Morgunblaðið - 28.04.2017, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Hugmyndin kviknaði íframhaldi af skólaverk-efni sem ég vann í áfang-anum pappírsvinna og
bókagerð. Þar skoðum við bókverk
og heildarhugmyndina í kringum
það, lærum saumaskapinn í bókum,
brot á pappír og vinnum kápur og
klæðningar með þrykki og fleira
skemmtilegu. Ég gerði Íslands-
myndir sem eru mónóþrykk af ís-
lenskum blómum, blóðbergi, íslensk-
um rósum, sóleyjum og fleiri
blómum. Þetta voru stórar myndir
og mér datt í hug að kannski væri
hægt að búa til eitthvað almennilegt
úr þeim. Þegar ég svo sýndi mömmu
þessar myndir ræddum við það í
hálfgerðu gríni að gaman væri að
nota þessar myndir til að búa til lítið
bókverk,“ segir Viktoría Jóhanns-
dóttir sem er á hönnunarbraut í
Tækniskólanum, en skólaverkefnið
hennar endaði sem fimmtíu hand-
gerðar ljóðabækur í tilefni af fimm-
tíu ára afmæli móður hennar, Mar-
grétar Lóu Jónsdóttur ljóðskálds.
Fögnuður við verklok
„Það vildi svo vel til að ég átti til
nafn á afmælisbók: Fimmtíu sinnum
í kringum sólina, en það nafn fæddist
þegar ég var í göngutúr með hundinn
minn hjá hafinu. Þetta var nokkrum
vikum fyrir fimmtugsafmælið svo ég
hætti alveg að hugsa um þetta, því
nóg var að gera við að undirbúa af-
mælið.
En þegar Viktoría sýndi mér
mónóþrykkin sín komumst við sam-
an að þessari niðurstöðu að búa til af-
mælisbók,“ segir Margrét Lóa og
bætir við að sér finnist skemmtilegt
að bókin hafi orðið til á undan ljóð-
unum.
„Ég skreyti í raun myndirnar
með splunkunýjum afmælisljóðum.
Þetta eru því ljóðskreyttar myndir,
en oftast er þetta á hinn veginn,
myndskreytt ljóð.“
Mæðgurnar höfðu ekki nema
eina viku frá því að hugmyndin
kviknaði til að gera fimmtíu afmæl-
Mæðgur töfruðu
saman listaverk
Mæðgurnar Margrét Lóa og Viktoría höfðu aðeins eina viku til að gera fimmtíu
afmælisbækur, í tilefni af hálfrar aldar afmæli þeirrar fyrrnefndu. Það var mikill
sprettur og svefnlausar nætur, en allt tókst að lokum. Mamma ljóðskreytti myndir
dóttur, las upp úr handgerðri bókinni í afmælinu og gaf gestum bækurnar.
Bókverk Viktoría gerði myndir og saumaði, Margrét orti ljóðin.
„Ég er ekki að rétta upp hönd“ er nýtt ljóðverk
eftir svikaskáldin Fríðu Ísberg, Melkorku Ólafs-
dóttur, Sunnu Dís Másdóttur, Ragnheiði Hörpu
Leifsdóttur, Þóru Hjörleifsdóttur og Þórdísi
Helgadóttur.
„Ég er ekki að rétta upp hönd“ kemur út í dag
28. apríl og verður útgáfunni fagnað í Mengi, Óð-
insgötu 2, milli kl 17 og 19. Þar munu skáldin lesa
upp úr verkinu, boðið verður upp á léttar veit-
ingar og áhugasömum gefst kostur á að fjárfesta
í eintaki af bókinni. Einnig má tryggja sér ljóð-
verkið fyrirfram á svikaskald.com og sækja bók í
hófið. Allir velkomnir
Upplestur í Mengi
Svikaskáld Konurnar sex sem tilheyra hópnum og ætla að lesa upp í kvöld.
Svikaskáldin koma fram í dag
Einleikurinn Gísli á Uppsölum verður
sýndur á lofti Gamla bankans á Sel-
fossi, Austurvegi 21, í kvöld kl. 20.
Sýningin er samin af þeim Elfari Loga
Hannessyni og Þresti Leó Gunnars-
syni. Elfar hefur samið og leikið í
fjölda leikverka, má þar nefna verð-
launaleikinn Gísla Súrsson og Gretti.
Boðið verður upp á umræður um sýn-
inguna og efni hennar að sýningu
lokinni. Hægt er að tryggja sér miða í
síma 894 1275 eða senda tölvupóst á
netfangið komedia@komedia.is
Húsið verður opnað kl. 19:30, og
vert er að taka fram að gengið er inn í
húsið að norðanverðu.
Endilega …
… kíkið á ein-
leik um Gísla
Líkir Elfar í hlutverki sínu sem Gísli.
Hingað er kominn til lands norski
samtímatónlistarkvartettinn Tøyen
Fil og Klafferi. Sveitin hélt sína fyrstu
tónleika í gær en í kvöld, föstudag,
verða aðrir tónleikar þeirra í Mengi í
Reykjavík kl. 21, og á morgun, laug-
ardag, verða þriðju tónleikarnir í
Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi kl.
14:30. Á efnisskránni er ný og nýleg
tónlist frá Íslandi og Noregi.
Sveitin hefur í mörg ár verið í sam-
starfi við tónskáldin Hafdísi Bjarna-
dóttur og Guðmund Stein Gunnars-
son, en nýtt verk eftir Guðmund
Stein verður frumflutt í þessari Ís-
landsheimsókn kvartettsins.
Kvartettinn Tøyen Fil og Klafferi
(TFK) er skipaður þeim Kristine Tjø-
gersen, klarinettleikara, Hanne Rek-
dal, flautu- og fagottleikara, Eira
Bjørnstad Foss, fiðluleikara og Inga
Grytås Byrkjeland, sellóleikara. Með-
limir kvartettsins eru virkir í nútíma-
tónlistarsenunni í Ósló og Þránd-
heimi og spila reglulega með ýmsum
hljómsveitum, m.a. asamisimasa,
Trondheim Jazz Orchestra, Polygon,
Ensemble neoN og Oslo Sinfonietta.
Norskur samtímatónlistarkvartett með tónleika á Íslandi
Frumflytja nýtt verk eftir
Guðmund Stein Gunnarsson
Eira Björnstad Foss, Kristine Tjøgersen, Hanne Rekdal, Inga Grytås Byrkjeland.
Ármúla 24 - s. 585 2800
www.rafkaup.is
Opið virka daga 9-18,
laugardaga 11-16