Morgunblaðið - 14.02.2017, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 14. FEBRÚAR 45. DAGUR ÁRSINS 2017
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
1. Beyonce ögraði þyngdarlögmálinu
2. Berast enn ábendingar í máli Birnu
3. Stjórnleysi í fangelsinu
4. Adele braut Grammy-verðlaunin
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Leikarinn Guðmundur Ingi Þor-
valdsson mun fara með hlutverk í
þriðju þáttaröð sænsku glæpaþátt-
anna Gåsmamman, eða Gæsa-
mamman. Þættirnir hafa verið sýndir
á Stöð 2 og fer sænska leikkonan
Alexandra Rapaport með aðal-
hlutverkið í þeim, hlutverk Sonju Ek,
fjögurra barna móður sem stýrir eit-
urlyfjahring. „Hún er að glíma við alls
konar vandamál sem móðir og eig-
inkona, auk þess að stýra eitur-
lyfjasölu,“ segir Guðmundur um
gæsamömmuna Sonju. „Ég mun leika
Íslending sem er að gera sig gildandi
á fíkniefnamarkaðnum í Stokkhólmi,
reyna að taka yfir markaðinn og verð
samkeppnisaðili hennar,“ segir Guð-
mundur um hlutverk sitt í þáttunum.
Tökur hefjast í maí og segist Guð-
mundur þurfa að leika í fyrsta sinn á
sænsku. „Þetta er fínasta hlutverk,
flottur vondikall,“ segir hann en
þáttaröðin verður sýnd í Svíþjóð
næsta vetur. Guðmundur lék fyrir jól í
fyrra í spænskri auglýsingu fyrir nýtt
vörumerki Coca-Cola, Royal Bliss, og
þurfti að leika á spænsku sem hann
segist ekki kunna stakt orð í.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Leikur í þriðju þátta-
röð Gæsamömmu
Kvartett píanóleikarans Sunnu
Gunnlaugsdóttur leikur í kvöld á
djasskvöldi Kex hostels og hefjast
tónleikarnir kl. 20.30.
Haukur Gröndal leikur
á saxófón, Þorgrímur
Jónsson á bassa og
Scott McLemore á
trommur. Flutt
verður blanda af
frumsömdu efni
og djass-
standördum.
Kvartett Sunnu
leikur á djasskvöldi
Á miðvikudag Fremur hæg breytileg átt. Skýjað og víða rigning en
slydda til fjalla. Hiti 1 til 6 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Samfelldari úrkoma sunnan og vestan til í
dag en var í gær. Styttir upp norðvestan til í kvöld. Hiti 1 til 7 stig,
en vægt frost í innsveitum norðaustan til.
VEÐUR
Kári Árnason, landsliðs-
maður í knattspyrnu, er
kominn í fámennan hóp Ís-
lendinga sem hafa náð að
skora mörk í deildakeppni í
sex löndum. Kári náði þess-
um áfanga á Kýpur á dög-
unum en það er sjötta land-
ið þar sem hann spilar með
félagsliði á ferlinum. Aðeins
þrír íslenskir knatt-
spyrnumenn hafa skorað
mörk í deildum fleiri landa
en Kári. »2-3
Kári hefur skorað
í sex löndum
Elín Jóna Þorsteinsdóttir hefur farið
á kostum í marki handknattleiksliðs
Hauka í síðustu leikjum og segir ým-
islegt liggja þar að baki. „Ég stunda
aukaæfingar og hef ég verið að vinna
með veikleika mína og styrkleika. Nú
hef ég haft meiri tíma til æfinga eft-
ir að ég lauk stúdentsprófi fyrir jól-
in. Eftir áramót hefur aukatíminn
verið meiri og hann hef ég nýtt til
æfinga. Það er að
skila sér.“
»4
Aukaæfingar Elínar
Jónu eru að skila sér
Craig Pedersen, þjálfari karlalands-
liðs Íslands í körfubolta, segir Ísland
betur í stakk búið nú en áður til að
eiga við bestu lið Evrópu á EM. Nú sé
færri spurningum ósvarað en þegar
liðið fór á EM í Berlín 2015 og lands-
liðshópurinn hafi blandast betur.
Pedersen hefur í nógu að snúast þar
til hann kallar landsliðið saman 20.
júlí til lokaundirbúnings. »2
Fleiri tilbúnir að taka af
skarið en í Berlín
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ragnar Ágúst Bjarnason, fyrrver-
andi sjómaður, fæddist á Fálkagötu
15 í Reykjavík fyrir rúmum 85 árum
og hann á enn heima á 15. Þó að
hann hafi brugðið sér af bæ og búið í
næsta nágrenni í um fimm ár er
hann ókrýndur sýslumaður Fálka-
götu og þótt víðar væri leitað.
„Þetta hefur verið yndislegur
tími,“ segir Ragnar, sem man eftir
sér frá því um 1935. „Hér hjálpuðust
allir að og við höfðum alltaf nóg að
borða.“ Fjölskyldan bjó í um 65 til 70
fermetra tveggja hæða kolakyntu
timburhúsi, foreldrarnir Bjarni
Bjarnason og Guðrún Kristjáns-
dóttir með þrjá syni og eina dóttur,
sem andaðist nokkurra vikna gömul.
„Við höfðum líka hænsni og vorum
með hænsnakofa og góðan kart-
öflugarð á lóðinni,“ segir Ragnar.
Bjarni var sjómaður og Ragnar
byrjaði ungur að fara með pabba sín-
um á netaveiðar út á Skerjafjörð.
„Það gerðu margir út báta frá
Grímsstaðafjörunni um þetta leyti,“
rifjar Ragnar upp. Hann munstraði
sig fyrst á skip fyrir tæplega 70 ár-
um, byrjaði á Ingólfi Arnarsyni og
var síðan á fiskiskipum og flutn-
ingaskipum í rúm 40 ár.
Herinn og fótboltinn
Bræðurnir Haukur og Ragnar
ætluðu ungir að árum að byrja að
æfa fótbolta og fóru á Melavöllinn í
þeim tilgangi að skrá sig í Val um
1938 eða skömmu áður en Bretar
hernámu Ísland 1940. „Þá voru Frí-
mann og Grímar þekktustu nöfnin í
Val og við vildum tilheyra sama liði.
Valdbeiting kom í veg fyrir það.
Framararnir á vellinum sögðu að að-
eins Fram kæmi til greina og því
gengum við í Fram, en það voru
nokkrir Holtarar í Fram á þessum
árum.“
Ragnar ber enska hernum vel sög-
una. „Það hefði verið gaman að eiga
góða myndavél og smella á það sem
fyrir augu bar á Melunum. Það var
skrýtin sjón að sjá þá allt í einu
tjalda í næsta nágrenni einn morg-
uninn, skammt frá Loftskeytastöð-
inni. En þetta voru mjög góðir strák-
ar og sýndu okkur ekkert annað en
kurteisi.“ Hann segir samt að her-
námið hafi haft mikil áhrif á sig.
„Það bitnaði á lærdómnum. Þetta
voru stórkostlegir tímar fyrir unga
stráka og ég seldi þeim Daily Post,
íslenskt fréttablað á ensku. Þannig
komst ég inn í kampinn og fékk
súkkulaði og appelsínur, eitthvað
sem maður sá annars ekki nema þá
helst á jólum.“
Faðir Ragnars dó 1949 og móðir
hans 1981. „Þegar blokkin við hliðina
var byggð 1964 sagði mamma hingað
og ekki lengra, vildi hafa sinn garð
áfram, og var samþykkt að hún fengi
að vera í húsinu alla ævi. Það var sótt
mjög hart að henni að selja en hún
var ekki á því. Við byggðum svo átta
íbúða hús á lóðinni okkar við blokk-
ina 1987 og ég var fyrsti íbúinn.“
Í gegnum tíðina hafa verið nokkr-
ar verslanir við Fálkagötu. Þar má
nefna Gunnlaugsbúð, sem síðar varð
Verslun Árna Einarssonar eða
Árnamagasín eins og hún var kölluð,
Ragnarsbúð, fiskbúð, mjólkurbúð og
Pöntunarfélagið. Nú er þar aðeins
Björnsbakarí.
Ragnar hætti á sjónum 1991. „Ég
var orðinn þreyttur,“ segir hann, en
bætir við að hann hafi alltaf nóg að
gera. „Ég dunda mér mikið í frí-
merkjasafninu,“ heldur hann áfram.
„Mér leiðist aldrei, á ekkert nema
góðar minningar, mér hefur alltaf
liðið vel hérna, nágrannarnir eru
yndislegir, börnin í garðinum minna
mig á þegar ég var lítill að leika mér
við púturnar og heilsan hefur verið
góð. Það er fyrir öllu.“
Sýslumaður allra sýslumanna
Ragnar Ágúst
hefur búið á sama
stað í um 80 ár
Morgunblaðið/RAX
Garðurinn Ragnar Ágúst Bjarnason bak við húsið. Hernámið Ragnar með vini úr hernum í garðinum.