Morgunblaðið - 28.04.2017, Page 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017
18. apríl lengdist framleiðslutími
vegabréfa í 14 virka daga og ef frí-
dagar eru á tímabilinu þá lengist
tíminn sem þeim nemur. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Helga
Harðarsyni hjá ökuskirteina- og
vegabréfadeild Sýslumannsins í
Kópavogi lengist tíminn alltaf á
sumrin vegna aukins álags en það
sé hins vegar Þjóðskrá sem ákveði
tímann. „Þjóðskrá gefur út vega-
bréfin og þeir stjórna þessum tíma.
Sýslumaðurinn er í Kópavogi er
bara umsóknarstaður.“
Aukið álag í kringum páska
Helgi segir að álagið í vegabréfa-
umsóknum aukist jafnt og þétt á
hverju ári í kringum páska. „Álagið
byrjar svona í byrjun apríl en það
er mjög rólegt á veturna.“
Afgreiðslutími getur verið allt að
17 dagar ef ákveðið er að fá vega-
bréf sent heim í pósti. Hægt er að
fá flýtimeðferð á endurnýjun vega-
bréfa og segir Helgi að slíkar um-
sóknir séu afgreiddar á innan við
sólarhring eða samdægurs.
Í mars sl. voru 6.584 íslensk
vegabréf gefin út. Til samanburðar
voru 6.616 vegabréf gefin út í mars
2016. Fækkar því útgefnum vega-
bréfum um 0,5% milli ára.
mhj@mbl.is
Afgreiðslu-
tími vega-
bréfa lengist
569 6900 08:00–16:00www.ils.is
Almennar íbúðir
Opið fyrir umsóknir
um stofnframlög,
fyrri úthlutun 2017
Markmið laga um almennar íbúðir er að bæta hús-
næðisöryggi fjölskyldna og einstaklinga, sem eru
undir tekju– og eignamörkum við upphaf leigu,
með því að auka aðgengi að öruggu og viðeigandi
leiguhúsnæði og stuðla að því að húsnæðiskostn-
aður sé í samræmi við greiðslugetu leigjenda.
Eingöngu úthlutað til nýbygginga
Í þessari úthlutun verður eingöngu úthlutað til
byggingar nýrra íbúða. Er það gert til að mæta
brýnni þörf fyrir litlar og hagkvæmar íbúðir og
í ljósi þess framboðsskorts sem nú er á fasteigna-
markaði. Sérstök áhersla er einnig lögð á íbúðir
á svæðum þar sem þörf er á leiguíbúðum fyrir
leigjendur undir tekju– og eignamörkum.
Auk þess verður lögð áhersla á:
Hagkvæmar íbúðir hvað stærð og herbergja-
fjölda varðar sbr. viðmiðunarstærðir
Hagkvæmar aðferðir við íbúðabyggingar í því
skyni að lækka byggingarkostnað
Hugvitsamlegar lausnir og góða hönnun
Íbúðir sem uppfylla þarfir íbúa á hverju svæði
Íbúðir sem uppfylla mismunandi þarfir ólíkra hópa
Að stuðla að fjölbreyttri samsetningu íbúa og
félagslegri blöndun
Viðmiðunarstærðir
Við úthlutun verður horft til þess að íbúðir séu að
jafnaði ekki stærri en eftirfarandi tafla segir til um:
Hámarksstærð
Fjöldi herbergja m.v. herbergjafjölda
Einstaklingsíbúð 50 m²
2ja herbergja íbúð 60 m²
3ja herbergja íbúð 80 m²
4ra herbergja íbúð 95 m²
5 herbergja íbúð 110 m²
Fjárhæð til úthlutunar í fyrri úthlutun ársins 2017
er að hámarki 1.400 milljónir kr.
Nauðsynlegt er að sækja jafnframt um stofnfram-
lag hjá því sveitarfélagi þar sem viðkomandi íbúð
er staðsett, og er samþykki sveitarfélagsins eitt af
skilyrðum fyrir veitingu stofnframlags ríksins.
Umsóknum skal skila inn á rafrænu formi á
heimasíðu sjóðsins. Umsóknarfrestur er til og með
30. maí 2017. Umsókn sem berst eftir að umsóknar-
frestur rennur út verður ekki tekin til umfjöllunar.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
Íbúðalánasjóðs, www.ils.is.
Auglýst er eftir umsóknum um stofn-
framlög ríkisins til byggingar eða kaupa
á almennum íbúðum skv. lögum nr.
52/2016 og reglugerð nr. 555/2016.
Umsóknarfrestur:
30. maí 2017
•
•
•
•
•
•
Verkalýðsfélag Akraness (VLFA)
er með þrjá lausa kjarasamninga
þessa dagana og eru kjaraviðræð-
ur komnar í gang. Um er að ræða
samninga starfsmanna í járn-
blendiverksmiðju Elkem Ísland á
Grundartanga, samning starfs-
manna Klafa, sem sér um út- og
uppskipanir á Grundartanga og
samning starfsmanna síldar-
bræðslu HB Granda á Akranesi.
Samningafundur fór fram í vik-
unni með Samtökum atvinnulífsins
og forsvarsmönnum Elkem og seg-
ir í frétt á vefsíðu VLFA að félagið
hafi sent skýr skilaboð um að
gerður verði sambærilegur samn-
ingur og félagið gerði við Norðurál
árið 2015
„Það kom fram á þessum fundi
að það er ófrávíkjanleg krafa af
hálfu VLFA og trúnaðarmanna að
svokölluð launavísitölutenging
verði tekin upp í þessum kjara-
samningi með sambærilegum
hætti og gert var í kjarasamn-
ingum Norðuráls á Grundartanga.
Frá þessari kröfu verður ekki vik-
ið,“ segir í fréttinni.
Gagnrýnir verkalýðsfélagið að
ekki sé tekið mið af umsömdum
kjörum í stóriðjusamningum í kís-
ilverunum sem er verið að reisa í
Helguvík og á Húsavík. Þar eigi að
miða við laun á almenna vinnu-
markaðinum þar sem laun og kjör
séu mun lakari en í gildandi stór-
iðjusamningum á Grundartanga.
omfr@mbl.is
Kjaraviðræður VLFA komnar í gang
Segja ófrávíkjanlega kröfu að launavísitölutenging verði í kjarasamningi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Elkem Kjaraviðræður eru hafnar.
Fataframleiðand-
inn 66°Norður
segist ætla að
láta sérsauma
nýja húfu fyrir
bandaríska ferða-
blaðamanninn
Godfrey Hall sem
týndi húfu sinni á
dögunum.
Bréf frá Hall
birtist í Velvak-
anda Morgunblaðsins í gær. Þar
sagðist hann hafa keypt húfu, sem
seld var undir nafninu Katla, í ferð
til Íslands fyrir nokkrum árum og
húfan hafi síðan orðið einskonar
vörumerki hans. Húfan týndist en
þegar Hall ætlaði að kaupa sams-
konar húfu komst hann að því að hún
er ekki lengur framleidd. Bað hann
lesendur Morgunblaðsins ásjár ef
þeir kynnu að eiga samskonar húfu
sem þeir gætu séð af.
Fannar Páll Aðalsteinsson hjá
66°Norður segir í tilkynningu til
Morgunblaðsins, að búið sé að finna
sniðið af húfunni og þegar sé byrjað
að sauma hana fyrir Hall. Muni
fyrirtækið hafa samband við hann
þegar húfan verður tilbúin.
Ætlar að
sérsauma
Kötlu-húfu
Godfrey Hall með
húfuna góðu.
Verkalýðsráð
Sjálfstæðis-
flokksins býður í
vöfflukaffi í til-
efni af hátíðis-
degi verkalýðsins
mánudaginn 1.
maí. Viðburður-
inn verður hald-
inn í Valhöll,
Háaleitisbraut 1,
og hefst kl. 15:00.
Kristinn Karl Brynjarsson, vara-
formaður verkalýðsráðs, býður
gesti velkomna og að því loknu flyt-
ur Kjartan Magnússon borgar-
fulltrúi stutt ávarp. Allir eru vel-
komnir í vöfflukaffið og hvetur
verkalýðsráðið stuðningsfólk Sjálf-
stæðisflokksins sérstaklega til að
mæta og eiga góða stund saman og
fagna deginum.
Vöfflukaffi í
Valhöll 1. maí
Kjartan
Magnússon