Morgunblaðið - 28.04.2017, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 28.04.2017, Blaðsíða 31
fiskbúðin var full af fólki, sem var oft, og ég kannski smá stressaður þá söng pabbi og var alltaf jafn rólegur. Eitt sinn þegar við vorum að koma úr mat og keyrðum Hringbrautina stoppar lögreglan okkur, pabbi skrúfar niður rúðuna og segir „hvað get ég gert fyrir ykkur, vinir mínir?“ Þú keyrðir of hratt, hann var aðeins yfir há- markshraða, en þetta lýsir hans léttleika svo vel. Aldrei man ég eftir pabba veikum eða frá vinnu. Hann hafði tröllatrú á lýsi og tók það alla morgna og sagði mér einu sinni að þegar hann var krakki þá fengu þau ekki að fara út fyrr en búið var að taka lýsi. Pabbi var í þrjú ár á Hrafnistu og síðasta árið hans þar var hann farinn að tala um að nú væri líkaminn farinn að gefa sig og fæturnir vildu ekki hlýða honum. Elsku pabbi, þér þótti bæði gaman að syngja og dansa, það var þitt líf og yndi. Þér þótti gaman þegar við vor- um að syngja saman og ég spil- aði á gítarinn hvort sem var á Hrafnistu eða hjá okkur. Síðasta skiptið sem þú komst heim til okkar sagðir þú „ætli þetta sé ekki í síðasta skiptið sem ég kem hingað“ og það var svo, því á jóladag er við komum að sækja þig varstu svo verkjaður að þú treystir þér ekki til að koma, þó ætluðum við að bera þig í hjóla- stólnum alla leið inn. „Ég er bú- inn að koma svo oft til ykkar,“ sagðir þú, svo sátum við hjá þér og sungum, þá lifnaði nú aðeins yfir þér. En elsku pabbi minn, 97 ár eru hár aldur. Við vorum stödd í Berlín á fallegu torgi með tvær stórar kirkjur sína hvorum megin við okkur þegar símtal kom frá Íslandi um að þú værir dáinn. Við stóðum þarna agndofa. Kirkjuklukkan fór að slá, ég hugsaði hún slær fyrir þig, pabbi minn. Bebba og börn- in mín þakka þér fyrir allt sem þú varst þeim. Ég á eftir að sakna þín, pabbi minn. Þinn sonur, Vöggur. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017 Við verðum að skilja, og alltaf við verðum að muna, að Guð hann er góður, og veit hvað er best fyrir sína. Því treysti ég nú, að hann geymi vel sálina þína. Þótt farin þú sért, og horfin ert burt þessum heimi. Ég minningu þína, þá ávallt í hjarta mér geymi. Ástvini þína, ég bið síðan Guð minn að styðja, og þerra burt tárin, ég ætíð skal fyrir þeim biðja. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir) Hvíl þú í friði, elsku vinkonan mín. Ég er svo þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast þér og vera vinur þinn í 33 ár. Mikið á ég eftir að sakna þín elskuleg og venjast þeirri stað- reynd að þú ert farin úr þessu lífi. Nú munt þú hvíla við hlið Smára þíns, sem þú saknaðir alla tíð. Elsku Frikki minn, Anna Magga, Kata, Elfar, Anna Lína og barnabörn, Guð styrki ykkur og styðji í sorginni, en munið, að Svava er ekki langt frá okkur. Hún er alltaf í hjartanu. Sofðu nú blundinum væra, blessuð sé sálin þín hrein. Minningin, milda og tæra, merluð, í minningar stein. Man ég þig ástkæra meyja, meðan að lifi ég hér. Minning sem aldrei skal deyja samverustundin með þér. (Bryndís Halldóra Jónsdóttir) Takk fyrir allt, elsku Svava mín. Guð geymi sálu þína. Þín vinkona, Bryndís Halldóra Jónsdóttir (Binna). ✝ SveinbjörnÓskar Sig- urðsson fæddist á Akureyri 9. mars 1948. Hann lést á FSA, Akureyri, 4. apríl 2017. Foreldrar hans voru Aðalbjörg Vilhjálmsdóttir, fædd 16. apríl 1919, d. 28. maí 1951, og Sigurður Óskar Ólafsson, f. 2. júní 1913, d. 16. nóvember 1955. Öll ars Ólafssonar voru Ólafur Óskar Lárusson, héraðslæknir í Vestmannaeyjum, f. 1. sept- ember 1884, d. 6. júní 1952, og Silvía Níelsína Guðmunds- dóttir, f. 13. ágúst 1883, d. 22. október 1957. Sveinbjörn ólst upp á Eyrarlandsvegi 31 og bjó þar alla tíð. Eftir að móðir hans lést var hann alinn upp af móðursystur sinni, Þóru Vilhjálmsdóttur, f. 24. apríl 1913, d. 2. mars 1994. Svein- björn átti eina hálfsystur sam- feðra, Erlu Lísu Sigurð- ardóttur. Sveinbjörn vann lengst af hjá Kaupfélagi Eyfirðinga við skrifstofustörf. Sveinbjörn verður jarðsung- inn frá Akureyrarkirkju í dag, 28. apríl 2017, klukkan 13.30. bjuggu þau á Eyr- arlandsvegi 31, í húsi afa hans og ömmu í móðurætt. Afinn var Vil- hjálmur Júlíusson frá Barði, fæddur 28. janúar 1880, d. 30.desember 1971, og amman Elín Sveinbjarnardóttir frá Stokkahlöðum í Eyjafirði, fædd 14. október 1880, d. 23. júlí 1960. Foreldrar Sigurðar Ósk- „Hahh! ég ætla að steikja mér kótelettur í nótt.“ Þetta var eitt af því fyrsta sem Sveinbjörn Sig- urðsson sagði við tíu ára gamlan Stefán Bergsson og félaga hans, að loknu skákmóti að kveldi. Þetta fannst mér og vini mínum Halldóri Brynjari ansi skondin setning. Enda fannst okkur Sveinbjörn strax ansi skondinn og skemmtilegur maður. Á manns yngri árum kynntist mað- ur ansi mörgum skemmtilegum karakterum í Skákfélaginu. En ætli það sé nokkuð of djúpt í árina tekið að fullyrða að Sveinbjörn hafi verið með þeim allra skemmtilegustu, já svona yfir- leitt? Strax þarna þegar maður var byrjaður að tefla með þeim fullorðnu varð hann góður félagi og vinur. Sá vinskapur hélst alla tíð. Þær eru ýmsar minningarn- ar. Í einni ferð sem við fórum sam- an á skákmót á Suðurlandi gisti hann með mér og tveimur öðrum í frekar litlum svefnskála með kojum. Þarna hafði maður þekkt hann í hartnær tíu ár og vissi sem svo að kauði átti það til að hefja upp raust sína og tala dulítið. Þegar gengið var til svefns kvöld- ið áður voru gefin út skýr fyrir- mæli til vistmanna skálans að það væri ætlast til þess að menn færu ekki á fætur fyrir ellefu um morg- uninn og hefðu hljótt. Maður var rétt farinn að rumska þegar hátt og skýrt heyrðist: „Ja, góðan daginn, er ekki allt í lagi?“ Leit ég þá á klukkuna og vissi sem var að hún var akkúrat ellefu og okkar maður vaknaður. Og þær eru fleiri og fleiri sögurnar. Á einu skákmótinu á Sauðár- króki sátu ég, Sveinbjörn með jakkaföt og bindi og þekktur og sjúskaður poppari við annan mann í litlum veitingaskála. Við sátum allir hver á sínu borðinu, Sveinbjörn að borða kótelettur, popparinn og félaginn að rétta sig af með öli og ég dulítið súr að jafna mig á tapi morgunsins. Fljótt tókust upp þær allra dýpstu og heimspekilegustu um- ræður sem ég hef setið undir og tóku gleði popparans og heilsa miklum framförum í þessari sam- verustund. Genginn er maður sem var ef til vill alltaf hálfpart- inn einn en þekkti þó marga og margir munu sakna að sjá og tala við. Af honum mátti sitthvað læra, hann þurfti ekki annað en að skella sér í göngutúr, setjast á bekk og smæla framan í heiminn. Minning félaga míns Sveinbjörns Sigurðssonar lifir og mun lifa, ekki síst í tungutaki nokkurra þeirra sem hann þekktu og notast enn við hans ódauðlegu frasa og sérstaka húmor. Stefán Steingrímur Bergsson. Er ekki allt í lagi? Er eitthvað um að vera? Þessar glaðlegu kveðjur þínar Sveinbjörn munu að eilífu lifa í hjörtum allra sem urðu á vegi þínum. Það er erfiðara en ég hélt að rita þessa grein. Minningarnar eru eiginlega of margar, en á sama tíma renna þær allar ein- hvern veginn saman í eitt. Mögulega er skýringin sú að það var alltaf sama hringbrosið á þér. Sama hvað gekk á, alltaf gat maður treyst á að Sveinbjörn brosti hringinn. Ef orðalagið „léttur, ljúfur og kátur“ hefur einhvern tímann átt við einhvern mann, þá var það um þig Svein- björn. Þú tókst okkur ungum strák- unum í taflfélaginu á annan hátt en flestir hinna. Þú komst alltaf fram við okkur, strax frá upphafi, sem jafningja. Þú varst fyrst og síðast vinur okkar, ekki kennari eða „einn af gömlu körlunum“. Þegar Hamrarnir voru stofn- aðir varst þú einnig ekki lengi að taka við þér. Varst fljótlega orð- inn sjálfskipaður verndari Hamr- anna, og heiðursforseti. Á tíma- bili misstir þú varla úr heimaleik, þó það hafi eflaust komið fyrir að þú hafir verið 100% áhorfenda. Þetta var okkur ómetanlegt, og setti skemmtilegan blæ á Ham- rasumrin. Ég ætla ekki að rifja upp nein- ar sögur hér Sveinbjörn minn. Þær eru margar og góðar. Við spjöllum um þær í rólegheitum og hlæjum dátt þegar við hitt- umst næst, hvar sem það verður. Blessuð sé minning þín, kæri Sveinbjörn, heimurinn varð fá- tækari við fráfall þitt. Þinn kæri vinur, Halldór Brynjar Halldórsson, skákfélags- maður og Hamar. Nú er þessi mikli snillingur horfinn okkur sjónum og hans verður sárt saknað á götum bæj- arins. Kynni okkar Sveinbjörns hóf- ust fyrir ríflega 20 árum síðan þegar ég hóf að tína rifsber með Unu mágkonu minni af runnum sem eru á lóð við heimili hans að Eyrarlandsvegi 31. Þessa iðn höfum við stundað allar götur síðan, að hausti ár hvert. Uppskeran misjöfn en oft- ast góð. Alltaf var glatt á hjalla, Sveinbjörn birtist í dyragættinni með orðunum „Nei, halló“ og það var mikið spjallað, hlegið og gert grín. Ófá símtölin hefur hann hringt í mig í gegnum árin, við tekið spjall á ýmsum götuhornum bæjarins og oft við „útibúið okk- ar“ eins og hann kaus að kalla kjörbúðina okkar í hverfinu. Sveinbjörn hafði ómældan áhuga á fótbolta og honum var annt um bæinn sinn, eins hafði hann mik- inn áhuga á skák og spilaði einnig bridge. Heimsóknin okkar á Kálfa- strönd við Mývatn fyrir nokkrum árum var skemmtileg og ljúffeng- ar veitingarnar sem hann bauð mér upp á í Fosshóli á heimleið- inni. Þetta var eini bíltúrinn sem hann fór í það sumarið og hann var mér þakklátur. Já, hann var mikið ljúfmenni hann Sveinbjörn og vildi öllum vel. Nokkrar ferðir voru farnar inn að Grísará með Unu að kaupa stjúpur sem við settum niður í potta við húsið hans. Þegar því verki lauk var sumarið komið. Alltaf hringdi hann þegar jóla- kortin voru skrifuð, hann vantaði heimilisföng eða annað. Eitt sinn hringdi hann þrisvar í mig á aðfangadag, ég hafði fært honum jólagjöf sem hann var bú- inn að týna, nú voru góð ráð dýr. En þegar hann hringdi í þriðja sinn þá var hann búinn að finna gjöfina, hún var inn á milli í blaða- bunkanum sem var á leið út í tunnu! Öll símtölin sem gátu verið ansi löng endaði hann á að segja: „Arna mín, Guð blessi þig og fjöl- skyldu þína.“ Ef hann gleymdi því þá hringdi hann aftur til að bæta þessari setningu við. Guð blessi þig, Sveinbjörn minn. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Arna Ívarsdóttir. Kveðja frá Bridgefélagi Akureyrar Sveinbjörn Sigurðsson hélt upp á 69 ára afmæli sitt með spilafélögum sínum í Félagi eldri borgara á Akureyri skömmu áður en hann lést. Það var vel við hæfi því Sveinbjörn hafði spilað bridge af lífi og sál frá unga aldri, m.a. innan Bridgefélags Akureyrar (B.A.). Við félagar hans í þeim fé- lagsskap minnumst Sveinbjörns með hlýhug, að honum er vissu- lega sjónarsviptir. Segja má með sanni að áhugi hans og spilagleði var óbilandi allt til síðustu stund- ar. Við Sveinbjörn kynntumst fyrst á menntaskólaárum mínum og vorum síðan báðir starfsmenn Kaupfélags Eyfirðinga um langt árabil. Með okkur var alltaf góð- ur vinskapur. Sveinbjörn tók drjúgan þátt í félagslífinu innan Starfsmannafélags KEA og var jafnvígur á bridge, fótbolta og skák en allar þessar íþróttagrein- ar voru stundaðar hjá starfs- mannafélaginu á þessum árum. Við áttum áhugann á bridge sam- eiginlegan. Sveinbjörn hóf að spila með Bridgefélagi Akureyrar fyrir hartnær hálfri öld og var virkur félagi allar götur síðan þótt að- eins hafi dregið úr þátttöku síð- ustu árin. Hann var býsna litrík- ur persónuleiki, glaður og reifur allajafna, orðheppinn og lét stundum vel í sér heyra. Við spilafélagarnir eigum eftir að sakna hans og sendum honum hlýjar kveðjur yfir móðuna miklu. Stefán Vilhjálmsson formaður B.A. Ég man vel eftir því er ég var skákstjóri á Skákþingi Norðlend- inga á Húsavík árið 2000. Ég þurfti sífellt að biðja þennan há- væra mann, sem ég þá þekkti lítið nema þá af afspurn, að hafa lægra. Hann bar litla virðingu fyrir þessum unga skákstjóra að sunnan og hafði jafnvel enn hærra. Við kynntumst hins vegar bet- ur í gegnum tíðina. Hlógum oft dátt saman á Íslandsmóti skák- félaga. Við urðum góðir mátar. Ég var meira að segja það hátt skrifaður hjá Sveinbirni að eitt sinn þegar hann kom ekki suður af því að hann var í fýlu við Skák- félagsmenn á Akureyri, sem hann átti til, bað hann Halldór Brynjar um að færa mér og Guð- fríði Lilju kveðju. Skýrt tekið fram við Halldór að hann ætti bara skila kveðju til okkar beggja. Sveinbjörn kom suður á Norð- urlandamót öldunga árið 2009 og stóð sig framskarandi vel. Mætti jakkafataklæddur í hverja um- ferð. Þá sá ég að Sveinbjörn gat alveg verið hljóðlátur þegar að- stæður kröfðust þess. Ég ræddi síðast við Sveinbjörn fyrr í vetur. Hvatti ég hann þá eindregið til að fylgja mörgum fé- lögum sínum að norðan á Reykja- víkurskákmótið. Ég heyrði að hann langaði. Ekki entist honum heilsan og aldur til þess. Ég veit að Svein- björn hefði notið sín vel, jakka- fataklæddur með rauða bindið, á Reykjavíkurskákmótinu í Hörpu. Ekki hefði þurft þar að biðja hann að hafa lægra. Stemmingin á Íslandsmóti skákfélaga verður ekki söm án Sveinbjörn. Skákhreyfingin hef- ur misst góðan mann. Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands. Sveinbjörn Óskar Sigurðsson ✝ Ingibjörg Ó.R. Stef- ánsdóttir fæddist í Hafnarfirði 19. febrúar 1945. Hún lést á Landspít- alanum 17. apríl 2017. Foreldrar henn- ar voru hjónin Jó- hanna Rósants Júl- íusdóttir frá Kálfshamarsvík, f. 9. september 1905, d. 5. febr- úar 1992, og Stefán Jónsson frá Hafnarfirði, f. 9. mars 1912, d. 3. ágúst 1973. Systkini hennar eru Sigurður Ó. Stef- ánsson, f. 19. febrúar 1935, d. 7. mars 1969, Sigurjón Rósants Stefánsson, f. 30. ágúst 1946, maki Margrét Björgvinsdóttir, f. 25. apríl 1949, Guðbjörg Rósants Stefánsdóttir, f. 19. febrúar 1948, d. 14. júlí 2015, maki Magnús Helgi Ólafsson, f. 1. júlí 1947, d. 28. maí 2007, Guðný S. Rósants Stefánsdóttir Baumann, f. 15. apríl 1950, maki Allan Sven Baumann, f. 7. mars 1949. Ingibjörg giftist Jens Evertssyni, f. 16. febrúar 1942, þann 17. febrúar 1968. Börn Ingi- bjargar og Jens eru: 1) Jóhanna Sigrún Jensdóttir, f. 2. nóvember 1968, maki Gísli Hildibrandur Guð- laugsson. Börn: Sólrún Inga, f. 1996, Guðlaugur Ísak, f. 1998, og Matthías Björn, f. 2001. 2) Evert Stefán Jensson, f. 17. júlí 1971, maki Marivena M. Marcial Jensson. Börn: Gemarc, f. 2006, Jens Matthew, f. 2012. 3) Karlotta Jensdóttir, f. 7. júlí 1976, maki Jón Einarsson. Börn: Jens Þór- arinn, f. 2000, Ingibjörg, f. 2004, Þórey Ösp, f. 2008. Ingi- björg útskrifaðist 28. október 1966 frá Hjúkrunarskóla Ís- lands og starfaði lengst af við umönnunarstörf. Útför Ingibjargar verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 28. apríl 2017, klukkan 13. Á haustdögum 2016 hittumst við skólasystur úr Hjúkrunar- skóla Íslands til að halda upp á 50 ára útskriftarafmælið.Þrátt fyrir að samgangur hafi ekki verið mik- ill á þessum árum náðum við strax saman, ekkert hafði breyst í gegn- um árin. Síðan höfum við komið reglu- bundið saman. Síðasta samvera okkar var fyrir nokkrum vikum. Inga naut þess að hitta okkur og við að hitta hana. Inga var já- kvæð og framtakssöm, hún stofn- aði Facebook-hóp fyrir okkur sem við búum að áfram. Í sínum veikindum sýndi hún mikið hugrekki og æðruleysi. Inga var glaðsinna, einlæg og jarðbundin. Góð manneskja og lagði alltaf gott til mála. Við söknum hennar úr hópnum. Blessuð sé minning hennar. Samúðarkveðjur til fjölskyldu hennar frá okkur skólasystrun- um. Í nátthaga hvílist hugur þreyttur gætir græðir þoku bakki lágvær vængja þytur vakir minning þín (Ferdinand Jónsson) Fyrir hönd skólasystra, Guðríður Þorleifsdóttir. Ingibjörg Ó. Rós- ants Stefánsdóttir Glaðvær, hlý, hláturmild og glæsi- leg. Þannig munum við systkinin Sól- veigu Þorsteinsdóttur frænku okkar. Það er nánast sama hvaða minning verður fyrir valinu þeg- ar við hugsum til Sollýjar, alltaf er það glaðværðin sem kemur upp í hugann. Það var gefandi að hitta Sollý, hvort sem það var í Lundi, Jónshúsi eða á Flórída. Hún spurði alltaf frétta af fjöl- skyldunni, um okkur, börnin, Sólveig Þorsteinsdóttir ✝ Sólveig Þor-steinsdóttir fæddist 29. júlí 1961. Hún lést 9. apríl 2017. Útför Sólveigar fór fram 27. apríl 2017. mömmu og pabba, og skein svo af stolti þegar hún var spurð um eigin fjölskyldu. Þegar ljóst var í hvað stefndi ræddi Sollý málin af hrein- skilni en jafnvel þá var stutt í brosið og hláturinn. Við erum ríkari eftir að hafa þekkt Sollý og minnumst hennar með hlýju í hjarta. Við sendum innilegar samúð- arkveðju til Gunnars, Þorsteins, Guðrúnar Ólafar, Gerhards og Andreu, Rúnu og Steina, Jennýj- ar og Irmýjar og fjölskyldna þeirra sem og annarra ættingja og vina. Hrannar, Hlín, Hilma og Hrund.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.