Barnablaðið - 26.02.2017, Síða 4
BARNABLAÐIÐ4
Hverjir skipa Þjóðlagasveitina Þulu?
• Dagur Bjarnason: Er að verða 16 ára og er í
Waldorfskólanum í Lækjarbotnum. Ég spila á
kontrabassa og syng smá. Ég hef æft á bassann
í sex ár.
• Elvar Bjarnason: Ég er líka 16 ára
eins og bróðir minn og er í Waldorf-
skólanum. Ég spila á selló og
hef æft hérna í tónlistarskól-
anum í 6 ár.
• Anna Margrét Jónudóttir:
Ég er 17 ára og er í Fjöl-
braut í Garðabæ. Ég er
fiðluleikari, syng og dansa.
Ég hef æft í þónokkur ár.
• Kristjana Ólöf Árnadóttir:
15 ára í Álfhólsskóla. Ég hef æft
örugglega í sjö ár á þverflautu og
syng smá.
• Guðrún Vala Matthíasdóttir: Er að verða 16 og
er í Salaskóla. Ég er líka á þverflautu og syng og
dansa eins og við flest. Ég hef æft í einhver sex
ár á flautuna.
• Jónína Marteinsdóttir: Er að verða 16 og er í
Salaskóla. Ég spila á þverflautu og er búin að
æfa jafnlengi og stelpurnar.
• Hekla Martinsdóttir Kollmar: Er að verða 15
og er í Kárnesskóla. Ég spila á fliðlu og syng. Ég
hef æft í átta ár.
• Sóley Lúsía Jónsdóttir: Er að verða 16 ára og
er í Waldorfskóla. Ég leik á fiðlu en syng ekki
mikið. En ég hef æft á fiðluna í rúmlega 10 ár.
Hvernig sveit er þetta?
Við erum semsagt átta sem skipum Þjóð-
lagasveitina Þulu. Við erum á aldrinum 15-17
ára og eigum það öll sameiginlegt að vera nem-
endur í Tónlistarskóla Kópavogs.
Hún Eydís Franzdóttir, sem er kennari hér við
skólann, setti í rauninni saman þennan sam-
spilshóp. Hún er stjórnandinn okkar.
Okkur finnst þetta svo skemmti-
legt að við erum ennþá að
spila saman. Við erum
auðvitað alltaf að þróast
sem hópur og verðum
betri og betri.
Hvað hafið þið verið starfandi lengi?
Það eru fimm ár síðan sveitin var stofnuð og
meðlimir hafa verið mislengi með.
Og af hverju Þula?
Sko, við erum eiginlega bara nýbúin að nefna
sveitina þessu nafni. Við vorum þjóðlagahópur
Tónlistarskóla Kópavogs. Það var dálítið langt
og óhentugt.
Anna kom með nafnið Þula eftir að hafa setið í
íslenskutíma við mikla leit að nafni sem byrjar
á Þ.
GAMAN
AÐ HALDA Í
GAMLAR HEFÐIR
Þjóðlagasveitin Þula er skipuð átta fjölhæfum
tónlistarnemendum á aldrinum 15-17 ára úr
Tónlistarskóla Kópavogs. Sveitin hefur verið
starfandi í fimm ár og býður upp á skemmtilega
efnisskrá byggða á þekktum íslenskum þjóð-
lögum. Meðlimirnir leika á hljóðfæri, syngja og
jafnvel dansa. Sveitin vekur athygli hvar sem
hún kemur enda leika þjóðbúningarnir stórt
hlutverk í bland við hinn sterka íslenska tónlist-
ararf sem felst í þjóðlögunum.
HEKLA
ANNA
SÓLEY
ELVAR
„Þjóð-
lagatónlist er
skemmtileg fyrir
alla aldurshópa, e
kki
bara fyrir gamalt f
ólk
eins og einhverjir
halda.
Þjóðlagasveitin
í öllu sínu veldi.