Morgunblaðið - 28.04.2017, Side 30

Morgunblaðið - 28.04.2017, Side 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017 ✝ Magnús Stein-grímsson fædd- ist 20. janúar 1920 í Reykjavík. Hann lést á bráðamóttök- unni í Fossvogi 1. apríl 2017. Foreldrar hans voru Kristjana Ein- arsdóttir húsmóðir, f. 20. júlí 1895, d. 4. apríl 1938, og Steingrímur Magn- ússon, fisksali í Reykjavík, f. 2. apríl 1895 í Gullberastaðaseli í Lundarreykjadal. d. 4. desember 1991. Systkini Magnúsar: Ágústa, f. 1918, Kristinn Einar, f. 1922, Guðlaug, f. 1926, Ingiríð- ur, f. 1930, Steingrímur, f. 1931, Kristjana, f. 1932, Auður, f. 1935, og Örn Helgi, f. 1942, sam- feðra. Eftirlifandi systkini Magnúsar eru Kristinn, Guðlaug og Steingrímur. Magnús kvæntist Zanný Clau- sen þann 12. september 1942, f. María, börn þeirra: Magnús Viktor, d. 1978, Ólöf Huld, Zanný og Marteinn. 4) Svan- fríður, f. 22. nóvember 1949, maki Sigurjón Þorláksson, f. 14. desember 1948, barn hennar: Kristjana Lind, börn þeirra: Dagmar Ýr og Þorlákur Sig- urbjörn. 5) Sigrún, f. 9. mars 1955, maki Kristinn Ingi Sig- urjónsson, f. 9. ágúst 1956, börn þeirra: Jónína Kristrún og Krist- inn Sigurjón. Magnús átti 66 langafa- og langalangafa börn. Seinni kona Magnúsar var Sigríður Rósa Meyvantsdóttir, f. 2. júní 1918, d. 23. janúar 2003. Magnús fæddist og ólst upp á Ránargötu 46 í Reykjavík en þar bjó hann einnig með Zanný, konu sinni, og ólust þeirra börn upp þar. Magnús vann nánast alla sína tíð í fiski en hann byrj- aði ungur að vinna með föður sínum, fyrst um sinn á svoköll- uðum plönum og einnig að send- ast með fisk. Síðar fluttust þeir í Fiskhöllina og var hann þar verkstjóri þangað til að hann stofnaði sína eigin fiskbúð að Snorrabraut 61. Útför Magnúsar fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 28. apríl 2017, og hefst athöfnin kl. 14. 28. október 1920, d.4. mars 1978. For- eldrar hennar voru Þóra Svanfríður Árnadóttir, f. 8. júní 1894, d. 5. júní 1950, og Axel Clau- sen, f. 30. apríl 1888, d. 5. febrúar 1985. Magnús og Zanný eignuðust fimm börn. 1) Krist- jana, f. 7. ágúst 1940, maki Árni Elfar, f. 5. júní 1928, d. 5. apríl 2009, barn henn- ar: Zanný Kristrún, börn þeirra: Elísabet Þórunn, Benedikt, Agnes Björk og Örnólfur. 2) Alda, f. 15. apríl 1943, maki Bjarni Ólafsson, f. 13. apríl 1941, d. 11. nóvember 2004, börn þeirra: Ólafur Árni, Erna Björg, d. 2012, og Markús. 3) Vöggur Clausen, f. 5. apríl 1947, maki Stefanía Jóhannsdóttir, f. 14. desember 1950, börn hans: Kristín Þóra, Sigrún og Guðrún Elsku pabbi minn, skapgóði, söngelski og dansglaði, er fall- inn frá 97 ára að aldri. Ég minnist þess í barnæsku að hafa vaknað eldsnemma, eða kl. 6 á morgnana, til að eiga stundir með honum einum áður en hann fór til vinnu. Þá fékk hann sér kaffi með miklum sykri og þorskalýsi og ráðlagði mér að fá mér sopa af lýsi á hverjum degi. Það væri eina vítamínið sem virkaði. Pabbi var ekki maður margra orða en hann gaf mér fá ráð og góð. Eitt ráð sem hann gaf mér var að nota ekki sápu á andlitið heldur þvo það frekar upp úr nýmjólk en það hefur alla tíð virkað vel á mína þurru og við- kvæmu húð. Pabbi vann hjá föður sínum, Steingrími í Fiskhöllinni, sem var stór fiskvinnsla. Ein af fisk- búðum afa var á Dalbraut og þegar afi bað mig 15 ára um að leysa af í búðinni í nokkra daga hvatti pabbi mig til að taka starfið. Þetta varð mikið gæfu- spor fyrir mig. Nokkrir dagar urðu að átta mánuðum. Á þessu tímabili kynntist ég nýrri hlið á pabba þar sem ég pantaði allan fisk hjá honum og leitaði ráða varðandi vinnuna. Ég er þakklát fyrir að hafa kynnst honum á þennan hátt. Hann var hjálp- samur, jákvæður og ljúfur. Barnahópurinn var stór í Gíslholti, húsinu okkar í Vest- urbænum, enda vorum við systkinin fimm. Móðir okkar var heimavinnandi. Mamma og pabbi voru afar gestrisin og heimilið jafnan fullt af fólki. Allt iðaði af lífi í kringum okkur enda var húsið oft kallað Glaumbær. Pabbi vann mikið til að sjá fyrir öllum skaranum en kom alltaf heim í hádegismat eins og tíðk- aðist á þessum tíma. Hann nýtti þær fáu mínútur sem hann hafði aflögu til að dansa við okkur systkinin. Þegar við vorum lítil stóðum við á tánum hans en eftir því sem við stækkuðum varð dansinn flóknari. Má segja að hann hafi kennt okkur að dansa í hádeginu. Hann hafði líka gaman af því að fara með okkur krakkana í berjamó. Mamma útbjó nesti og svo var „boddíbíllinn“ fylltur af krökkum og keyrt út fyrir bæ- inn. Þetta voru afar skemmti- legar stundir. Síðustu ár ævinnar var hann á Hrafnistu. Pabbi var þeim eig- inleika gæddur að vera alltaf já- kvæður. Mér varð þetta ljóst eitt sinn þegar ég heimsótti hann, hann ekkill og ég nýorðin ekkja. Þá spurði ég hann hvort honum leiddist aldrei. Hann sagði að það væri munaður að láta sér leiðast. Þetta vakti mig svo sannarlega til umhugsunar. Hann hafði stundum á orði að vinna dræpi engan en atvinnu- leysi væri bráðdrepandi. Ég hætti að láta mér leiðast eftir það. Ég heimsótti hann oft á Hrafnistu og við horfðum saman á fótbolta. Það voru mikil for- réttindi að fá að eiga hann svona lengi. Við töluðum kannski ekki alltaf mikið saman en það var gott að vera nálægt honum og frá honum stafaði ró og hlýja. Við áttum einstakar stundir saman þessi síðustu ár. Ég bið góðan Guð um að geyma hann og vernda. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Valdimar Briem) Alda. Elsku pabbi, öll höfum við systkinin einhvers að minnast frá uppeldi okkar í Vesturbæn- um, af Ránargötu 46, sími 17813. Gíslholt oft nefnt Glaumbær, þar var oft glatt á hjalla, skraf- að, sungið, spilað bæði á gítar og spil. Sagt var: Maggi dansar og Zanný syngur. Við munum þær stundir þeg- ar klukkan var að nálgast 12 og við áttum von á þér í hádeg- ismat, þá voru alltaf létt lög í út- varpinu og mamma var önnum kafin við að færa fiskinn upp á disk, þá vorum við tekin í fangið og dansað með okkur um alla íbúðina, ég tala nú ekki um ef það voru harmonikkulög. Ekki fengum við strangt uppeldi en gott aðhald, til dæmis að gista yfir nótt annars staðar. Man ein systra eftir því að hafa farið í skólaferðalag á skíði og átti að gista, hún var sótt fyrir nóttina og keyrð aftur morguninn eftir. Þegar við vorum svo komin út á vinnumarkaðinn var hringt heim og við vakin, ef einhver afsökun var fyrir hendi var ekki tekið mark á því, þetta var bara kverkaskítur og gjöra svo vel og mæta, betra seint en ekkert. Í þá daga þegar þú keyrðir einn af vörubílum Fiskhallarinnar sett- ist ein systirin upp í bílinn og fiktaði eitthvað við hann, það skipti engum togum, bíllinn rann af stað og beint á ljósa- staur sem stóð fyrir utan Nýja þvottahúsið. Hún þorði ekki fyr- ir sitt litla líf að fara inn en þeg- ar þú komst út sagðir þú bara „þakka þér fyrir að færa bílinn fyrir mig“. Aldrei var tekið á prakkarastrikum okkar með of- forsi eða látum enda erum við öll þakklát fyrir það. Við munum útilegur, sundlaugarferðir og munum við ennþá hvernig sund- skýlan þín var, svört prjónuð með hvítu belti. Oft vorum við tekin með á völlinn, í bíó, ég man þegar við fórum saman í Laug- arásbíó, þá var verið að sýna South Pacific, þá þurftir þú endilega að taka í nefið. Hvað ég skammaðist mín þegar þú þurft- ir svo að snýta þér. Svo voru það ferðirnar með þér suður með sjó til að sækja fisk og voru það oft ævintýraferðir og góðar minn- ingar. Ljúfur maður varstu ávallt og eftir því sem árin mín færast yfir geri ég mér betur grein fyrir því hversu indæll og góður þú varst. En komin eru leiðarlok og lífsins kerti brunnið og þín er liðin æviönn á enda skeiðið runnið. Í hugann kemur minning mörg, og myndir horfinna daga, frá liðnum stundum læðist fram mörg ljúf og falleg saga. Þín vinartryggð var traust og föst og tengd því sanna og góða, og djúpa hjartahlýju og ást þú hafðir fram að bjóða. Og hjá þér oft var heillastund, við hryggð varst aldrei kenndur. Þú komst með gleðigull í mund og gafst á báðar hendur. (Höf. ók.) Svanfríður Magnúsdóttir (Dandý) og fjölskylda. „Hvað heldurðu að þú hafir að gera í verkamann,“ sagði pabbi oft við mig þegar ég bað hann um að koma í sjómann eða krók, líka er hann sótti mig á róló á kvöldin og ég vildi fara í kapp- hlaup heim. Margar ferðirnar fór ég með honum suður með sjó á kvöldin að sækja fisk. Þetta var langt í þá daga að skrölta á holóttum malarvegi, er við bið- um eftir bátunum var nestið okkar svart, sætt kaffi og sam- anlagt rúgbrauð og franskbrauð með smjöri og kæfu á milli. Við fórum oft á Þingvelli á sumrin að veiða, við vorum varla lögð af stað er mamma tók upp harðfisk og bismark-brjóstsykur, það var ekkert verið að spá í að bíllinn yrði allur í mylsnu. Pabbi vann myrkranna á milli í minni æsku, mestan hlutann í Fiskhöllinni og síðar í sinni fiskbúð, enda stórt heimili að sjá um. Það var mikið um gestagang hjá okkur, allir svo velkomnir, oft voru nætur- gestir utan af landi þannig að stundum var sofið í öllum rúm- um og dýnur á gólfum. Við vor- um saman í hestamennskunni í um 10 ár og við riðum mikið út saman, það var skemmtilegur tími. Ég vann í nokkur ár hjá pabba í Fiskhöllinni og í Fisk- búðinni á Snorrabraut. Aldrei sá ég hann skipta skapi, alltaf jafn rólegur sama hvað gekk á, hann var bara hvers manns hugljúfi og vel liðinn af öllum. Þegar Magnús Steingrímsson ✝ Svava Guð-mundsdóttir fæddist 8. júní 1950 í Reykjavík. Hún lést á Land- spítalanum við Hringbraut 16. apríl 2017. Eiginmaður Svövu er Friðrik Bridde, f. 31. ágúst 1951. Börn Svövu og Friðriks eru: 1) Anna Margrét Bridde, f. 5. mars 1972, gift Elvari Má Birgissyni, f. 10. mars 1972. Börn þeirra eru: María Dögg, f. 30. júní 1994, Friðrik Már, f. 23. ágúst 2004, og Elín Gróa, f. 1. apríl 2006. 2) Katrín Dröfn Bridde, f. 14. apríl 1981, barnsfaðir Kristján Markús Sívarsson, f. 23. októ- ber 1932, d. 13. júlí 2009. Fað- ir Svövu var Vilmundur Ingi- marsson, f. 6. nóvember 1925, d. 31. desember 1985. Kjör- faðir Svövu var Guðmundur Nikulásson, f. 9. september 1930, d. 30. mars 2007. Alsyst- ir Svövu er Anna Sigurlína Karlsdóttir, f. 21. maí 1951, gift Jónasi Hermannssyni, f. 25. október 1946. Börn þeirra eru: 1) Hermann, f. 31. ágúst 1969, giftur Guðrúnu Sig- tryggsdóttur, f. 24. apríl 1967. Börn: Anna Brynhildur, Elín Friðrika og Bríet Stefanía. 2) Karl Friðrik, f. 14. júní 1975, 3) Ragnar, f. 25. júlí 1978, 4) Jónas Valur, f. 31. júlí 1984, maki Anna Margrét Sævarsdóttir, barn þeirra er Anna Lína. Önnur systkini samfeðra Svövu eru Örn, f. 1947, d. 2011, Grétar, f. 1950, d. 2010, Ingibjörg Katrín, f. 1951, og Dröfn, f. 1956. Útför Svövu fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag, 28. apríl 2017, og hefst athöfnin klukkan 13. ber 1980. Börn þeirra eru: Gabrí- el Friðrik, f. 24. september 2002, Rakel Margrét, f. 6. maí 2006, Stef- án Smári, f. 26. mars 2008, og Re- bekka Thelma, f. 25. febrúar 2009. Fyrir átti Svava soninn Guðmund Smára Magnússon, f. 28. ágúst 1968, d. 1. mars 1996. Barnsmóðir Guðmundar Smára er Bryndís Hugrún Kristinsdóttir, f. 21. mars 1972. Börn þeirra eru Brynjar Smári, f. 28. ágúst 1992, og Svava, f. 4. júní 1994. Móðir Svövu var Katrín Ragnarsdóttir, f. 26. desem- Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt og ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Augun þín blá og brosfögur mær er nú í minningu mína greypt. Sorgmæddur skoðaði ég hug minn og sá að ég grét þess sem ég saknaði, gleðinnar og allra þeirra góðu stunda sem ég átti með Svövu, eiginkonu minni. Sorgin getur bugað og beygt. Við andlát hennar helltist yfir mig söknuður og sorg, allt veraldlegt vafstur á því augnabliki varð afar ómerkilegt. Ég var háður eigin- konu minni um svo margt, hún var mér líkt og vatn er þyrstum manni. Ég viðurkenni að hafa oft heyrt þau orð að konan mín of- dekri mig. Núna átta ég mig á sannleiksgildi þessara orða. Hún var vinnusöm kona og hikaði ekki við að ganga í aukastörf ef á þurfti. Hún var vel liðin hvar sem hún vann, margir af hennar fyrr- verandi vinnufélögum héldu tryggð og vináttu við hana alla tíð. Svava var afar rösk og snögg til verka, hún hikaði ekki við að gefa tóninn ef henni mislíkaði. Hún lá ekki á skoðunum sínum, hún var hreinskilin alla tíð og hispursleysi hennar líkaði mörg- um vel. Fyrstu kynni okkar Svövu voru í barnaskóla. Öll okkar bernskuár vorum við í Austur- bæjarskóla, hún var að vísu árinu eldri en ég. Við Svava vissum vel hvort af öðru öll okkar skólaár. Við áttum oft samleið og oft mættumst við á skólalóðinni eða í sjoppuhurðinni. Ég man enn hvað ég roðnaði mikið þegar hún birtist og að sama skapi sár er hún tók ekki eftir mér. Svona liðu árin upp í gaggó. Mörgum árum síðar rifjaði hún upp þessi neyð- arlegu augnablik okkar í skóla og tók fram að hún hafi ekki þorað að horfast í augu við mig þá. Leiðir okkar lágu fyrir alvöru saman á balli í Breiðfirðingabúð sem var vinsæll skemmtistaður unglinga á þeim árum. Þarna kviknaði ást okkar fyrir alvöru þegar hún stillti sér upp fyrir framan mig er ég var að spila á sviðinu. Hún hafði þessi fallegu bláu augu og brosið sitt blíða. Þetta var áramótaball 1968 og hún geislaði af fegurð og kyn- þokka. Ég tjáði henni ást mína þetta kvöld og urðum við sam- stíga allt til síðasta dags. Við Svava gengum í hjónaband 1970 með undanþágubréf yfirvalds í hendi. Ég bið góðan Guð að taka á móti fallegri sál, móður barna okkar og elsku lífsförunaut mín- um. Hvíl í friði. Friðrik Bridde. Dapur er hjartans strengur, skuggi á ljósið fellur. Stór er minninga sjóður, kvatt hefur vinur góður. (EHB) Þegar hugur ferðast yfir far- inn veg og komið er að kveðju- stund elskulegrar mágkonu minnar er sem löngu liðnar stundir vakni upp og verði ljóslif- andi í minningunni. Allar minningar mínar í okkar löngu kynnum markast af þeirri staðreynd hvað Svava var mér mikill vinur í raun. Svava átti þann góða eigin- leika að vera sjálfri sér samkvæm í bæði orðum og gerðum. Hún hafði skoðun á hlutunum þegar þannig stóð á, hjálpsöm við þá sem til hennar leituðu, snögg upp á sig en stutt var ætíð í brosið hennar, hörkudugleg var hún allt sitt líf. Sannur vinur vina sinna. Svava var ung að árum þegar Friðrik bróðir kynnti hana fyrir mér, ég rétt skriðinn yfir ferm- ingu eins og hún sagði alltaf við mig. Hún var trygglynd og raun- góð, alltaf var hægt að leita til hennar og hún tilbúin að rétta hjálparhönd. Minningar um góð- ar stundir og hjálpsemi til margra ára lifa áfram sem gæf- unnar rós í mínum huga. Það er sárt að kveðja að sinni yndislega mágkonu en um leið er ég þakklátur fyrir góðar minn- ingar. Far þú í friði, englar allir fylgi. Hryggðar hrærist strengur hröð er liðin vaka ekki lifir lengur ljós á þínum stjaka. Skarð er fyrir skildi skyggir veröldina eftir harða hildi horfin ertu vina. Klukkur tímans tifa telja ævistundir ætíð lengi lifa ljúfir vinafundir. Drottinn veg þér vísi vel þig ætíð geymi ljósið bjart þér lýsi leið í nýjum heimi. (Hákon Aðalsteinsson) Kæri Friðrik bróðir, Anna Magga, Katrín Dröfn og fjöl- skyldur, Guð gefi ykkur styrk í sorginni. Einar H. Bridde. Nú þegar ég kveð Svövu vil ég þakka góð kynni síðustu árin. Þegar ég hitti hana fyrir átta ár- um sem sambýliskona Einars, mágs hennar, tók hún á móti mér glaðleg og falleg. Með okkur Svövu tókst góður vinskapur. Svava var fagurkeri, alltaf vel til höfð og hrein og bein í samskiptum. Hún og Friðrik áttu sælureit í Þjórsárdal en þar heimsóttum við Einar þau og áttum með þeim ánægjulegar stundir. Ég mun sakna hennar og kaffihúsaferða okkar sem og að hitta hana hjá Hermanni Bridde. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna. Margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta. Vinur þó félli frá. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Elsku Friðrik, Anna Magga, Katrín Dröfn og fjölskyldur, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Guð blessi minningu Svövu. Guðný Steinunn Guðjónsdóttir. Við andlátsfregn þína, allt stöðvast í tímans ranni. Og sorgin mig grípur, en segja ég vil með sanni, að ósk mín um bata þinn, tjáð var í bænunum mínum, en Guð vildi fá þig, og hafa með englunum sínum. Við getum ei breytt því sem frelsarinn hefur að segja. Um hver fær að lifa, og hver á svo næstur að deyja. Þau örlög sem við höfum hlotið, það verður að skilja. Svo auðmjúk og hljóð, við lútum að frelsarans vilja. Þó sorgin sé sár, og erfitt er við hana að una. Svava Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.