Morgunblaðið - 28.04.2017, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Hafnarfjarðarbær hefur ákveðið að
gera samning við félagið Villiketti
um að stemma stigu við fjölgun villi-
katta í bænum. Félagið kemur villi-
köttum til hjálpar með skipulegum
aðgerðum og stemmir stigu við of-
fjölgun þeirra m.a. með því að gelda
læður. Um er að ræða tilraunasamn-
ing til eins árs en Hafnarfjörður er
fyrsta sveitarfélagið sem gerir slíkan
samning við Villiketti.
„Við erum búin að vera að skoða
þetta svolítið lengi. Í Hafnarfirði er
mikil hefð fyrir því að sinna villikött-
um og hér hafa verið grasrótarsam-
tök, fleiri en ein, og sjálfboðaliðar
sem hafa gert það í gegnum árin. At-
vinnustarfsemin við höfnina hefur
dregið villiketti að í gegnum tíðina
en þeir halda til í hrauninu í kringum
bæinn og hjálpa til við að halda rott-
um og músum í lágmarki sem okkur
finnst mjög gott,“ segir Helga Ing-
ólfsdóttir, formaður umhverfis-
og framkvæmdaráðs Hafnar-
fjarðarbæjar.
Lítið kvartað yfir köttum
„Með því að gelda kettina
og sleppa aftur út í sitt nátt-
úrulega umhverfi er dregið úr
fjölgun þeirra og stofnin-
um haldið í jafnvægi. Í
gegnum tíðina hefur villiköttunum
verið lógað ef það hefur verið orðið of
mikið af þeim, sú aðferð er umdeild í
dag og því leitum við nýrra leiða,“
segir Helga.
„Það er ekki tekið á þeirri aðferð
sem Villikettir beita í lögum en við
ákváðum að láta kettina njóta vafans
því við teljum að þetta sé mannúðleg
og góð aðferð sem þessi samtök eru
að nota og styðja við þau með til-
raunasamningi til eins árs,“ segir
Helga. Hafnfirðingar kvarta ekki
mikið yfir þeim villiköttum sem eiga
heima í bænum, að sögn Helgu. „En
það var mikið kvartað yfir því þegar
einhver tók það upp hjá sjálfum sér í
fyrra að lóga villiköttum sem héldu
til í einni gjótu í bænum. Samfélagið
hérna vill að þessum málleysingjum
sé sinnt. Það eru nokkur svæði í
bænum sem eru heimili villikatta og
það eru yfirleitt einhverjir sem
hugsa um þá.“
Morgunblaðið/Golli
Villiköttur Í hrauninu í Hafnarfirði þrífst samfélag villikatta sem setur svip á bæinn og bæjarbúar hugsa um.
Hefð fyrir því að
sinna villiköttunum
Hafnarfjarðarbær gerir samstarfssamning við Villiketti
Samþykkt var á fundi umhverfis- og framkvæmdaráðs Hafnarfjarðar í
fyrradag að gera samstarfssamning við Villiketti þrátt fyrir álit lögmanns
bæjarins um að samningurinn væri ekki í samræmi við lög. Sú aðferð sem
Villikettir nota við dýravernd er ekki skilgreind í lögum um velferð dýra,
þ.e. að villtu dýri sem er handsamað sé sleppt aftur frjálsu. Í lögum um
velferð dýra er gert ráð fyrir að þegar dýr hefur verið handsamað sé
sveitarfélagi heimilt að ráðstafa því til nýrra eigenda, selja það
eða aflífa. „Lögin gera ekki ráð fyrir að sveitarfélögum sé heim-
ilt að sleppa dýrinu aftur frjálsu,“ segir í áliti lögmannsins.
Í svari Villikatta við álitinu segir að lög um velferð dýra séu
gölluð að því leyti að þau geri ekki ráð fyrir tilvist villikatta en
félagið telur að hægt sé að útfæra þjónustusamning við sveit-
arfélagið sem rúmast innan laga um velferð dýra með því að fé-
lagið teljist umráðamenn þeirra katta sem það fangar, geldir,
einstaklingsmerkir og sleppir aftur.
Lög um dýravelferð gölluð
EKKI HEIMILT AÐ SLEPPA
Helga Ingólfsdóttir
Sími 555 2992 og 698 7999
Hátt hlutfall Omega 3 fitusýra
Gott fyrir:
• Maga- og þarmastarfsemi
• Hjarta og æðar
• Ónæmiskerfið
• Kolesterol
• Liðina
Læknar mæla með selaolíunni
Selaolían fæst í: Apótekum, Þín verslun Seljabraut, heilsuhúsum, Fjarðarkaupum, Fiskbúðinni Trönuhrauni, Hafrúnu og Melabúð
Óblönduð
– meiri virkni Selaolía
Ég heyrði fyrst um Selaolíuna í gegnum kunningja minn en
konan hans hafði lengi glímt við það sama og ég, - stirðleika
í öllum liðum og tilheyrandi verki. Reynsla hennar var það góð
að ég ákvað að prufa. Fyrstu tvo mánuðina fann ég litlar
breytingar, en eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið
niður stiga á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað
áður. Ein góð „aukaverkun“ fylgdi í kjölfarið, ég var
með frekar þurra húð um allan líkamann, en eftir
að ég fór að nota Selaolíuna hvarf sá þurrkur og
húð mín varð silkimjúk. Ég hef nú notað
Selaolíuna í eitt og hálft ár og þakka henni
bætta líðan og heilsu.
Guðfinna Sigurgeirsdóttir.
„Eftir þrjá mánuði var ég farin að geta gengið niður stiga
á vinnustað mínum sem ég hafði ekki getað áður.“
Guðrún Erlingsdóttir
gue32@hi.is
Borgarráð Reykjavíkur samþykkti
á fundi sínum í gær nýja nálgun í
heimaþjónustu við eldri borgara.
Fram kemur í fréttatilkynningu frá
Reykjavíkurborg að gerð verður til-
raun með endurhæfingu í heima-
húsum í Breiðholti, Árbæ, Graf-
arholti og Grafarvogi. Faglegt starf
verði aukið til muna og ef vel takist
til sé stefnt að því að veita íbúum í
öðrum hverfum Reykjavíkur sömu
þjónustu.
Stofnuð verða endurhæfingar-
teymi sem í verða iðjuþjálfi, sjúkra-
þjálfari, hjúkrunarfræðingur,
sjúkraliðar og félagsliðar. Hlutverk
endurhæfingarteymanna verður að
veita eldra fólki markvissa þjálfun
til að vinna að verkefnum daglegs
lífs til að virkja og styrkja fólk til
sjálfbjargar svo það geti bjargað
sér sjálft og verið virkir þátttak-
endur í eigin lífi eins lengi og kost-
ur er.
Endurhæfing heima hefur gefist
vel á Norðurlöndum. Norðmenn
hafa boðið upp á endurhæfingu
heima fyrir aldraða frá árinu 2000.
Endurhæfing í
heimahúsum
Ný nálgun í þjónustu
fyrir eldri borgara
Morgunblaðið/Ómar Óskarsson
Eldri borgarar Ný nálgun í heima-
þjónustu, endurhæfing heima.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Ákæruvaldið telur frásögn Thomas
Møller Olsen, sem grunaður er um
að hafa ráðið Birnu Brjánsdóttur
bana að morgni sunnudagsins 15.
janúar sl. vera í hróplegu ósamræmi
við sönnunargögn í málinu. Þetta
kemur fram í gæsluvarðhalds-
úrskurði héraðsdóms Reykjaness
sem kveðinn var upp í síðustu viku.
Olsen hefur lítið tjáð sig frá fyrstu
yfirheyrslu yfir honum þann 18. jan-
úar en þá hélt hann því fram að hann
hefði tekið tvær stúlkur upp í bíla-
leigubíl en ekki eina. Hann segist í
sömu yfirheyrslu ekki geta skýrt
hvers vegna ökuskirteini Birnu
fannst um borð í skipinu Polar Na-
noq og fingraför hans á skírteininu.
Í gæsluvarðhaldsúrskurði 2. mars
kemur fram að við sömu yfirheyrslu,
18. janúar, sagðist Olsen hafa lagt
sig í bifreiðinni á bílastæði hjá
Tjarnarvöllum í Hafnarfirði áður en
hann kom aftur að Hafnarfjarðar-
höfn um klukkan 11 en bifreiðin sést
aldrei í mynd á öryggismyndavélum
nálægt bílastæðinu. Hins vegar
liggja fyrir gögn um að hann keypti
hreinsivörur kl. 10:30 í Krónunni í
Hafnarfirði þennan morgun. Hann
sést síðan á öryggismyndavélum
þrífa aftursætið í bílnum milli kl.
12:46 og 13:25.
Sterk sönnungargögn lögreglu
Í gæsluvarðhaldsúrskurðinum frá
25. apríl kemur fram að mikið af
blóði úr Birnu hafi fundist í bíla-
leigubílnum, á úlpu Olsens og á öðr-
um fötum hans. Þekjufrumur úr Ol-
sen og Birnu fundust á skóm hennar
við höfnina.
Olsen sést á eftirlitsmyndavél við
höfnina stöðva bílinn og færa sig aft-
ur í farþegasætið þar sem hann
dvaldi í 50 mínútur. Telur ákæru-
valdið að hann hafi á þeim tíma sleg-
ið Birnu ítrekað í andlitið, tekið hana
kverkataki og hert kröftuglega að
hálsi hennar áður en henni var varp-
að í sjóinn á óþekktum stað.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sakamaður Thomas Møller Olsen
verður í gæsluvarðhaldi til 23. maí.
Hróplegt ósamræmi
í frásögn Olsens
Gögn styðja ekki framburðinn