Morgunblaðið - 28.04.2017, Síða 20
FRÉTTASKÝRING
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Landslag franskra stjórnmála hefur
orðið nánast óþekkjanlegt á ein-
ungis einum áratug, ef horft er til
niðurstaðna fyrri umferðarinnar í
síðustu þremur forsetakosningum,
árin 2007, 2012 og 2017. Þjóðfylking
Marine Le Pen hefur rétt rúmlega
tvöfaldað fylgi sitt frá því að Jean-
Marie Le Pen, faðir Marine, náði
10,44% fylgi árið 2007, á meðan
Sósíalistaflokkurinn, annar af
tveimur helstu valdaflokkum
Frakklands, hefur hrunið um hér-
umbil tuttugu prósentustig frá
kosningunum 2007 og 2012.
Valdaflokkarnir láta undan
Í kosningunum 2007 fengu
franskir hægrimenn, sem þá buðu
fram undir merkjum UMP, og Sósí-
alistaflokkurinn samtals um 57%
atkvæða í fyrri umferð kosning-
anna.
Svipað var uppi á teningunum ár-
ið 2012, en þá fengu frambjóðendur
UMP og Sósíalistaflokksins samtals
um 55% atkvæða í fyrri umferðinni.
Úrslit síðasta sunnudags, þar
sem flokkarnir fengu samtals rétt
rúmlega fjórðung atkvæða, eru því
talsvert áfall fyrir þessa tvo flokka,
en þetta er í fyrsta sinn í sögu
fimmta lýðveldisins sem hvorugur
flokkurinn á fulltrúa í seinni um-
ferð kosninganna.
Áfallið er sérstaklega mikið fyrir
Sósíalistaflokkinn, sem beið sögu-
legt afhroð á sunnudaginn með
6,36% fylgi. Ef miðað er við síðustu
kosningar, þegar Francois Hol-
lande bar sigur úr býtum í báðum
umferðum, nemur fylgishrun
flokksins um 22 prósentustigum. Þá
vekur sérstaka athygli að flokk-
urinn vann ekki eina einustu sýslu
(Departement) síðastliðinn sunnu-
dag.
Við þetta má bæta að Francois
Bayrou, frambjóðandi Franska lýð-
ræðissambandsins, UDF, hlaut
18,57% árið 2007 en UDF hafði
verið „þriðji flokkurinn“ í franskri
stjórnmálaflóru frá því árið 1978,
þegar hann var stofnaður utan um
Valéry Giscard d’Estaing, þáver-
andi Frakklandsforseta. Fimm ár-
um síðar hafði fylgið hins vegar
hrunið af Bayrou, og Þjóðfylkingin
í raun tekið við hlutverki „þriðja
flokksins“.
Fylgið tvöfaldað á tíu árum
Athyglisvert er að skoða feril
Þjóðfylkingarinnar í þessum þrenn-
um kosningum, en árið 2007 náði
hún fjórða sæti með 10,44% at-
kvæða. Þá var Jean-Marie Le Pen í
forsvari flokksins, en hann hafði
fimm árum fyrr náð í seinni um-
ferðina með um 16% atkvæða. Árið
2012 hafði dóttir hans, Marine, tek-
ið við keflinu, og hún skilaði flokkn-
um í þriðja sæti með 17,9%, sem
engu að síður var langt á eftir
Nicolas Sarkozy, þáverandi Frakk-
landsforseta, sem hafnaði í öðru
sæti með 27,18%.
Þó að Le Pen hafi einungis bætt
við sig um fjórum prósentustigum
síðastliðinn sunnudag, nægði hrun
valdaflokkanna tveggja til þess að
tryggja henni farseðilinn í seinni
umferðina. Það breytir þó ekki því,
að Marine Le Pen fékk á sunnu-
daginn fleiri atkvæði en Þjóðfylk-
ingin hefur nokkru sinni fengið áð-
ur í fyrri umferð forsetakosninga,
sem og því, að á síðustu tíu árum
hefur fylgi flokksins rétt rúmlega
tvöfaldast úr 10,44% í 21,3%.
Raunar vakti það athygli
franskra stjórnmálaskýrenda á
kosninganótt að bæði Emmanuel
Macron og Le Pen fengu minna
hlutfall af atkvæðum í fyrri umferð-
inni en Ségoléne Royal, frambjóð-
andi Sósíalistaflokksins, sem lenti í
öðru sæti árið 2007 með 25,87% at-
kvæða.
Unga fólkið opið fyrir öfgunum
Stjórnmálafræðingar í Frakk-
landi hafa rýnt í úrslit síðasta
sunnudags út frá ýmsum breytum,
meðal annars eftir aldri. Niður-
stöður kannana þar sem athugað er
hvað fólk hafi kosið benda til dæm-
is til þess, að ungt fólk hafi fremur
kosið Le Pen en þeir sem eldri
voru. Þá vekur einnig athygli í
þeim könnunum, að Le Pen og
Jean-Luc Mélenchon, frambjóðandi
kommúnista, fengu meira en helm-
ing allra atkvæða fólks á aldrinum
18-24 ára, en innan við 20% hjá
þeim sem komnir voru yfir sjötugt.
Hægri menn og sósíalistar njóta
hins vegar áberandi minnst fylgis í
yngstu aldurshópunum, en Sósíal-
istaflokkurinn hefur löngum sótt
kjarnafylgi sitt þangað. Francois
Fillon, frambjóðandi hægrimanna,
naut hins vegar afgerandi mests
stuðnings meðal eldri kynslóðanna,
en um 45% fólks yfir sjötugt
greiddi honum atkvæði sitt.
Umtalsverðar breytingar á áratug
Fylgi frönsku stjórnmálaflokkanna hefur sveiflast mikið frá því í forsetakosningunum 2007
Sósíalistaflokkurinn hefur hrunið um tuttugu prósentustig Ungt fólk hallast að öfgunum
Kosninganiðurstöður eftir fyrri umferð
Nicolas Sarkozy
UMP
53,1% fylgi
Francois Hollande
Sósíalistaflokkurinn
51,6% fylgi
PAS-2017
2007
Sigurvegari seinni umferðar
Sigurvegari seinni umferðar
2012
Nágrenni
Parísar
Korsíka
París
Nicolas Sarkozy 31.18%
Ségolène Royal 25.87%
François Bayrou 18.57%
Jean-Marie Le Pen 10.44%
Emmanuel Macron 24.01%
Marine Le Pen 21.30%
François Fillon 20.01%
Jean-Luc Mélenchon 19.58%
Benoît Hamon 6.36%
François Hollande 28.63%
Nicolas Sarkozy 27.18%
Marine Le Pen 17.90%
Jean-Luc Mélenchon 11.10%
François Bayrou 9.13%
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017
Óháði frambjóðandinn Emmanuel Macron er enn með afgerandi for-
ystu á Marine Le Pen, ef marka má nýjustu kannanir, en í könnun
Opinionway sem birtist í gær mældist hann með 59% fylgi gegn 41%
Le Pen. Engu að síður hefur Macron dalað ögn frá því síðastliðinn
sunnudag, en þá sögðu kannanir að hann nyti fylgis um 65% Frakka
þegar kæmi að seinni umferðinni, sem haldin verður hinn 7. maí næst-
komandi.
Þrátt fyrir að dregið hafi örlítið saman með frambjóðendunum bend-
ir flest til þess að Macron verði kjörinn næsti forseti Frakklands, en
hann hefur þegar hlotið stuðningsyfirlýsingar frá flestum af frambjóð-
endunum sem duttu út á sunnudaginn var. Eina undantekningin er
Jean-Luc Mélenchon, sem neitar alfarið að lýsa yfir afstöðu sinni, og
segir það vera kjósenda sinna að ákveða hvað þeir muni gera.
Enn með afgerandi forystu
SEINNI UMFERÐIN
Rodrigo Duterte, forseti Filipps-
eyja, sagði í gær að það væri til-
gangslaust að mótmæla útþenslu-
stefnu Kínverja í Suður-Kínahafi,
þar sem engin leið væri að stöðva
hana. Ummælin eru í andstöðu við
afstöðu fyrirrennara Dutertes í emb-
ætti, Benigno Aquino, sem vísaði
deilunni til sérstaks gerðardómstóls
á vegum Sameinuðu þjóðanna, en
hann hafnaði í fyrra flestum kröfum
Kínverja til hafsvæðisins.
Samtök ríkja í Suðaustur-Asíu,
ASEAN, munu funda síðar í vikunni,
og sagði Duterte að hann myndi ekki
nota tækifærið til þess að mótmæla
afstöðu Kínverja, en þeir hafa verið
iðnir við að reisa gervieyjar og
heimta lögsögu yfir þeim á síðustu
misserum. Að minnsta kosti fimm
önnur ríki telja sig einnig eiga tilkall
til hluta hafsvæðisins, en það er
mjög mikilvægt með tilliti til skipa-
flutninga og náttúruauðlinda.
Bandaríkin hafa mótmælt út-
þenslustefnu Kínverja hart og meðal
annars siglt skipum sínum viljandi
innan þess hafsvæðis sem Kínverjar
hafa talið til lögsögu sinnar. Duterte
gagnrýndi hins vegar Bandaríkin
fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir að
Kínverjar reistu gervieyjarnar.
„Hverjir geta stöðvað þetta? Við?
Bara Bandaríkin geta það. Hvers
vegna leyfðu þeir þessu að gerast?“
spurði Duterte, en hann hefur sóst
eftir því að draga úr samskiptum Fil-
ippseyja og Bandaríkjanna.
Kínverjar hefja flotaæfingar
Varnarmálaráðuneyti Kínverja
tilkynnti í gær að þeir myndu halda
flotaæfingar á næstu dögum, þar
sem viðbrögð við nýjum loftvarna-
eldflaugum Suður-Kóreumanna,
THAAD, yrðu æfð.
Loftvarnakerfið á rætur sínar að
rekja til Bandaríkjanna, sem seldu
Suður-Kóreumönnum það í kjölfar
áframhaldandi tilrauna Norður-Kór-
eumanna með kjarnorkuvopn og
langdrægar eldflaugar. Kínverjar
hafa mótmælt uppsetningu kerfisins
harðlega, en þeir segja að það hafi
neikvæð áhrif á þeirra eigin öryggi,
auk þess sem það skaði jafnvægi og
stöðugleika heimshlutans.
sgs@mbl.is
Segir tilgangslaust að
mótmæla Kínverjum
Duterte mun
ekki ýta á Kínverja
vegna S-Kínahafs
AFP
Flugmóðurskip Kínverjar hefja á næstunni flotaæfingar.
Flugher Ísraels réðst í fyrrinótt á
herbúðir í nágrenni Damaskusar,
höfuðborgar Sýrlands, og skutu her-
þotur Ísraela nokkrum eldflaugum á
búðirnar. Rússar kölluðu eftir því að
bæði Ísraelar og Sýrlendingar,
bandamenn Rússa, róuðu sig eftir
árásina.
Ísraelsk yfirvöld vildu lítið tjá sig
um árásina að öðru leyti en að hún
hefði verið í samræmi við þá stefnu
landsins að leyfa hryðjuverkasam-
tökunum Hisbollah ekki að koma
höndum sínum yfir vopn. Flugher
Ísraels hefur gert fjölmargar árásir
innan landamæra Sýrlands frá því að
borgarastríðið þar hófst árið 2011,
en þær hafa nær allar beinst að His-
bollah-samtökunum. Sjónvarpsstöð
á vegum samtakanna sagði að árásin
hefði valdið skaða á vöruhúsi og elds-
neytistönkum, en nefndi ekki hvort
skotmörkin hefðu verið í eigu sam-
takanna eða Sýrlandshers.
Kremlverjar kalla eftir ró
Utanríkisráðuneyti Rússlands
fordæmdi árásina á sama tíma og Di-
mitri Peskov, talsmaður Vladimírs
Pútín Rússlandsforseta, kallaði eftir
því að þjóðir heims héldu að sér
höndum og forðuðust að bæta olíu á
þá elda sem geisa í Sýrlandi. Peskov
vildi hins vegar ekki greina frá því
hvort Ísraelar hefðu varað Rússa við
árásinni fyrir fram. sgs@mbl.is
AFP
Loftárásir Ísraelsk F-16 þota við æfingar fyrr í mánuðinum.
Ísraelar ráðast á
búðir Hisbollah