Morgunblaðið - 14.02.2017, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 2017
Hinn fjölhæfi bandaríski söngvari Al
Jarreau lést í Los Angeles á sunnudag, 76
ára að aldri.
Jarreau naut á löngum ferli vinsælda í
mörgum geirum tónlistar. Hann seldi millj-
ónir hljómplatna og hreppti sex Grammy-
verðlaun, í þremur flokkum tónlistar:
djassi, poppi og R&B.
Ferill Jarreau hófst í djassinum þegar
hann var kominn vel á þrítugsaldur en
fljótlega eftir það tókst hann á við aðrar
gerðir tónlistar, þar sem hann blandaði
áhrifum frá blús, trúartónlist, djassi og
poppi á afar persónulegan hátt.
Bandaríski söngvarinn Al Jarreau látinn
Fjölhæfur Al Jarreau.
Bandaríska kvikmyndin La La Land
hlaut flest verðlaun, fimm talsins, á
verðlaunahátíð bresku kvikmynda-
og sjónvarpsakademíunnar, Bafta,
sem haldin var í Royal Albert Hall í
Lundúnum í fyrrakvöld. Það kom
nokkuð á óvart hversu vítt verðlaun-
in dreifðust, þ.e. á mun fleiri kvik-
myndir en búist var við, yfir 15 tals-
ins og að La La Land, sem sópaði að
sér Golden Globe-verðlaunum í jan-
úar sl., skyldi ekki hljóta fleiri þó að
fimm séu vissulega ágætisárangur.
La La Land hlaut verðlaun sem
kvikmynd ársins 2016, fyrir bestu
leikkonu í aðalhlutverki (Emmu
Stone), fyrir besta leikstjóra (Da-
mien Chazelle), fyrir bestu frum-
sömdu kvikmyndatónlist (Justin
Hurwitz) og bestu kvikmyndatöku
(Linus Sandgren). Jóhann Jóhanns-
son var meðal tilnefndra fyrir bestu
frumsömdu tónlist, fyrir Arrival.
Verðlaun sem besti leikari í aðal-
hlutverki hlaut hinn bandaríski
Casey Affleck fyrir leik sinn í Man-
chester by the Sea og bar þar sig-
urorð af Ryan Gosling sem margir
áttu von á að hlyti hnossið fyrir leik
sinn í La La Land. Fyrir besta leik í
aukahlutverki hlutu verðlaun banda-
ríska leikkonan Viola Davis fyrir
Fences og breski leikarinn Dev
Patel fyrir Lion. Verðlaun fyrir
framúrskarnandi breska kvikmynd
hlaut leikstjórinn Ken Loach fyrir I,
Daniel Blake og Kenneth Lonegran
hlaut verðlaun fyrir besta frum-
samda handritið, handrit sitt að
Manchester by the Sea. Luke
Davies hlaut verðlaun fyrir handrit
byggt á áður útgefnu efni, handrit
Lion.
Af öðrum helstu verðlaunum má
svo nefna að besta erlenda kvik-
myndin, þ.e. á öðru máli en ensku,
þótti hin ungverska Son of Saul,
besta heimildarmyndin þótti hin
bandaríska 13th og besta teikni-
myndin Kubo and the Two Strings,
einnig bandarísk. Verðlaun fyrir
bestu klippingu hlaut svo John Gil-
bert fyrir Hacksaw Ridge sem Mel
Gibson leikstýrði. helgisnaer@mbl.is
AFP
Ánægð Emma Stone með leikstjóra La La Land, Damien Chazelle.
La La Land hlaut fimm
Bestur Casey Affleck virðir fyrir sér Bafta-verðlaunagripinn sinn.
Bafta-verðlaun-
in dreifðust á
fjölda kvikmynda
Hljómsveitin Síðan skein sól, með
Helga Björnsson í broddi fylkingar,
hélt sína fyrstu tónleika í Hlaðvarp-
anum, þar sem nú er Tapasbarinn,
25. mars árið 1987, fyrir 30 árum.
Hljómsveitin ætlar að halda upp á
30 ára afmælið sama dag, 25. mars,
með tónleikum í Háskólabíói og
verður það gert með pomp og
prakt, eins og segir í tilkynningu.
Síðan skein sól var iðin við kol-
ann á sínum tíma, tónleikadagskrá-
in þétt og kom hún fram í félags-
miðstöðvum, skólum og hinum
ýmsu tónleikastöðum borgarinnar
og hún hélt árið 1989 í hringferð
um landið í svokallaðan kassatúr
þar sem var að mestu leikið óraf-
magnað. „Síðan tóku við ár með
mikilli spilamennsku bæði á böllum
og tónleikum og útgáfu mikils
fjölda af lögum sem þjóðin hefur
tekið ástfóstri við,“ segir í tilkynn-
ingu. Margir af þeim sem komu við
sögu á ferli hljómsveitarinnar taka
þátt í hátíðarhöldunum í Háskóla-
bíói, m.a. Ingólfur Sigurðsson, Haf-
þór Guðmundsson og Jakob Smári
Magnússon og góðir gestir munu
gleðja tónleikagesti. Af einstökum
smellum sveitarinnar má nefna
„Blautar varir“, „Geta pabbar ekki
grátið“, „Ég verð að fá að skjóta
þig“, „Halló ég elska þig“ og „Ég
stend á skýi“.
Miðasala hefst á tix.is í dag kl. 10.
30 ár Síðan skein sól heldur afmælistónleika í Háskólabíói, 25. mars nk.
Síðan skein sól fagnar 30 ára afmæli
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Úti að aka (Stóra svið)
Lau 4/3 kl. 20:00 Frums. Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Fös 24/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 5/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn
Fim 9/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn.
Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fim 30/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas.
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Fös 17/2 kl. 20:00 152. s Fös 24/2 kl. 20:00 156. s Mið 19/4 kl. 20:00 160. s
Lau 18/2 kl. 20:00 153. s Lau 25/2 kl. 20:00 157. s Lau 22/4 kl. 20:00 161. s
Sun 19/2 kl. 20:00 154. s Lau 8/4 kl. 20:00 158. s
Fim 23/2 kl. 20:00 155. s Þri 11/4 kl. 20:00 159. s
Glimmerbomban heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 19/2 kl. 13:00 33. s Sun 12/3 kl. 13:00 36. s Lau 1/4 kl. 13:00 39. s
Lau 25/2 kl. 13:00 34. s Sun 19/3 kl. 13:00 37. s Lau 8/4 kl. 13:00 40. s
Sun 5/3 kl. 13:00 35. s Sun 26/3 kl. 13:00 38. s
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Fórn (Allt húsið)
Fim 16/3 kl. 19:00 Frums. Mið 29/3 kl. 19:00 3. sýn Sun 9/4 kl. 19:00 5 sýn
Fim 23/3 kl. 19:00 2. sýn Sun 2/4 kl. 19:00 4. sýn
Sköpunarkrafturinn ræður ríkjum um allt leikhúsið
Illska (Litla sviðið)
Fim 2/3 kl. 20:00 Fös 10/3 kl. 20:00
Fös 3/3 kl. 20:00 Lau 11/3 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Lau 18/2 kl. 13:00 5. sýn Sun 19/2 kl. 13:00 6. sýn Sun 19/3 kl. 13:00 Táknmáls.
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Salka Valka (Stóra svið)
Fim 16/2 kl. 20:00 17.sýn Sun 26/2 kl. 20:00 18.sýn
Ein ástsælasta saga þjóðarinnar í leikstjórn verðlaunaleikstjórans Yönu Ross
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Þri 21/3 kl. 10:00 Mið 22/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 11:30
Þri 21/3 kl. 11:30 Fim 23/3 kl. 13:00
Þri 21/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 10:00
Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í.
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
GOTT ÚRVAL
AF UMGJÖRÐUM
Verið velkomin til
okkar í sjónmælingu