Morgunblaðið - 28.04.2017, Page 35

Morgunblaðið - 28.04.2017, Page 35
Danadrottningar, útg. 1990, og bók- ina Hvað er heyrnarleysi, í félagi við Ólaf Halldórsson, 1988. Þuríður hefur fengist nokkuð við ljóðagerð en ljóð hennar hafa m.a. birst í Borgfirðingaljóðum og í bók- inni Þá rigndi blómum, sem gefin var út í tilefni af 60 ára afmæli Sambands borgfirskra kvenna 1991. Þuríður hlaut riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu 1990 fyrir störf í þágu kennaramenntunar á Íslandi. Árið 2007 var hún heiðruð af félaginu Delta Kappa Gamma, félagi kvenna í fræðslustörfum, fyr- ir framlag sitt til félagsins og menntamála í landinu en hún var fyrsti formaður þess. Í tilefni af 70 ára afmæli Þuríðar, 1997, heiðruðu vinir hennar og samstarfsfólk hana með greinasafni um helstu viðfangsefni hennar á sviði menntunar og skólamála. Bók- in ber heitið Steinar í vörðu. Í upp- hafi bókar er viðtal við Þuríði þar sem hún greinir frá ævi sinni í stuttu máli, en þar eru einnig birt- ar frásagnir nemenda hennar í gegnum tíðina sem bera því vitni að þar hafi farið framúrskarandi góður kennari sem hafði góða stjórn á nemendum sínum og lét sér annt um þá. Fjölskylda Systkini Þuríðar: Málfríður Kristjánsdóttir, f. 20.11. 1912, d. 15.9. 1993, húsfreyja í Reykjavík; Oddur Kristjánsson, f. 11.8. 1914, d. 17.2. 2005, bóndi og hreppstjóri á Steinum í Stafholtstungum; Kristín Kristjánsdóttir, f. 18.6. 1917, d. 3.4. 2002, húsfreyja í Bakkakoti og síð- ar í Borgarnesi; Björn Krist- jánsson, f. 5.7. 1920, d. 12.7. 2007, ; húsgagnasmiður, húsasmiður og kennari í Reykjavík. Foreldrar Þuríðar voru Kristján Franklín Björnsson, f. 29.2. 1884, d. 19.4. 1962, bóndi, hreppstjóri og smiður á Steinum í Stafholts- tungum, og k.h., Jónína Rannveig Oddsdóttir, f. 11.11. 1890, d. 23.12. 1986, húsfreyja. Úr frændgarði Þuríðar Kristjánsdóttur Þuríður Kristjánsdóttir Þorbjörg Gunnarsdóttir húsfreyja á Hlíðarfæti Árni Jónsson b. á Hlíðarfæti í Svínadal, dbrm. og stúdents á Leirá í Melasveit Árnasonar Kristín Árnadóttir húsfreyja á Steinum Oddur Þorsteinsson b. á Steinum Jónína Rannveig Oddsdóttir húsfreyja á Steinum Þóra Oddsdóttir húsfreyja á Vatnsenda Þorsteinn Þorsteinsson b. á Vatnsenda í Skorradal Oddur Kristjánsson b., hreppstj., sýslunefndarm., húsasm.og járnsm. á Steinum Björn Kristjánsson húsasm. og kennari í Rvík Málfríður Kristjánsdóttir húsfr. í Rvík Málfríður Björnsdóttir ljósmóðir í Rvík Jóhann Björnsson bátsform. og hreppstj. á Akran. Helga Björnsd. húsfr. í Borgarnesi Garðar Halldórsson arkitekt og fyrrv. húsa- meistari ríkisins Jón Halldórsson hrl. á Seltjarnarnesi Halldór Þór Halldórsson rafmagnsverkfr. á Seltjn. Málfríður og Sigríður Einarsdætur skáldkonur Kristján Finnsson húsamíðam. í Rvík Björn Ásmundur Jóhannsson forstj.Vélaverkstæðis HB&Co Dr. Selma Jónsdóttir listfr. og fyrsti forstöðum. Listasafns Ísl. Halldór H. Jónsson arkitekt og stjórnar- form. í Rvík Guðmundur Björnsson sýslumaður í Borgarnesi Jósef Björnsson bóndi og oddviti á Svarfhóli Jón Björnsson kaupmaður í Borgarnesi Pétur Emil Júlíus Guðmundsson verkfr. og deildarstj. hjá RR. Ása S. Björnsdóttir húsfr. á Hvítárvöllum Ingólfur Hannesson fyrrv. deildarstj. íþróttad. RÚV Sæunn Oddsdóttir b. á Steinum Helga Jónsdóttir húsfr. á Hofsstöðum Jón Halldórsson b. á Hofsstöðum í Stafholts- tungum Þuríður Jónsdóttir húsfr. og ljósmóðir á Svarfhóli Björn Ásmundsson b. á Svarfhóli í Stafholtstungum Kristján Franklín Björnsson b., hreppst. og smiður á Steinum í Stafholtstungum Margrét Björnsdóttir húsfr. á Laxfossi Ásmundur Þórðarson b. á Laxfossi í Stafholtstungum Afmælisbarnið Þuríður Kristjáns- dóttir, prófessor emeritus við KHÍ. ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017 Skúli fæddist á Flateyri við Ön-undarfjörð 24.4. 1914. For-eldrar hans voru Halldór G. Skúlason, læknir í Reykjavík, og Unnur Skúladóttir Thoroddsen hús- móðir. Móðir Halldórs var Margrét Egg- ertsdóttir, bónda á Fossi í Vestur- hópi, bróður Helgu, langömmu- Björgvins Schram, forseta KSÍ, föður Ellerts B. Schram, fyrrv. for- seta ÍSÍ og fyrrv. ritstjóra og alþingismanns. Unnur var systir Guðmundar læknaprófessors, Katrínar, alþm. og yfirlæknis, Kristínar, yfirhjúkr- unarkonu og skólastjóra, Bolla borg- arverkfræðings og Sigurðar verk- fræðings, föður Dags skálds og afa Katrínar Jakobsdóttur mennta- málaráðherra. Unnur var dóttir Skúla Thorodd- sen alþm. og Theodóru Thoroddsen skáldkonu. Bróðir Skúla var Þórður, faðir Emils Thoroddsen tónskálds. Eiginkona Skúla var Steinunn Guðný Magnúsdóttir sem lést 1997, en börn þeirra eru Magnús arkitekt og Unnur fiskifræðingur. Skúli lauk prófi frá VÍ, prófi í kontrapunkti, tónsmíðum og útsetn- ingu frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1947 og prófi í píanóleik frá sama skóla 1948. Skúli var skrifstofumaður hjá SVR 1934-44 og skrifstofustjóri þar til 1985. Hann kenndi píanóleik 1948-52, var undirleikari hjá fjölda óperusöngvara og leikara. Skúli er í hópi þekktustu íslenskra tónskálda síðustu aldar. Hann samdi á annað hundrað sönglög, um tutt- ugu hljómsveitarverk og kamm- erverk og um tíu píanóverk. Þá komu út eftir hann tólf sönglög við ljóð Jóns Thoroddsen og tíu sönglög við ljóð Theodóru Thoroddsen. Hann fékk verðlaun frá Ríkisútvarp- inu fyrir lagaflokk sinn við ástarljóð Jónasar Hallgrímssonar. Skúli var í stjórn Tónlistarfélags- ins og STEF í tæp 40 ár, var formað- ur STEF í 20 ár og sat í stjórn BÍL í áratug. Skúli lést 23.7. 2004. Merkir Íslendingar Skúli Halldórsson 100 ára Anna Þóra Steinþórsdóttir 95 ára Sigrún L. Sigurðardóttir 90 ára Engilbert Ingvarsson Þuríður J. Kristjánsdóttir 85 ára Gunnar B. Guðlaugsson Marianne Glad Máni Sigurjónsson Páll Stefánsson 80 ára Emil Hólm Frímannsson Ingibjörg Þorgilsdóttir Kolbrún Þorláksdóttir Sigrún U. Sigurðardóttir Sigurður H. Sigurðsson Sigurjón Guðröðarson Trausti Pétursson 75 ára Auður Skarphéðinsdóttir Ásdís Berg Einarsdóttir Guðmundur Ólafsson Hulda Ólafsdóttir Ólafur G. Sveinsson Ólöf Ásta Kristjánsdóttir 70 ára Aðalheiður Ingvadóttir Guðbrandur Guðbrandsson Guðjón Ágúst Luther Guðrún M. Helgadóttir Gunnar Þ. Grettisson Jóhann Reynir Arason Jón Jakobsson Kristján Helgason Olga Hafberg Svava Heiðdal Hjartardóttir 60 ára Guðlaug Ragnarsdóttir Herdís Guðjónsdóttir Kristín Guðrún Gísladóttir Waldemar Kubylis Þorbjörg Valgarðsdóttir 50 ára Árni Jensen Davíð Egill Guðmundsson Hafþór Hallgrímsson Hallfríður Guðleifsdóttir Magnús Ragnarsson Sigrún Linda Þráinsdóttir Stefanía B. Sæmundsdóttir Svanhvít Guðmundsdóttir Zbigniew Salej Þorvaldur S. Arnarson 40 ára Antanas Milkevicius Daði Benediktsson Hildur Guðbrandsdóttir Hrafnhildur Fanngeirsdóttir Ingrida Úselyté Jón Smári Jónsson Karen Guðmundsdóttir Kjartan Páll Sveinsson Ómar Þór Lárusson Óskar Gunnarsson Pétur Kárason Sunna M. Sigurðardóttir Tryggvi Viðarsson Virginia E. Guðmundsdóttir 30 ára Andri Þór Eyjólfsson Ari Þór Kristinsson Birna Björk Sigurgeirsdóttir Hilmar Freyr Björnsson Kolfinna S. Haraldsdóttir Magnús Ingi Svavarsson Natalija Krumina Óli Stefánsson Rúna Sigurðardóttir Salmann Héðinn Árnason Sigurður Helgi Magnússon Valur Ingi Johansen Til hamingju með daginn 30 ára Sigurður ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk prófi í kvikmyndafræði við HÍ og starfar hjá Matsa. Bróðir: dr. Ágúst Ingvar Magnússon, f. 1982, heimspekikennari, Wis- consin í Bandaríkjunum. Foreldrar: Magnús Sig- urðsson, f. 1958, skrif- stofumaður hjá ÍSAM, og Jenný Magnúsdóttir, f. 1958, fyrrv. starfsmaður Breiðholtsskóla. Þau búa í Reykjavík. Sigurður Helgi Magnússon 30 ára Rúna ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk MSc-prófi í vörustjórnun við Frjálsa háskólann í Amsterdam og starfar hjá Geysi. Maki: Bergur Sigurjóns- son, f. 1986, sérfræðingur hjá innanríkisráðuneytinu. Sonur: Stígur Bergsson, f. 2016. Foreldrar: Sigurður Ármannsson, f. 1956,og Linda Wright, f. 1955. Rúna Sigurðardóttir 30 ára Magnús ólst upp í Reykjavík og Dalvíkur- byggð, býr á Reyðarfirði og starfar við Alcoa á Reyðarfirði. Maki: Oddný Alda Bjarna- dóttir, f. 1987, starfs- maður við trésmíðaverk- stæði. Foreldrar: Sigríður Kol- brún Guðmundsdóttir, f. 1966, verslunarmaður á Dalvík, og Svavar Magn- ússon, f. 1960, starfs- maður Sæplasts á Dalvík. Magnús Ingi Svavarsson Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • www.tonastodin.is gerðu tónlist á makkann þinn Duet 2 stúdíógæði í lófastærð One fyrir einfaldar upptökur MiC hágæða upptökur Jam alvöru gítarsánd

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.