ og myndbandsverð-
laun fyrir lagið Formation. Hún hafði
verið tilnefnd til alls níu verðlauna.
Alls voru veitt 84 verðlaun í fjöl-
mörgum og ólíkum flokkum fyrir all-
ar tegundir tónlistar. Flest þeirra
voru veitt við athöfn fyrr um daginn,
sem ekki var í beinni sjónvarps-
útsendingu. Þar á meðal voru verð-
launin fyrir klassíska tónlist en tvö-
faldur diskur með upptöku á upp-
færslu Óperunnar í Los Angeles á
Ghosts of Versailles, þar sem Krist-
inn Sigmundssonar var meðal söngv-
ara, hreppti tvenn verðlaun; besta
óperuupptakan og fyrir upptöku-
stjórn á klassískri tónlist.
Fannst Lemonade best
Við verðlaunaafhendinguna voru
augu flestra á þeim Adele og
Beyoncé, sem báðar tróðu upp og
þóttu, samkvæmt fjölmiðlum vestra,
standa sig afbragðs vel. En þegar
verðlaunin tóku að safnast upp hjá
Adele virtist hún ekkert of sátt við
það og þegar átti að afhenda henni
síðustu verðlaunin, fyrir plötu ársins,
þá sagði hún voteygð að hún gæti
ekki tekið við þeim – þótt hún gerði
það síðan að lokum.
„Mér finnst Lemonade vera plata
ársins og sem Beyoncé-aðdáandi þá
dó eitthvað inni í mér þegar platan
vann ekki,“ sagði Adele við blaða-
menn eftir verðlaunaafhendinguna.
Og í þakkarávarpi sagði Adele við
Beyoncé að hún dáði hana og vildi að
Beyoncé væri mamma hennar. Þar
vísaði Adele til áhrifamikils atriðis
hinnar, þar sem Beoncé hyllti móð-
urhlutverkið, með áherslu á vaxandi
kvið sinn en hún gengur með tvíbura
þeirra Jay Z. Fimm ára dóttir þeirra
hjóna dansaði kringum móður sína.
Bowie með fern verðlaun
Meðan David Bowie var á lífi
hreppti hann aðeins einu sinni
Grammy-verðlaun og það fyrir
myndband, auk þess sem hann hlaut
sérstök verðlaun árið 2006 fyrir
framlag sitt til tónlistarinnar. Nú bar
svo við að rúmu ári eftir andlátið
hlaut Bowie fern verðlaun, þar á
meðal fyrir besta rokklagið, „Black-
star“, og samnefnd plata var valin
besta framlagið í rokki.
Nýlátinna listamanna var minnst á
hátíðinni, Adele söng lag eftir
George Michael og Bruno Mars kom
fram í gervi Prince með hljómsveit-
inni The Time, sem iðulega lék með
Prince.
Chance the Rapper í sviðsljósi
Rapparinn sem kallar sig Chance
the Rapper hreppti þrenn verðlaun,
sem besti „nýi listamaðurinn“, fyrir
bestu nýju rapp-plötuna, Coloring
Book, og fyrir rapp-flutning. Chance
the Rapper þykir fulltrúi nýrra tíma
í tónlistarútgáfu þar sem hann gefur
efni sitt aðeins út á streymisveitum.
Bobby Rush, sem er 83 ára, var verð-
launaður fyrri bestu hefðbundnu
blúsplötuna.
Boðið var upp á ýmis tónlistar-
atriði við verðlaunaafhendinguna og
eins og búist var við voru sumir lista-
mennirnir póitískir og skutu misföst-
um skotum á nýkjörinn Bandaríkja-
forseta. Hvað harðastir í gagnrýn-
inni þóttu félagarnir í hipp-hopp--
sveitinni A Tribe Called Quest.
efi@mbl.is
Adele ótvíræður sigurvegari
Söngkonan Adele hreppti fimm
Grammy-verðlaun, Beyoncé tvenn
AFP
Sigursæl Söngkonan Adele með verðlaunagripina fimm. Hún varð fyrst
listamanna til að vinna þessi fimm helstu verðlaun í tvígang.
Nýliðinn Chance the Rapper fór
heim með þrjá verðlaunagripi.
Stefnumót Lady Gaga tróð upp
með rokkurunum í Metallicu.
AFP
Tvisvar tveir Beyoncé hampar grip-
unum en hún gengur með tvíbura.
Kristinn Sigmundsson var einn
söngvaranna í uppfærslu Los Ang-
eles-óperunnar á Ghosts of Ver-
sailles eftir tónskáldið John Cor-
igliano og textahöfundinn William
M. Hoffman, sem hreppti tvenn
Grammy-verðlaun; fyrir bestu óp-
eruupptökuna og bestu upptöku-
stjórn á klassískri plötu. James
Conlon var hljómsveitarstjóri og
meðal helstu söngvara í upptök-
unni eru Joshua Guerrero, Christ-
opher Maltman, Lucas Meachem,
Patricia Racette, Lucy Schaufer og
Guanqun Yu.
„Það er gaman að vera með í
þessu,“ segir Kristinn um
Grammy-verðlaunin. Óperan var
frumflutt á Metropilitan í New
York árið 1991 en Kristinn söng
hlutverk konungsins Loðvíks XVI. í
þessari afar fjölmennu uppfærslu í
Los Angeles fyrir tveimur árum.
„Þetta er fantalega flott
stykki,“ segir hann og það hafi
verið gaman að
vera í þessum
fjölmenna og
góða hópi.
„Sýningin var
rosalega góð og
það er verst að
hún hafi ekki
líka verið tekin
upp á vídeó. Ég
hef aldrei verið
í sýningu þar sem jafn margir hafa
verið á sviðinu í einu.“
Óperan fjallar um hirð Loðvíks
sem hefur öll verið hálshöggvin en
gengur aftur. Kristinn segir Maríu
Antoinette vera í aðalhlutverki,
henni leiðist að vera látin og kon-
ungurinn ákveður að létta henni
dauðann og fær Beaumarchais til
að gera óperu fyrir hana, sem síð-
an er sett upp innan óperunnar.
Upptakan frá uppfærslunni sem
hlaut Grammy-verðlaunin var gef-
in út á tveimur diskum í fyrra.
„Gaman að vera með í þessu“
KRISTINN SÖNG Í GRAMMY-VERÐLAUNAUPPFÆRSLU
Kristinn í hlutverki
Loðvíks XVI.
Ein af vinsælustu kvikmyndum síð-
ustu ára, Hringadróttinssaga –
Föruneyti hringsins, verður sýnd á
sérstökum viðhafnartónleikum í
Eldborgarsal Hörpu í sumar, með
sinfóníuhljómsveit og kórum.
Það verður fjölmenni á sviði Eld-
borgar 25. og 26. ágúst í sumar,
þegar 84 manna sinfóníuhljómsveit,
einsöngvarar og kórarnir Söng-
sveitin Fílharmónía, Barnakór
Kársnesskóla og Hljómeyki flytja
tónlistina við myndina, meðan hún
verður sýnd í fullri lengd. Alls
verða um 230 flytjendur á sviðinu.
Tónlistin við Föruneyti hringsins
er eftir eitt vinsælasta kvikmynda-
tónskáld samtímans, Howard
Shore. Tónlistin við kvikmyndina
hefur unnið til fjölda verðlauna og
hreppti þar á meðal Óskars-
verðlaunin.
Ævintýri Fróði Baggins, aðalpersóna Hringadróttinssögu, með hringinn eina.
Tónlistin í kvikmyndinni er eftir Howard Shore og verður flutt í Hörpu.
Hljómsveit, einsöngvarar og kórar
flytja tónlist Föruneytis hringsins
Fyrirlestraröð Landsbókasafns Íslands – háskóla-
bókasafns, Konfúsíusarstofnunar og KÍM – Kínversk-
íslenska menningarfélagsins– verður fram haldið í há-
deginu í dag, þriðjudag. Þá mun Arnþór Helgason, for-
maður KÍM og vináttusendiherra, segja frá starfsemi
félagsins. Fyrirlesturinn er í Þjóðarbókhlöðunni, hefst
kl. 12 og eru allir hjartanlega velkomnir. Fyrirlestr-
arnir eru annan hvern þriðjudag, út marsmánuð.
Arnþór Helgason segir frá
Arnþór
Helgason
Verð 3.995
Stærðir 20-30
SMÁRALIND
www.skornirthinir.is
Pollastígvél