Morgunblaðið - 28.04.2017, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 2017
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Sýningin er lokapunktur í sjón-
varpsröðinni sem við Markús höfum
verið að vinna með RÚV með það
að markmiði að gefa áhorfendum
innsýn í heim samtímalistar,“ segir
Dorothée Kirch sem ásamt Markúsi
Þór Andréssyni er sýningarstjóri
sýningarinnar Opnun sem opnuð
verður á morgun (laugardag) kl. 17,
en um er að ræða aðra sýningu
Kling & Bang í Marshall-húsinu.
Þar sýna verk sín þau Egill Sæ-
björnsson, Elín Hansdóttir, Eygló
Harðardóttir, Haraldur Jónsson,
Hildur Bjarnadóttir, Helgi Þórsson,
Hrafnhildur Arnardóttir (Shop-
lifter), Inga Svala Þórsdóttir & Wu
Shanzhuan, Ingólfur Arnarsson,
Ólafur Sveinn Gíslason, Ragnar
Kjartansson og Rebekka Moran.
Endurspegla ólík hugðarefni
„Myndlistarmennirnir tólf eru
fæddir á árunum 1956-80 og eiga
það sameiginlegt að hafa náð að
verja nokkrum árum til að móta
feril sinn og listsköpun. Verk þeirra
hafa ýmist orðið til í frjálsum til-
raunum eða hnitmiðaðri rannsókn-
arvinnu, þau endurspegla ólík hugð-
arefni og aðferðir og þeim er komið
á framfæri í fjölbreyttum miðlum.
Um leið og verkin draga okkur til
sín og inn í hugarheim höfunda
sinna, beina þau sjónum til baka því
myndlistin speglar okkur sjálf sem
áhorfendur og opnar veröldina
alla,“ segir Dorothée og tekur fram
að við val á sýnendum hafi verið
markmiðið að ná yfir breitt svið.
Margræður titill
„Okkur fannst spennandi að
vinna sýningu sem fengi samhliða
svona góða kynningu eins og raunin
er í sjónvarpi allra landsmanna. Það
er ekki á hverjum degi sem almenn-
ingur fær svona góða innsýn í
vinnuaðferðir og hugsunarhátt
listamanna,“ segir Dorothée, en við
undirbúning sýningarinnar Opnun
ræddu sýningarstjórar við lista-
mennina tólf í samnefndri sjón-
varpsþáttaröð sem verið hefur á
dagskrá RÚV síðustu vikur, en
þættina má nálgast á Sarpinum
fram yfir sýningarlok í júní.
Að sögn Dorothée er titill sýning-
arinnar margræður og vísar m.a. til
þess að listamenn opni vinnustofur
sínar, opið sýningarrými og opnar
samræður. „Opnun er tilvalið leið-
arstef og tengist beint því sem
myndlistin snýst um. Þar eru lista-
menn að opna sig ásamt því að vera
opnir fyrir nýjum hugmyndum og
opna hulinn heim auk þess sem sí-
fellt er verið að opna sýningar.“
Talað á mannamáli án isma
Fræg eru orð Birgis Andr-
éssonar myndlistarmanns þess efn-
is að á Íslandi væri fjallað um
myndlist í útvarpi og bókmenntir í
sjónvarpi. Þegar blaðamaður rifjar
ummælin upp segir Dorothée ljóst
að sýning sjónvarpsþáttaraðarinnar
Opnun marki ákveðin tímamót.
„Markmið okkar var að sýna fram á
að sjónvarpsþættir um myndlist
þurfa ekki að vera leiðinlegir og ég
held að okkur hafi tekist ætl-
unarverk okkar. Við einsettum okk-
ur strax að tala um hlutina á
mannamáli og festast ekki í fræðum
eða einhverjum ismum. Við erum
sannfærð um að allir geti tekið þátt
í þessu samtali ef þeir fá tækifæri
til þess,“ segir Dorothée og tekur
fram að góðar viðtökur almennings
við þáttunum hafi komið þeim
Markúsi ánægjulega á óvart. „Það
er greinilegt að fólki finnst þetta
spennandi og er forvitið um sýn-
endur. Ég held að okkur hafi tekist
að sýna fram á að það er hægt að
gera þetta viðfangsefni skemmti-
legt fyrir marga í sjónvarpsformi,“
segir Dorothée og tekur fram að
hún vonist til þess að framhald
verði á vandaðri og góðri umfjöllun
um myndlist í sjónvarpi.
Aðspurð fagnar Dorothée opnun
Marshall-hússins. „Þetta er geggjað
hús og ótrúlega skemmtileg viðbót í
myndlistarflóru bæjarins. Síðustu
misseri höfum við uggandi horft á
hvert listamannarekna galleríið í
miðbæ Reykjavíkur lokast á fætur
á öðru. Marshall-húsið er komið til
að vera og það skiptir mjög miklu
máli fyrir alla listasenuna og sam-
félagið allt. Með opnun hússins líð-
ur mér eins og við höfum endur-
heimt Reykjavík aftur úr klóm
túrismans.“
Þess má að lokum geta að sýn-
ingin stendur til 11. júní og er opin
miðvikudaga og föstudaga til
sunnudaga milli kl. 12 og 18 og
fimmtudaga milli kl. 12 og 21, en
lokað er á mánu- og þriðjudögum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Samtal Sýningarstjórarnir Dorothée Kirch og Markús Þór Andrésson í Marshall-húsinu.
Opnun er lokapunktur
Önnur sýning Kling & Bang í Marshall-húsinu verður
opnuð á morgun Sjónvarpsþáttaröð endar með sýningu
Í tilefni þess að í júlí verða 200 ár
liðin frá því Jane Austen lést
stendur Félag um átjándu aldar
fræði fyrir málþingi um skáldkon-
una í fyrirlestrarsal á 2. hæð í
Þjóðarbókhlöðunni á morgun,
laugardag, milli kl. 13.30 og 16.15.
Þar verða flutt fjögur erindi.
Anna Agnarsdóttir, prófessor í
sagnfræði við Háskóla Íslands,
fjallar um enskt þjóðfélag á ævi-
skeiði Jane Austen; Guðrún Björk
Guðsteinsdóttir, prófessor í ensk-
um bókmenntum við HÍ, fjallar um
stöðu Jane Austen í sögu enskra
bókmennta; Silja Aðalsteinsdóttir
ritstjóri fjallar um viðhorf til
stöðu kvenna í skáldsögum Jane
Austen og Alda Björk Valdimars-
dóttir, dósent í almennri bók-
menntafræði við HÍ, fjallar um
áhrif Jane Austen á skvísusögur.
Fundarstjóri er Ragnhildur Braga-
dóttir sagnfræðingur. Útdrættir
úr erindum verða aðgengilegir á
vefnum fraedi.is/18.oldin/. Allir
eru velkomnir meðan húsrúm leyf-
ir.
Jane
Austen
Silja
Aðalsteinsdóttir
Anna
Agnarsdóttir
Alda Björk
Valdimarsdóttir
Tvö hundruð ára ártíð Jane Austen
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
TILBOÐ KL 4
TILBOÐ KL 4
TILBOÐ KL 4
SÝND KL. 4SÝND KL. 8
SÝND KL. 10.25SÝND KL. 4
SÝND KL. 4, 7, 10 SÝND KL. 7, 10