Morgunblaðið - 28.04.2017, Síða 38

Morgunblaðið - 28.04.2017, Síða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017 PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til kl. 16 mánudaginn 8. maí SÉRBLAÐ –– Meira fyrir lesendur Heimili & hönnun fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 12. maí Í blaðinu verða kynntir margir möguleikar sem í boði eru fyrir þá sem vilja hafa fallegt í kringum sig, breyta og bæta heimilið. Skoðuð verða húsgögn og innréttingar, skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið, litir og lýsing ásamt mörgu öðru. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Kvikmyndatónskáldið Atli Örv- arsson stjórnar flutningi Sinfóníu- hljómsveitar Norðurlands á eigin tónverkum í Hofi á Akureyri á sunnudaginn kl. 20. Atli á að baki um 18 ára feril sem kvikmynda- og sjónvarpsþáttatónskáld, starfaði lengst af í Los Angeles en flutti í fyrra aftur til síns gamla heima- bæjar, Akureyrar. Á tónleikunum mun Kammerkór Norðurlands koma fram með sin- fóníuhljómsveitinni, einnig söng- konan Þórhildur Örvarsdóttir, syst- ir Atla, og einleikarar verða hin enska Caroline Dale á selló og Greta Salóme á fiðlu. Atli hefur samið tónlist við yfir 40 kvikmyndir og hundruð sjónvarpsþátta og má af þeim nefna kvikmyndirnar Stuart Little, Hansel & Gretel: Witch Hunters, The Eagle, Vantage Point, The Perfect Guy og Hrúta og sjón- varpsþætti NBC-sjónvarpsstöðv- arinnar sem kenndir eru við Chi- cago-borg, m.a. Chicago Fire sem sýndir eru á RÚV. Atli var á tíma- bili í teymi eins virtasta kvikmynda- tónskálds heims, Hans Zimmer, og kom að gerð tónlistar við kvik- myndirnar The Holiday, Pirates of the Caribbean, The Simpsons Mo- vie, Angels & Demons og Man of Steel. Með tónlistina í blóðinu „Ég byrjaði í tónlistarskóla þegar ég var fimm, sex ára. Faðir minn var tónlistarmaður, Örvar Krist- jánsson harmonikkuleikari, móðir mín syngur í kórum og afabróðir minn er kórstjóri á Akureyri þannig að þetta er svolítið í blóðinu,“ segir Atli þegar hann er spurður að því hvenær áhugi hans á tónlist hafi kviknað. „Ég man ekki nákvæmlega hvernig það vildi til en allt í einu var ég kominn í tónlistarskóla og hef verið í músík upp frá því,“ segir hann kíminn. Í sínum fyrstu tónlist- artímum hafi hann fengið að leika á orgel hjá afabróður sínum, Áskeli Jónssyni, fært sig þaðan yfir á blokkflautu og endað með því að leika á trompet fram á unglingsár. „Þá ákvað ég að spila meira rokk og ról,“ segir hann. Rokkarinn Atli lék með mörgum hljómsveitum á sínum tíma, var fyrst í Stuðkompaníinu með bróður sínum Karli, síðan lá leiðin í Todmo- bile sem hann lék með í stuttan tíma, þá Sálina hans Jóns míns og loks SSSól. Atli segist hafa verið byrjaður í námi þegar hann lék með SSSól en hann nam tónsmíðar í Berklee College of Music í Boston í Bandaríkjunum. „Ég var ekkert ákveðinn í að fara í tónsmíðanám þegar ég fór þangað, ég var svolítið leitandi, jafnvel að spá í að læra djasspíanóleik en svo fékk ég eig- inlega vitrun þegar ég var í náminu. Það er kröftug kvikmyndatónlist- ardeild í Berklee og ég ákvað að prófa einn kynningarkúrs þar og fann fjölina mína,“ segir Atli. Þessi samruni myndar og tónlistar hafi heillað hann. –Þetta er eftirsóknarvert starf, að semja tónlist við kvikmyndir og sjónvarpsþætti í Bandaríkjunum. Hvernig tókst þér að komast inn um þær dyr? „Ég sendi verk í tónsmíða- samkeppni þegar ég var um það bil að klára námið, komst í þriggja manna úrtak og fór í læri hjá læri- meistara í L.A. sem heitir Mike Post. Eins og í öllum öðrum grein- um og brönsum snýst þetta mikið um hvern maður þekkir. Auðvitað kom tónlistin mér inn en svo var það bara að fara inn um réttu dyrn- ar og kynnast rétta fólkinu.“ –Og svo stækka verkefnin eftir því sem á líður, þ.e. ef menn eru ánægðir með það sem þú gerir? „Jú, þau gera það náttúrlega. Þetta er langt ferli og mjög margir um hituna. Maður er óþolinmóður þegar maður er ungur en lærir seinna að það er ástæða fyrir því að þetta þarf að taka langan tíma. Það tekur langan tíma að verða sæmi- lega góður í að tengja tónlist við mynd og kalla fram réttu tilfinning- arnar og stemninguna,“ svarar Atli. –Hvað einkennir þig sem kvik- myndatónskáld? „Það er kannski fjölhæfni að vissu leyti og ég er frekar mel- ódískur tónsmiður. Það er minn út- gangspunktur oftast nær eða alla vega þar sem við á.“ Víða komið við –Var ekkert erfitt að velja verk á efnisskrá tónleikanna í Hofi? Þú hlýtur að hafa samið þau ansi mörg á 18 árum … „Jú, jú, það var snúið en gaman líka, áhugavert að fara í gegnum katalóginn og lærdómsríkt en þegar allt kemur til alls þarf maður að velja verk sem spilast vel á tón- leikum, það er ekki það sama og að semja „score“ fyrir kvikmynd,“ seg- ir Atli. Stef og tónlist við mikilvæg augnablik úr völdum kvikmyndum verði því á efnisskránni, tónlist úr ólíkum kvikmyndum á borð við Hrúta og Mortal Instruments. „Svo flytjum við tónlist úr tveimur kvik- myndum sem ég tók upp hér á Ak- ureyri með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, amerískri mynd sem heitir The Perfect Guy og Fyrir framan annað fólk,“ segir Atli og nefnir einnig The Eagle. „Það er komið víða við, tónlistarlega er þetta allt frá stórum, epískum kór- og hljómsveitarverkum yfir í þjóð- lagatónlist.“ Skemmtilegir Hrútar og frábær Zimmer Atli er beðinn um að líta yfir fer- ilinn og nefna verkefni sem honum hafi þótt sérstaklega skemmtileg og gefandi. „Það var æðislegt að vera hluti af Hrúta-ævintýrinu. Það var mjög óvænt og skemmtilegt og í rauninni fyrsta verkefnið sem ég gerði hér heima. En það má nefna margt, The Eagle var mjög skemmtilegt verkefni, þá fór ég til Skotlands og vann með skoskum tónlistarmönnum sem hafa sérhæft sig í því að endurgera forna, skoska tónlist, var í kirkju í Edinborg með gömlum körlum sem hafa verið að spá í bronsaldarlúðra alla sína ævi,“ segir Atli sposkur. Góðu stundirnar séu margar, m.a. þegar hann stjórn- aði stórri hljómsveit í hljóðverinu Abbey Road. „Svo var frábært að fá að vinna með Hans Zimmer, hann er snillingur og gaman að vera inn- an um svoleiðis fólk.“ Atli hefur nóg að gera á Akur- eyri, er þessa dagana að semja tón- list við Hollywood-myndina The Hitman’s Bodyguard sem Patrick Hughes leikstýrir og er með Ryan Reynolds og Samuel L. Jackson í aðalhlutverkum. „Þetta er svona spennu-aksjón-kómedía,“ segir Atli um myndina og að þó hún sé popp- kornsræma vilji leikstjórinn hafa sál í henni. „Ég held að við séum að gera skemmtilega hluti þarna,“ seg- ir Atli um verkefnið en leikstjórinn heimsótti hann norður fyrir nokkr- um vikum. „Við vorum að taka upp slatta af trommum og hinu og þessu, söng og munnhörpu og guð má vita hvað,“ segir Atli að lokum. Melódískur og fjölhæfur  Atli Örvarsson stjórnar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í flutningi á eigin tónsmíðum  „Allt frá stórum, epískum kór- og hljómsveitarverkum yfir í þjóðlagatónlist,“ segir Atli um efnisskrána Morgunblaðið/Skapti Afkastamikill Atli Örvarsson hefur samið tónlist við tugi kvikmynda og hundruð sjónvarpsþátta á ferli sínum. Víkingur Heiðar Ólafsson og Emil- íana Torrini eru tilnefnd fyrir Ís- lands hönd til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 2017. Tilnefn- ingarnar voru kynntar á upphafs- tónleikum AprilJazz-hátíðarinnar í Helsinki í fyrrakvöld. Verðlaunin eru annað hvert ár veitt núlifandi tónskáldi og hitt árið flytjendum. Frá Svíþjóð eru tilnefnd Martin Fröst og Seinabo Sey; frá Dan- mörku FIGURA Ensemble og The Danish String Quartet; frá Finn- landi Susanna Mälkki og Iiro Ran- tala; frá Noregi eru Supersilent og Lise Davidsen; frá Færeyjum Yggdrasil; frá Grænlandi Nanook og frá Álandseyjum Jenny Carl- stedt. Norræn dómnefnd útnefnir verð- launahafann og verða úrslit tilkynnt við hátíðlega athöfn 1. nóvember nk. í Finlandia-húsinu í Helsinki í tengslum við Norðurlandaráðsþing. Í verðlaun eru 350 þúsund danskar krónur. Við sama tækifæri verða fern önnur verðlaun Norður- landaráðs afhent. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ánægð Emilíana og Víkingur Heiðar á blaðamannafundi í Norræna húsinu í gær. Víkingur Heiðar og Emilíana tilnefnd

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.