Morgunblaðið - 28.04.2017, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 8. A P R Í L 2 0 1 7
Stofnað 1913 99. tölublað 105. árgangur
MÆÐGUR
TÖFRA FRAM
LISTAVERK
FÓTBOLTINN
Á AÐ VERA
FYRIR ALLA
SAMRUNI MYNDAR
OG TÓNLISTAR
HEILLAÐI HANN
32 SÍÐNA BLAÐAUKI ATLI ÖRVARSSON 38BÓKVERK 13
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Tugmilljarða framkvæmdir eru að
hefjast á Kársnesi í Kópavogi við
uppbyggingu íbúða og atvinnuhús-
næðis. Áformað er að byggja brú yfir
Fossvog sem mun tengja Kársnesið
við Vatnsmýrina í Reykjavík.
Ferðaþjónustufyrirtæki sjá mikil
tækifæri í uppbyggingu gistiaðstöðu
á þessum tveimur svæðum. Deili-
skipulagi fyrir tvær lóðir á Vestur-
vör á Kársnesi hefur verið breytt og
hafa tvær lóðir undir starfsemi
WOW Air verið stækkaðar. Heimilt
verður að byggja 12 þúsund fer-
metra húsnæði á hvorri lóð og fer
önnur undir höfuðstöðvar flug-
félagsins en hin undir hótel.
Vestan við fyrirhugað hótel er
annað hótel, svonefnt Spa hótel, í
undirbúningi. Samkvæmt lauslegum
drögum verða þar m.a. baðlaugar.
Í Vatnsmýri eru hugmyndir um
500 herbergja hótel sunnan við
knatthús Vals. Hefur Brynjar Harð-
arson, framkvæmdastjóri Vals-
manna hf, áætlað að innan fárra ára
verði 1.500 hótelherbergi við Hlíðar-
enda. Það yrði viðbót um tæplega
1.300 herbergi við þau 220 sem eru á
Icelandair Hótel Reykjavík Natura.
Faxaflóasvæðið nærri uppselt
Theodóra S. Þorsteinsdóttir, for-
maður skipulagsráðs Kópavogs, seg-
ir Faxaflóasvæðið að verða uppselt
fyrir ferðaþjónustu. Kársnes bjóði
upp á tækifæri fyrir hafnatengda
starfsemi. Hún segir mörg fyrirtæki
hafa spurt um lóðir á Kársnesi. Þar á
meðal hafi nokkrir aðilar spurst fyrir
um lóðir undir hótel.
MFerðaþjónustan veðjar á … »10
Áforma tvö hótel á Kársnesi
WOW Air fær stærri lóðir undir höfuðstöðvar og hótel Fjárfestar undirbúa
annað hótel Yfir þúsund hótelherbergi í pípunum á Kársnesi og í Vatnsmýri
Teikning/Skipulagsyfirvöld í Kópavogi
Kársnes Fyrirhuguð stórhýsi WOW Air yrðu skáhallt á móti Nauthólsvík.
Eiðistorgið var í hátíðarbúningi og iðaði af lífi í gær er
þar fór fram hluti barnamenningarhátíðar á Seltjarn-
arnesi. Um 100 börn af Nesinu skemmtu gestum, sáu
um skreytingar eða lögðu hátíðinni lið á annan hátt.
Eins og sjá má á myndinni dönsuðu krakkarnir með til-
þrifum, en eldra fólkið notaði tækifærið og tók myndir
á símana sína. Barnamenningarhátíðin fór einnig fram
í Bókasafninu og Galleríi Gróttu
Dansað með tilþrifum á Eiðistorgi
Morgunblaðið/Eggert
100 börn skemmtu gestum á barnamenningarhátíð á Seltjarnarnesi
Jón Björnsson,
forstjóri Festar
hf. sem á m.a.
Krónuna og
ELKO, telur að
menn séu að of-
túlka áhrifin af
verslun Costco á
markaðinn.
Jón bendir á, í
samtali við Morg-
unblaðið í dag,
að íslenski smásölumarkaðurinn
velti um 400 milljörðum króna á
ári. Bestu verslanir Costco velti 10
til 12 milljörðum króna á ári. „Segj-
um að þessi búð í Garðabæ verði ein
af bestu verslunum Costco, þá
myndi hún velta um 2,5% af ís-
lenska smásölumarkaðnum. Er það
einhver heimsendir? Nei... en eig-
um við ekki að leyfa þeim að opna,
áður en við förum á taugum?“ segir
Jón. »6
Eru að oftúlka áhrif-
in af verslun Costco
Jón
Björnsson Nú þegar hafa 79 umsagnir borist
nefndasviði Alþingis um þingsálykt-
unartillögu fjármálaráðherra um
fjármálaáætlun fyrir árin 2018 til
2022. Flestar eru neikvæðar.
Allmargar umsagnir hafa borist
frá stofnunum ríkisins sem telja að
það vanti upp á fjárveitingar til
reksturs þeirra. Meðal þeirra er
Landspítalinn sem telur sig vanta 10
milljarða til viðbótar á næsta ári.
Samtök sveitarfélaga á höfuðborg-
arsvæðinu benda á að ekki er gert
ráð fyrir framlagi ríkisins til borg-
arlínu og telur þurfa 25-30 milljarða.
„Það er nógu gljúp mýrin sem
stjórnendur skólanna standa í og
reyna að fóta sig. Þessu er ekki á
það bætandi,“ segir skólameistari
Flensborgarskólans í Hafnarfirði
þegar hann mótmælir undirfjár-
mögnun framhaldsskólanna.
Einn smellur ræður úrslitum
Flestar eru umsagnirnar þó frá
ferðaþjónustufyrirtækjum, ein-
staklingum og samtökum þar sem
sterklega er varað við hækkun virð-
isaukaskatts á ferðaþjónustu. „Við
þessir litlu aðilar úti á landi byggjum
alla okkar afkomu á því að viðskipta-
vinirnir ákveði í fyrsta lagi að koma
til Íslands í staðinn fyrir einhvern
annan áfangastað. Það er kannski
aðeins einn smellur ferðamannsins á
internetinu, sem ákveður hvar hann
er tilbúinn að verja sparifé sínu, sem
sker úr um hvort við lifum af sem at-
vinnugrein eða ekki,“ skrifar eigandi
lítils ferðaþjónustufyrirtækis á Sel-
fossi. helgi@mbl.is
79 nei-
kvæðar
umsagnir
Ferðaþjónustan
mótmælir skatti
Velta Haga mun væntanlega
aukast um rúmlega 50% við kaup á
Olís og Lyfju. Upplýst var um kaup
á Olís, sem veltir um 30 millj-
örðum, á miðvikudag og Lyfju,
sem veltir um 9 milljörðum, í nóv-
ember. Gengi hlutabréfa Haga
hækkaði um 6% í gær við tíðindin
um kaup á Olís. Hagar kaupa
hlutafé Olís á 9,2 milljarða króna
og greiða um 57% af kaupverðinu
með eigin hlutum. Seljendur Olís,
Samherji og FISK Seafood, munu
eignast samanlagt um 8,8% í Hög-
um, hvor um sig mun fara með
4,4%. Fyrirtækin komast þá á lista
yfir tíu stærstu eigendur Haga.
Samkvæmt hluthafalista er nú ein-
ungis einn einkafjárfestir á meðal
20 stærstu, félag á vegum Ingi-
bjargar Pálmadóttur á 1,4%. »18
Velta Haga mun
aukast um 50%
Hafnarfjarðarbær hefur ákveðið
að gera samstarfssamning við fé-
lagið Villiketti um að koma villi-
köttum í bænum til hjálpar. Sú
hjálp felst meðal annars í því að
fanga og gelda læður til að halda
stærð villikattastofnsins stöðugri.
Um er að ræða tilraunasamning til
eins árs en Hafnarfjörður er fyrsta
sveitarfélagið sem gerir slíkan
samning við Villiketti.
„Í gegnum tíðina hefur villikött-
unum verið lógað ef það hefur verið
orðið of mikið af þeim, sú aðferð er
umdeild í dag og því leitum við
nýrra leiða,“ segir Helga Ingólfs-
dóttir, formaður umhverfis- og
framkvæmdaráðs Hafnarfjarð-
arbæjar. »16
Stemma stigu við
offjölgun villikatta
Morgunblaðið/Ómar
Köttur Kettir setja svip á bæjarlífið.