Morgunblaðið - 28.04.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 28.04.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017 LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 Pilot síðan 1937 Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, segir Kársnesið hafa margt að bjóða fyrir ferðaþjónustu. „Við höfum verið að leika okkur með orðið geðprýðishöfn. Við höf- um hugsað það þannig að hún sé áfram fyrir smábáta, en einnig fyr- ir skemmtibáta, hvort sem það eru skútur eða vélknúnir bátar, og þá hugsanlega þjónustu sem tengist afþreyingu við höfnina. Til dæmis hvalaskoðun, sjóstöng eða ein- hverju slíku. Höfnin er vel sett þar sem hún snýr á móti suðri og nýtur sólar allan daginn og langt fram á kvöld. Það hleypir auknu lífi í versl- un og þjónustu, bæði þá sem snýr að ferðamanninum beint, eins og veitingahús, og aðra þjónustu sem þarna verður. Við sjáum fyrir okk- ur bakarí, fiskbúð, hárgreiðslu- stofur, blómabúð og aðra þjónustu sem nýtist íbúum á Kársnesi. Það mun síðan styrkja þessa mynd heilmikið að þarna rísa höfuðstöðvar WOW Air ásamt hót- eli. Svo erum við að horfa á vest- asta hlutann á Kársnesi með það í huga að koma þar upp baðlauga- svæði, eða Spa hóteli, sem byggja mun á opnum svæðum og afþrey- ingu sem íbúar Kársness og lands- ins alls hefðu aðgang að,“ segir Ár- mann. Hann segir hugmyndina kallast á við Nauthólsvík að ein- hverju marki. Svæðin muni vinna mikið saman þegar brúin kemur. Kallist á við Nauthólsvík Teikning/Björn Skaptason/Atelier arkitektar Gjörbreytt útlit Fyrirhugað er að reisa fjölda glæsilegra íbúða við sjóinn. BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Hönnun nýrrar brúar yfir Fossvog gæti hafist á næsta ári ef áætlanir ganga eftir. Brúin mun tengja saman Kópavog og Reykjavík. Birgir Hlyn- ur Sigurðsson, skipulagsstjóri Kópa- vogs, reiknar með því að í sumar verði hafist handa við að kynna breytingu á skipulagi beggja sveitar- félaga svo brúin geti orðið að veru- leika. „Samhliða skipulagsvinnunni verð- ur unnið umhverfismat vegna þess- ara áætlana og búnir til ákveðnir hönnunarskilmálar fyrir mannvirkið, sem brúin vissulega verður. Ef ég man rétt yrði þetta ein lengsta göngu- og hjólatenging milli sveitar- félaga í norðanverðri Evrópu, eða allt að 270 metrar,“ segir hann. „Stefnt er að því að almennings- vagnar aki yfir brúna ásamt gang- andi og hjólandi umferð. Helst vildi ég hafa þetta þannig að almennings- vagninn væri á aðskildri akbraut. Hún þyrfti ekki að vera tvíbreið fyrir vagninn heldur þyrfti aðeins að vera lína yfir fyrir vagninn. Vegna flug- brautarinnar getur brúin aldrei verið falleg bogabrú eins og við sjáum víða erlendis. Við erum bundin af ákveð- inni hæð.“ Birgir Hlynur segir að fyrir 2-3 ár- um hafi verið áætlað að kostnaður við brúna yrði 1,2 til 1,3 milljarðar. Samtals 1.200 íbúðir Kársnesið mun taka stakkaskipt- um á næstu árum. Fyrirhugað er að byggja samtals um 1.200 íbúðir í bryggjuhverfi við Fossvog og á nokkrum reitum á Kársnesi í ná- grenni gamla hafnarsvæðisins. Þá er áformað að byggja tugi þúsunda fer- metra af atvinnuhúsnæði. Raunar er þegar búið að byggja, eða byrjað að byggja, um þriðjung íbúða í nýja bryggjuhverfinu við Naustavör. Birgir Hlynur segir verkefnið eiga sér langan aðdraganda. Í byrjun ald- arinnar hafi verið hugmyndir um haf- skipahöfn í Kársnesi. Meðal annars vegna mótmæla íbúa hafi þær hug- myndir verið settar til hliðar og lagt upp með blandaða byggð af íbúðum og atvinnuhúsnæði. Hann segir fyrirhugaða brú yfir Fossvog lykilatriði í uppbyggingu á hafnarsvæði Kársness. Brúin muni stórbæta samgöngur og mynda nýjan samgönguás um Bakkabraut og norður til miðborgar Reykjavíkur. Árið 2015 var þróunarsvæðið á Kársnesi valið til þátttöku í norrænni nýsköpunarsamkeppni. Greint var frá vinningstillögunni í júní í fyrra- sumar. Hún heitir Spot On Kársnes og er vinningstillagan höfð til hlið- sjónar við gerð deiliskipulags á hafn- arsvæðinu. Það hefur verið í mótun. Menningarhús í skoðun Birgir Hlynur segir hugmyndir hafa komið fram um náttúrugripa- safn á Kársnesi. Til skoðunar sé að byggja hús fyrir menningarstofnun. Fram hefur komið að flugfélagið WOW Air hefur fengið úthlutaðar lóðir undir nýjar höfuðstöðvar á Vesturvör 38a og 38b. Samkvæmt til- lögu að breyttu deiliskipulagi er lóðin Vesturvör 38a stækkuð úr 5.000 fer- metrum í 8.900 fermetra og bygging- armagnið aukið úr 3.000 fermetrum í 12.000 fermetra. Þá er byggingar- reitur færður til norðurs. Gert er ráð fyrir 6.800 fermetra niðurgrafinni bílageymslu og verða þar 200 af 240 bílastæðum á lóðinni. Þá er gert ráð fyrir samskonar breytingum á lóðinni Vesturvör 38b og verður bygging- armagn þar líka 12.000 fermetrar. Hámarks mænishæð bygginga í Vesturvör 38b verður 27 metrar en 15 metrar í Vesturvör 38a. Að sögn Birgis Hlyns áformar WOW Air að byggja höfuðstöðvar og hótel á svæðinu. Vestast á athafna- svæði Kársness eru jafnframt uppi hugmyndir um ferðatengda þjónustu og svokallað baðlaugasvæði í nátt- úrulegri umgjörð, með búnings- aðstöðu ásamt þjónustubyggingum, veitingaaðstöðu og íþróttamiðstöð. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins eru þar hugmyndir um „Spa hótel“. Dregið úr umferðarhraða Birgir Hlynur segir að gripið verði til margvíslegra mótvægisaðgerða vegna aukinnar byggðar vestast á Kársnesi. Umferðarhraða verði hald- ið innan marka og almennings- samgöngur efldar. Markmiðið sé að hvetja fólk til að breyta ferðavenjum sínum þannig að það dragi úr vægi einkabílsins í ferðamynstri sínu og nýti sér bættar almenningssam- göngur á svæðinu. Hugmyndir séu uppi um að breyta götumynd Kárs- nesbrautar, Kópavogsbrautar og Vesturvarar, með því að akreinar verða mjókkaðar og gangstéttar breikkaðar. Slíkt dragi úr ökuhraða og liðki til fyrir gangandi og hjólandi umferð. Fleiri aðgerðir séu í undir- búningi og til skoðunar. Samkvæmt vinningstillögunni, Spot on Kársnes, yrði sundlaug á miðri brúnni yfir Fossvog. Birgir Hlynur segir að nú sé ekki gengið út frá því að hafa þar sundlaug. Hug- myndin sé þó spennandi. Hann segir hugmyndir vinnings- tillögunnar um tvær bíllausar eyjar, sem tengja myndu Kársnesið og Bessastaðanes allrar athygli verðar. „Þær gætu orðið hluti af mikilli sam- göngubót fyrir gangandi og hjólandi og jafnvel almenningsvagna.“ Teikning/Spot on Kársnes Bilin brúuð Hér má sjá áformaða brú yfir Fossvog og brýr yfir fyrirhugaðar bíllausar eyjar. Teikning/Skipulagsyfirvöld í Kópavogi Nýtt Kársnes Á miðri mynd er búið að teikna drög að menningarhúsum við sjóinn. Ferðaþjónustan veðjar á Kársnes  WOW Air byggir höfuðstöðvar og hótel  Fjárfestar undirbúa baðlaugasvæði og nýtt Spa hótel  Uppbyggingin er á við þorp úti á landi  Stórhýsi undir menningarstarfsemi eru á teikniborðinu Bryggjuhverfi 400 íbúðir Fyrirhugaðar höfuðstöðvar WOWAir Brú yfir Fossvog Fyrirhugað Spa hótelFyrirhugað hótel WOWAir Hafnarbraut 121 130 íbúðir Hafnarbraut 9,13 og 15 117 íbúðir Aðrir reitir í undirbúningi 550 íbúðir Heimild: Skipulagsyfirvöld í Kópavogi Hluti af fyrirhugaðri uppbyggingu á Kársnesi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.