Morgunblaðið - 28.04.2017, Page 34

Morgunblaðið - 28.04.2017, Page 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan GÆÐA BAKKAMATUR Sjá heimasíðu www.veislulist.is Veislulist afgreiðir hádegismat í bökkum alla daga ársins, bæði fyrir fyrirtæki og stofnanir. Í yfir 40 ár hefur Veislulist lagt áherslu á góða þjónustu og framúrskaran matreiðslu. Hádegismatur Verð kr. 1.370 Lágmark 3 bakkar + sendingargjald d MisMUnAndi RéTTiR AllA dAGA viKUnnAR EldUM EinniG fyRiR MöTUnEyTi Ég er núna staddur í fiskiðjuverinu hjá Síldarvinnslunni, er aðsetja upp nýjar stýringar og betrumbæta,“ segir Daði Bene-diktsson, rafmagnstæknifræðingur hjá EFLU, en hann á 40 ára afmæli í dag. Daði er Norðfirðingur og hefur alla tíð búið í Neskaupstað fyrir ut- an námsárin þegar hann bjó í Reykjavík og Sönderborg á Jótlandi. Hann hefur starfað hjá EFLU á Austurlandi síðan 2005. Áhugamál Daða eru fjölskyldan, útivist, veiðar og skíði. „Ég er einnig í björgunarsveitinni og hef verið í henni síðan ég byrjaði í ung- lingadeildinni 14 ára. Þótt við höfum orðið vör við meiri traffík ferða- manna í Neskaupstað þá hefur útköllum blessunarlega ekki fjölgað hjá okkur.“ Daði stundar aðallega skotveiði, þá hreindýra- og gæsaveiði. „Við erum fjórir félagar í hóp og fengum þrjú hreindýr í útdrættinum. Það verður því nóg að gera hjá okkur í sumar. Öll dýrin eru á svæði 5, sem er Sandvíkursvæðið svokallaða og nær frá Norðfirði og suður í Reyðarfjörð. Ég held ekkert stórt upp á afmælið, það verður kökuveisla fyrir fjölskyldu og vini eftir hefðbundinn vinnudag. Svo verður stefnt á fjallaskíðaferð um helgina, en það fer eftir veðri og vindum. Fjöl- skyldan er mikið á skíðum og erum við nýkomin af Andrésar Andar- leikunum á Akureyri.“ Eiginkona Daða er Auður Þorgeirsdóttir, þroskaþjálfi hjá Verk- menntaskóla Austurlands, og börn þeirra eru Dagbjartur, f. 2005, Jóhanna Dagrún, f. 2007 og Bjartmar Kári, f. 2014. Úti í Urðum Daði í göngutúr ásamt móðurafa sínum, Ara Sigurjóns- syni, fyrrverandi skipstjóra, í Fólkvangi Neskaupstaðar. Hlakkar til hreindýra- veiðanna í sumar Daði Benediktsson er fertugur í dag Þ uríður Kristjánsdóttir fæddist á Steinum í Stafholtstungum 28.4. 1927. Í uppvexti hennar var heimilið á Steinum mannmargt og þar náði hún að kynnast baðstofulífinu eins og það gekk fyrir sig á árum áður, en bað- stofan á Steinum var stórt herbergi í risi, undir súð. Þuríður stundaði nám í farskóla en þá hófst skólaskylda í farskóla við tíu ára aldur. Að loknu skyldu- námi stundaði Þuríður nám í Hér- aðsskólanum í Reykholti, lauk kennaraprófi frá KÍ 1948, stundaði framhaldsnám erlendis á næstu ár- um og lauk síðar m.a. BSc-prófi í sálarfræði frá Ríkisháskólanum í Illinois í Bandaríkjunum 1968 og M.Ed. í menntasálarfræði frá sama skóla ári síðar. Hún lauk síðan doktorsprófi þaðan árið 1971. Þuríður kenndi í tvo vetur við gagnfræðaskólann í Stykkishólmi 1948-50 og einn vetur við Héraðs- skólann í Skógum 1952-53. Hún var kennari við Hagaskólann í Reykja- vík 1953-66, kennari við Kennara- háskóla Íslands 1971-73 en það ár var hún skipuð fyrsti prófessor Kennaraháskólans og varð jafn- framt fyrsta konan sem gegndi prófessorsembætti í sálarfræði við íslenskan háskóla. Þuríður gegndi stöðu sinni til 1989 en á árunum 1983-87 var hún konrektor við skólann. Eftir að hún sagði stöðu sinni lausri var hún stundakennari við skólann í nokkur ár og hafði auk þess verið stunda- kennari m.a. við HÍ og Fósturskóla Sumargjafar og var jafnframt í eitt ár skólastjóri í hlutastarfi við skólann. Hún starfaði auk þess í eitt ár í hlutastarfi við Skólarann- sóknadeild menntamálaráðuneyt- isins og skipulagði og stjórnaði fjarnámi við KHÍ 1979-83 og aftur 1987-1991. Þuríður hefur skrifað töluvert í blöð, tímarit og bækur um málefni er tengdust námi hennar og starfi, en hún hefur auk þess unnið ötul- lega að framgangi Sögufélags Borgarfjarðar síðustu ár, var rit- stjóri og meðhöfundur Borgfirskra æviskráa frá áttunda bindi og lauk því mikla ritverki um ævi og störf Borgfirðinga en bindin eru alls 14 talsins. Þuríður hafði einnig umsjón með Íbúatali Borgarfjarðarsýslu, Mýra- sýslu og Akraness árin 1991 og 1996, en Sögufélag Borgarfjarðar gefur það að jafnaði út fimmta hvert ár. Þá hefur Þuríður sinnt nokkuð þýðingum og þýddi hún m.a. ævisögu Margrétar Þórhildar Þuríður Kristjánsdóttir, prófessor emeritus – 90 ára Fjölskyldan frá Steinum Þuríður með foreldrum sínum og öðrum börnum þeirra, tengdabörnum og barnabörnum. Myndin var tekin á gullbrúðkaupsdegi Rannveigar Oddsdóttur og Kristjáns Franklíns Björnssonar í Steinum. Fyrsti kvenprófessor í sálfræði hér á landi Anna Þóra Steinþórsdóttir er 100 ára í dag, fædd á Hala í Suðursveit, dóttir Stein- unnar Guðmundsdóttur og Steinþórs Þórðarsonar, bænda þar. Anna Þóra var í Héraðsskól- anum á Laugarvatni og lærði saumaskap en vann lengst af við símavörslu hjá Olíu- verslun Íslands. Eiginmaður Önnu Þóru var Ólafur Sigurgeir Guðjónsson, húsgagnasmiður og verk- stjóri, f. 1911, d.1993, en börn þeirra eru Óskar Már Ólafsson og Guðrún Ólafs- dóttir. Anna Þóra hefur dvalið á Hrafnistu við Brúnaveg í Reykjavík undanfarin ár, hún heldur upp á daginn með fjölskyldunni. Árnað heilla 100 ára Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.