Morgunblaðið - 28.04.2017, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Smásölufyrirtækið Hagar er að
taka umtalsverðum breytingum á
skömmum tíma. Með fyrirhuguð-
um kaupum á Olís, sem upplýst
var um á miðvikudag, og Lyfju,
sem greint var frá í nóvember,
mun velta fyrirtækisins aukast um
rúmlega 50%. Á sama tíma hefur
það að miklu leyti dregið sig úr
fataverslun og fækkað verslunar-
fermetrum umtalsvert.
Í kjölfar tilkynningar Haga um
kaupin á Olís hækkaði gengi hluta-
bréfa félagsins um 5,8% í Kaup-
höllinni í gær.
Aukin samkeppni
Aðspurður segir Finnur Árna-
son, forstjóri Haga, að sér þyki
óviðeigandi að ræða hvaða tæki-
færi hann sjái í rekstri Olís og
Lyfju fyrr en fyrirtækið hafi feng-
ið forræði yfir þeim.
Í ViðskiptaMogganum í gær var
haft eftir Finni að samkeppnisum-
hverfið hefði breyst mikið, mun
stærri fyrirtæki væru að koma inn
á markaðinn og það kallaði á
aukna stærðarhagkvæmni. Vert er
að nefna að það styttist í opnun
Costco og H&M.
Jóhanna Katrín Pálsdóttir, sér-
fræðingur hjá greiningardeild Ís-
landsbanka, segir að sér lítist
ágætlega á kaupin á fyrirtækjun-
um tveimur og sjái ýmis samlegð-
aráhrif. „Hagar eru vel fjármagn-
að fyrirtæki sem ræður vel við
kaupin. Hagar yrðu sömuleiðis
góður birgir fyrir verslanir Olís,
einkum úti á landi, meðal annars
vegna hagkvæmari flutninga og
hagstæðara verðs í innkaupum.
Mögulega munu Lyfja og Hagar
deila verslunarrými,“ segir Jó-
hanna Katrín.
Áttu Lyfju og Skeljung
Elvar Möller, sérfræðingur hjá
greiningardeild Arion banka, rifjar
upp að Hagar hafi til skamms tíma
á árunum fyrir hrun átt Lyfju og
Skeljung. Hann bendir á að ekki
komi á óvart að samþætting sé að
eiga sér stað á dagvöru- og elds-
neytismarkaði. Costco muni selja
eldsneyti og Festi, sem meðal ann-
ars á Krónuna, hafi haft áhuga á
að hefja eldsneytissölu.
Hagar kaupa hlutafé Olís á 9,2
milljarða króna. Endanlegt kaup-
verð getur þó tekið breytingum
vegna afkomu Olís á árinu 2017.
Hagar greiða um 57% af kaupverð-
inu með eigin hlutum. Seljendur
Olís, Samherji og FISK seafood,
munu því eignast samanlagt um
8,8% í Högum, hvor um sig mun
fara með 4,4%. Segir Elvar að það
muni fleyta þeim á lista yfir tíu
stærstu hluthafa fyrirtækisins.
Samkvæmt hluthafalista er ein-
ungis einn einkafjárfestir á meðal
20 stærstu. Það er SM Invest-
ments í eigu Ingibjargar Pálma-
dóttur sem fer með 1,37% hlut.
Fataverslunum lokað
Eins og fyrr segir hafa Hagar
dregið sig að mestu út úr fata-
verslun, en fyrirtækið rekur enn
Karen Millen, Zöru og Útilíf. Finn-
ur segir að Topshop muni loka í
maí í Smáralind og í ágúst í
Kringlunni. Debenhams var lokað í
janúar. Áður hefur fyrirtækið lok-
að All Saints, Day, Coast, Dorothy
Perkins, Evans og Warehouse.
Jóhanna Katrín segir að fata-
verslun eigi undir högg að sækja
vegna smæðar markaðarins og geti
t.d. erlendar netverslanir oft boðið
betra verð en fæst hér á landi.
Velta Haga eykst um
rúm 50% við yfirtökur
Velta og andvirði Lyfju Olís og Haga
Velta og heildarandvirði fyrirtækjanna í milljörðum króna
Velta fyrirtækjanna Heildarvirði fyrirtækjanna
Hagar
Olís
Lyfja
9* 6,7
31** 15,1
78*** 57,8
*Árið 2015
**Árið 2016
***Feb 2016/feb 2015
Hagar hafa á skömmum tíma keypt Lyfju og Olís og lokað tískuverslunum
2017 og heildar-
eignir bankans
100 milljörðum
króna.
Sigurður Atli
segir í tilkynn-
ingu að það sé
ánægjulegt hve
vel hafi tekist til
að búa til nýjan
íslenskan banka
og að þróun hans
hefi tekist einstaklega vel. „Skýr
markmið varpa ljósi á tækifærin.
Núna er rétti tíminn fyrir mig til að
gera breytingar.“
Sigurður Atli Jónsson mun á næst-
unni láta af störfum sem forstjóri
Kviku banka, en hann hefur verið
forstjóri fjárfestingabankans og for-
vera hans, MP banka, í tæplega 6 ár.
Í tilkynningu segir að hann hafi far-
sællega leitt uppbyggingu bankans,
þar á meðal samruna MP banka og
Straums árið 2015.
Greint var frá því í gær að hagn-
aður MP banka á fyrsta ársfjórðungi
hafi verið 397 milljónir króna, en til
samanburðar nam hagnaður 176
milljónum króna á fyrsta fjórðungi
síðasta árs. Eigið fé Kviku nam tæp-
lega 7,5 milljörðum króna í lok mars
Forstjóri Kviku
lætur af störfum
Sigurður Atli
Jónsson
● Gengi hlutabréfa í Símanum hækkaði
um 4,8% í Kauphöllinni í gær í kjölfar
tilkynningar um afkomu félagsins á
fyrsta ársfjóðungi. Hagnaður nam 774
milljónum á fjórðungnum og jókst um
150% á milli ára. Sala dróst lítið eitt
saman milli tímabila og nam 6,6 millj-
örðum. Rekstrarhagnaður dróst einnig
saman og nam tæpum 2,3 milljörðum.
Gengi hlutabréfa N1 lækkaði hins
vegar um 3,0% í gær þrátt fyrir að fé-
lagið hefði tilkynnt um 88,2% aukningu
hagnaðar í fyrsta ársfjórðungi en hann
nam 225 milljónum króna. EBITDA
hækkaði um 39,4% frá sama fjórðungi í
fyrra. Gekk því að hluta til baka hækkun
á gengi félagsins í kjölfar jákvæðrar af-
komuviðvörunar í lok síðustu viku.
Síminn hækkaði og N1
lækkaði eftir tilkynningar
28. apríl 2017
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 106.38 106.88 106.63
Sterlingspund 137.23 137.89 137.56
Kanadadalur 78.32 78.78 78.55
Dönsk króna 15.573 15.665 15.619
Norsk króna 12.424 12.498 12.461
Sænsk króna 12.014 12.084 12.049
Svissn. franki 107.03 107.63 107.33
Japanskt jen 0.9548 0.9604 0.9576
SDR 145.58 146.44 146.01
Evra 115.88 116.52 116.2
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 146.275
Hrávöruverð
Gull 1264.3 ($/únsa)
Ál 1957.0 ($/tonn) LME
Hráolía 51.81 ($/fatið) Brent
● Advania hefur gert kauptilboð í allt
hlutafé sænska upplýsingatækni-
fyrirtækisinsCaperio fyrir andvirði um
2ja milljarða króna. Við kaupin mun
velta Advania í Svíþjóð tvöfaldast og
eru þau í samræmi við stefnu Advania
um aukinn vöxt á Norðurlöndum, að því
er segir í tilkynningu.
Caperio er skráð í kauphöllinni í
Stokkhólmi. Fyrirtækið selur tölvubún-
að og hugbúnaðarleyfi, en sinnir auk
þess rekstri upplýsingatæknikerfa og
skýjalausna og ráðgjafar í upplýsinga-
tækni. Hjá félaginu starfa um 120
manns en tekjur félagsins voru tæplega
12 milljarðar króna í fyrra og EBITDA
um 400 milljónir króna.
Advania yfirtekur
sænskt fyrirtæki
STUTT
● Hagnaður Nýherja á fyrsta ársfjórð-
ungi nam 71 milljón króna, en hann var
38 milljónir króna á sama fjórðungi í
fyrra. Sala á vöru og þjónustu nam 4,0
milljörðum króna sem er 20% tekju-
vöxtur á milli ára.
Framlegð nam 976 milljónum króna,
eða 24,4%, en framlegðin var 26,6%
fyrstu þrjá mánuðina í fyrra.
Hagnaður fyrir fjármagnsliði og af-
skriftir, EBITDA, nam 242 milljónum
króna, eða 6%. Til samanburðar var
EBITDA 180 milljónir, eða 5,4%, á sama
ársfjórðungi í fyrra.
Eiginfjárhlutfall Nýherja var 39,7% í
lok mars, samanborið við 33,7% um
áramótin. Fram kemur í afkomutilkynn-
ingu Nýherja til Kauphallar að vaxtaber-
andi langtímaskuldir voru greiddar nið-
ur um 300 milljónir á ársfjórðungnum.
Tekjur Nýherja jukust
um 20% á milli ára
DAÐI FREYR FROSTASON*
Mig langar til
að gera við tölvur
en ekki stela og
lenda í fangelsi
Ungt fólk í fátækrahverfum Kampala,
höfuðborgar Úganda, leiðist
unnvörpum út í vændi og glæpi til
þess eins að lifa af. Með markvissri
aðstoð og iðngreinanámskeiðum
öðlast þau þekkingu og sjálfstæði
til að sjá fyrir sér á annan hátt.
* Drengurinn á myndinni tekurþátt í verkefni Hjálparstarfskirkjunnar í Kampala.
Nafnið er ekki hans rétta nafn
en textinn lýsir raunveru-
leikanum sem hann og fjöldi
annarra ungmenna býr þar við.
Hringdu í 907 2003 og gefðu 2500 kr.
eða upphæð að eigin vali á framlag.is
GEFUM ÞEIM SÉNS!
● Hagnaður Sjóvár nam 1.100 millj-
ónum króna á fyrsta ársfjórðungi, en til
samanburðar var hann 423 milljónir
króna í sama fjórðungi í fyrra. Hagn-
aður nam 136 milljónum króna af vá-
tryggingastarfsemi og 1.024 milljónum
króna af fjárfestingarstarfsemi.
Eigin iðgjöld tímabilsins námu 3,7
milljörðum króna en eigin tjón hljóðuðu
upp á 2,9 milljarða. Tjónahlutfall var
76,6% í samanburði við 75,1% fyrir ári.
Í afkomutilkynningu til Kauphallar
kemur fram í máli Hermanns Björns-
sonar, forstjóra, að merkjanlegur bati
sé á grunnrekstri Sjóvár frá sama tíma
og í fyrra, þar sem samsett hlutfall hafi
lækkað úr 106,9% í 103,5%. Sú afkoma
geti samt sem áður ekki talist ásætt-
anleg til lengri tíma og stefnt sé að því
að koma hlutfallinu í 97-99% í lok árs.
Hagnaður Sjóvár millj-
arður á fyrsta fjórðungi