Morgunblaðið - 28.04.2017, Page 44

Morgunblaðið - 28.04.2017, Page 44
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 118. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 548 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR. 1. Norskri stúlku rænt á Kýpur 2. Úrskurðuð látin en lifnaði við 3. Fannst á lífi eftir 47 daga 4. Kjör Stefáns Vagns „mannleg mistök“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Á ráðstefnu sem hefst á Höfn í Hornafirði í dag og stendur fram á sunnudag verður fjallað um jökla í bókmenntum, listum og lífinu. Fyrir ráðstefnunni stendur Rannsóknar- setur Háskóla Íslands á Höfn og hef- ur boðið til hennar rithöfundum og fræðimönnum á sviði bókmennta, myndlistar, heimspeki og jöklafræða. Meðal gesta verða höfundarnir Stein- unn Sigurðardóttir, Linda Vilhjálms- dóttir og Ófeigur Sigurðsson sem öll hafa fjallað um jökla í skrifum sínum. Í tengslum við ráðstefnuna verða settar upp sýningar af ýmsu tagi; í Listasafni Svavars Guðnasonar verð- ur málverkasýning auk sýningar á kortum og gömlum og nýjum ljós- myndum. Í Nýheimum verða einnig nokkrar sýningar um jökla. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjallað um jökla í listum og í lífinu  Samtök ungra skálda (SUS) standa fyrir ljóðakarókípartíi á Gauknum, Tryggvagötu 22, í kvöld kl. 20. Verður þar lesið úr verkum fjölda skálda, bæði viðstaddra og fjarstaddra, eins og karókíkvöldi hæfir, að því er fram kemur í tilkynningu. Að ljóðadagskrá lokinni tekur við hefðbundið söng- karókí á Gauknum. Ljóðskáldin sem koma fram eru Bragi Ólafsson, El- ísabet Guðrúnar og Jónsdóttir, Fríða Ísberg, Hildur Knútsdóttir, Kristín Svava, Kristófer Páll Viðarsson, Lommi (Jón Örn Loðmfjörð), Skarphéðinn Bergþóruson og Solveig Thoroddsen. Ungskáld standa fyr- ir ljóðakarókípartíi Á laugardag Suðaustan 8-15 m/s, hvassast á annesjum. Skúrir eða slydduél, en þurrt að kalla norðvestantil. Hiti 3 til 11 stig, hlýj- ast á Norðurlandi. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustanátt, víða 13-18 m/s og rigning, en slydda til fjalla og þurrt fyrir norðan. Hægara og úrkomuminna suðvestantil seint í kvöld. Hiti 2 til 11 stig, hlýjast norðan heiða. VEÐUR Eftir að hafa lent 1:2 undir í einvíginu um Íslandsmeist- aratitilinn í blaki kvenna á móti Aftureldingu kom kvennalið HK gríðarlega sterkt til leiks og vann tvo leiki í röð 3:1 og tryggði sér þar með sinn fimmta Ís- landsmeistaratitil í odda- leik liðanna í Fagralundi í gærkvöld. HK er því tvöfald- ur meistari í blaki í ár því karlaliðið vann líka titilinn á dögunum. »1 HK tvöfaldur meistari í blaki Þór/KA vann sigur- stranglegasta liðið KR og Grindavík leika hreinan úrslitaleik um Íslandsmeist- aratitil karla í körfuknattleik á sunnudagskvöldið því Grindvík- ingar unnu sannfærandi sigur í fjórða leik liðanna í gærkvöld, 79:66. Grindvíkingar hafa því jafnað einvígið af mikilli seiglu eftir að KR vann tvo fyrstu leiki liðanna. »2-3 Hreinn úrslitaleikur í Vesturbænum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Rögnvaldur Hreiðarsson er reynd- asti körfuboltadómari landsins. Hann hefur dæmt 1.797 leiki á um 22 árum fyrir Körfuknattleikssamband Íslands, auk verkefna erlendis, æf- ingaleikja og annarra leikja, en Jón Otti Ólafsson, sem hætti að dæma 1994, dæmdi 1.673 leiki. Leikmenn eru gjarnan fengnir til þess að dæma leiki í yngri flokkum. „Þegar ég æfði körfubolta með Val voru allir skikkaðir til þess að dæma í fjölliðamótum og það var ást við fyrstu sýn,“ segir Rögnvaldur um dómgæsluna. „Ég gat ekkert í körfubolta, byrjaði seint að æfa og á aðeins skráðan einn leik í úrvals- deild, en kom ekkert inná. Þess vegna gerðist ég dómari, þegar ég var þrítugur, og þá varð ekki aftur snúið.“ Fyrst og fremst gaman Rögnvaldur segir erfitt að útskýra hvað haldi honum við efnið. Hann bendir á að dómarar séu íþrótta- menn og þeir hagi sér eins og íþróttamenn. „Þetta er fyrst og fremst gaman en maður vill alltaf bæta sig, fá fleiri og betri leiki,“ seg- ir hann. „Þetta er stöðug keppni með gleði og sorgum. Stundum er dóm- gæslan erfið og það þarf þrautseigju til þess að halda áfram, sama hvað á gengur.“ Hann bætir við að dómarar viti það best sjálfir þegar þeir gera mistök og það sé erfitt að fara með þau heim á bakinu. „Það er jafn erf- itt fyrir okkur og aðra þátttakendur í leiknum.“ Körfuboltafjölskyldan er stór og Rögnvaldur segir ánægjulegt að til- heyra henni, en auk þess að dæma hefur hann sinnt ýmsum öðrum störfum fyrir hreyfinguna, til dæmis verið í stjórn körfuknattleiksdeildar Vals um árabil og dómaranefnd KKÍ í 10 ár. „Dómarastarfið er ekki bara það að dæma og fara síðan heim að sofa heldur er þetta lífsstíll.“ Rögnvaldur er rakari á Rakara- stofunni á Hótel Sögu en var lengi með eigin stofu. Hann segir að vel hafi gengið að samhæfa áhugamálið, vinnu og heimilislíf. „Körfuboltinn er hluti af lífinu og ég hef aldrei litið á dómgæsluna sem fórn, þó þetta sé tímafrekt. Ég elska iþróttina og èg finn alltaf fiðringinn, jákvæðu spennuna, sem þarf að vera til stað- ar. Auk þess hefur verið frábær fèlagsskapur og vinátta innan dóm- arahópsins frá fyrsta degi.“ Leikirnir eru margir, þar af 539 í efstu deild karla, 140 í úrslitakeppn- inni og 230 í efstu deild kvenna, og Rögnvaldur segir erfitt að benda á eftirminnilegasta leikinn. „Fyrstu stóru leikirnir eru auðvitað eft- irminnilegir og ég gleymi aldrei fjór- framlengdum leik hjá Keflavík og Grindavík í úrslitakeppninni föstu- daginn langa 2009. Annars er það yf- irleitt síðasti leikur sem stendur upp úr.“ Oft er talað um að dómgæslan sé vanþakklátt starf. Rögnvaldur segir að dómarar hafi reynt að breyta hugsunarhættinum og bent á að það sé ekki síður vanþakklátt starf að vera leikmaður eða stjórnarmaður. „Það er krefjandi að vera í íþróttum og dómarastarfið er fyrst og fremst krefjandi,“ segir hann. „Við kveink- um okkur ekki undan gagnrýni. Krafan um að dómarar geri ekki mistök er alltaf til staðar og það breytist aldrei. Dómarar eiga ekki að gera mistök en hinn fullkomni leikur hefur aldrei verið dæmdur og það mun aldrei gerast.“ Að dæma í efstu deild í 22 ár er langur tími. Rögnvaldur segir að enginn endist svona lengi nema að hafa metnað fyrir starfinu, hvort sem er í úrslitakeppni hjá yngstu iðkendunum eða þeim bestu. „Við störfum í góðu umhverfi og virðing er borin fyrir dómurum í körfubolta. Við finnum fyrir því og sú virðing er gagnkvæm.“ Rögnvaldur segir að ástríðan fyrir dómgæslunni sé jafnmikil nú og þeg- ar hann byrjaði 1995. „Ég er í góðu formi og mér hefur verið treyst fyrir mikilvægum verkefnum. Ég verð 53 ára í sumar og held áfram að dæma eins lengi og mér er treyst fyrir því.“ Leikurinn er lífsstíll  Rögnvaldur hefur dæmt 1.797 körfuboltaleiki Morgunblaðið/Golli Dómarar Sigmundur Már Herbertsson, Rögnvaldur Hreiðarsson og Jón Guðmundsson í leik fyrir tveimur árum. Valskonum var spáð Íslandsmeist- aratitlinum í knattspyrnu kvenna á dögunum en þær máttu sætta sig við tap gegn Þór/KA í fyrstu umferð deildarinnar á Akureyri í gærkvöld. Íslandsmeistarar Stjörnunnar unnu Hauka 5:1, Breiðablik vann nauman sigur á FH og Fylkir lagði Grindavík að velli. »2-3

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.