Morgunblaðið - 16.05.2017, Side 10

Morgunblaðið - 16.05.2017, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017 Veit á vandaða lausn Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is MIKILVÆGUR STUÐNINGUR Bjóðum mikið úrval af alls kyns stuðningshlífum. Vandaðar vörur á góðu verði. BAKBELTI HNÉSPELKUR ÚLNLIÐSHLÍF Bakbelti við langvarandi bak- verkjum, óstöðugleika í mjóbaki, skriði, brjósklosi ofl. Hnéspelka við krossbandasköðum, liðþófameiðslum og eftir aðgerðir á liðþófa, liðagigt o.fl. Úlnliðshlíf sem vinnur á móti bjúg- myndun. Notað t.d. við tognun í úlnlið, sinaskeiðabólgu eða gigtarverkjum. Nú í samn ingi við Sjúkratry ggingar Íslands Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Tilkynnt var um endurfundi tveggja íslenskra kría erlendis frá á árinu. Í júlí var lesið á stálmerki ársgamallar kríu á Seal Island í Maine-fylki í Bandaríkjunum og í nóvember fannst aðframkomin fullorðin kría í Linharesborg í Brasilíu sem drapst skömmu síð- ar. Fuglinn var 9.399 km frá merkingastað og er krían mesti ferðalangur ársins, en þetta er jafnframt tíunda lengsta skráða ferðalag íslensks fuglamerkis frá upphafi. Tilkynnt var um nokkra aðra fugla sem náðust eða sáust mjög fjarri merkingarstað. Þannig barst tilkynning í janúar í fyrra um spóa sem var skotinn í Senegal í apríl 2013 og var tilkynning um endurheimtuna og dauða hans þrjú ár á leiðinni. Spóinn fannst 5.873 kílómetra frá merkingastað, en hann var merktur sem ófleygur ungi í Engidal vorið 2004. Einnig var tilkynnt um tvo litmerkta síla- máfa í Gambíu og sanderlu í Mári- taníu. 697.347 fuglar af 156 tegundum Þetta er meðal þess sem kemur fram í skýrslu um fuglamerkingar á síðasta ári, en það var 96. ár fuglamerkinga á Íslandi og það 85. í umsjón Íslendinga. Frá upphafi hafa alls verið merktir hérlendis 697.347 fuglar af 156 tegundum. Náttúrufræðistofnun Íslands hefur umsjón með verkefninu og er Guð- mundur A. Guðmundsson formað- ur fuglamerkingaráðs. Þær teg- undir sem mest var merkt af á árinu voru 3810 auðnutittlingar, 2051 skógarþröstur, 1852 kríur, 1007 ritur og 766 lundar. „Vonandi endurspeglar næst- mesti fjöldi merktra kría frá upp- hafi, 38 fullvaxnir fuglar og 1.813 ungar, að varpárangur sé loksins að lagast hjá þeim, en ekki hafa verið merktar fleiri á einu ári síð- an 2009,“ segir á heimasíðu Nátt- úrufræðistofnunar. 55 merking- armenn skiluðu skýrslum um merkingu á alls 16.476 fuglum af 81 tegund. Þetta er metfjöldi merkingarmanna og þriðja stærsta ár frá upphafi í fjölda merktra fugla. Fjórir aðilar merktu yfir þúsund fugla á árinu 2016. Það voru Sverrir Thor- stensen, sem merkti 3.324 fugla, Ingvar A. Sigurðsson 2.279, Fuglaathugunarstöð Suðaust- urlands 2.229 fugla og Gunnar Þór Hallgrímsson merkti 1.480 fugla. Þrítug álft í Bárðardal Tvær tegundir voru merktar í fyrsta sinn; brandandarungar voru merktir í Svefneyjum á Breiðafirði og hrístittlingur var merktur í fuglaathugunarstöð Suðaustur- lands í Einarslundi. Alls endurheimtust 29 fuglar með erlend merki á árinu; 21 frá Bretlandseyjum, 5 frá Noregi og eitt merki frá hverju eftirtalinna; Belgíu, Hollandi og Portúgal. Auk þess hafa hundruð litmerkja verið lesin af ýmsum fuglategundum sem merktar hafa verið hérlendis og erlendis. Sett voru nokkur ný íslensk aldursmet. Álftin BXN sást í maí í Bárðardal, þá 29 ára og 11 mán- aða. Ekki var eldri álft að finna á lista yfir evrópsk aldursmet, en fram kemur í greinargerð að skrá EURING yfir evrópsk aldursmet virðist illa við haldið því litlar breytingar hafa orðið á henni frá 2010. Nýlega bárust síðan fréttir af því að aldursforsetinn hefði fundist dauður við Hriflu. Á árinu endurheimtist 29 ára gömul stormsvala í merkingarleið- angri í Elliðaey í ágúst og tæplega fjögurra ára gamall auðnutitt- lingur á Húsavík. Merkt kría í Brasilíu ferðalangur ársins  Fuglamerkingar í 96 ár  Krían að rétta úr kútnum? Morgunblaðið/RAX Merkingar Ólafur Torfason með margæs sem fönguð var á Álftanesi vorið 2005, vigtuð þar og merkt. Við hlið hans er Guðmundur A. Guðmundsson. Bóndinn sem leigt hefur meginhluta túna Stórólfsvallarbúsins við Hvols- völl er að kaupa hluta jarðarinnar fyrir 76 milljónir króna. Héraðsnefnd Rangæinga hefur verið með hluta jarðarinnar Stórólfs- vallar til sölu hjá fasteignasölu í fjög- ur ár. Egill Sigurðsson, oddviti Ása- hrepps og formaður héraðs- nefndarinnar, segir að nokkrar fyrirspurnir hafi borist á þessum tíma og tilboð en þau hafi verið lág. Nú hafi borist tilboð sem héraðs- nefndinni hafi þótt eðlilegt að bera undir sveitarstjórnirnar þrjár sem standa að héraðsnefndinni, Rangár- þing eystra, Rangárþing ytra og Ás- hrepps. Verksmiðjuhúsin voru seld Um er að ræða 212 hektara lands, allt land jarðarinnar sunnan vegar. Það eru aðallega tún grasköggla- verksmiðjunnar sem þar var starf- rækt. Verksmiðjuhúsin eru á sér- stakri 8 hektara lóð. Ríkið seldi þau fyrir allmörgum árum. Egill segir að þetta sé gríðarlega gott ræktunar- land. Félagið Stórólfur heldur utan um fasteignirnar og í þeim er ým- iskonar starfsemi. Bjarni Haukur Jónsson, kúabóndi í Dufþaksholti, hefur haft stóran hluta túnanna á leigu. Hann gerði nú tilboð í landið og bauðst til að kaupa það fyrir 76 milljónir kr. Héraðs- nefndin hefur samþykkt það og einn- ig sveitarstjórnirnar þrjár. Egill segir að landið sem nú er verið að selja sé skilgreint sem land- búnaðarland og ekki standi til að byggja þar. Hvolsvöllur sé ekki í neinni landþröng. Til að mynda eigi héraðsnefndin enn 340 hektara af landi Stórólfsvallar norðan Suður- landsvegar. helgi@mbl.is Selja tún Stórólfs- vallar á 76 milljónir  Héraðsnefnd Rangæinga lengi haft landið til sölu Morgunblaðið/Árni Sæberg Hvolsvöllur Sala á hluta Stórólfs- vallar þrengir ekki að þorpinu. Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Verði flugfélög fyrir því að flug- vallarbílar, sem eru á vegum annarra en þeirra, aki á flugvélar á flugvöllum ber viðkomandi flugfélagi að bera það tjón sem af getur hlotist. Þetta er mat Samgöngustofu, sem nýverið úr- skurðaði í kvörtunarmáli farþega sem átti bókað flug með Flugfélagi Íslands frá Keflavík til Aberdeen í Skotlandi í fyrrasumar og gerði fé- laginu að greiða farþeganum fébæt- ur. Árni Gunnarsson, framkvæmda- stjóri félagsins, er ósammála úr- skurðinum og segir að verið sé að skoða hvort hann verði kærður til innanríkisráðuneytisins. Forsaga málsins er að flugferðinni, sem áætluð var 22. ágúst í fyrra, var aflýst eftir að flugvallarbíll ók á vél- ina, skemmdi hana og því var hún ekki í flughæfu ástandi. Farþeganum sem kvartaði og öðrum farþegum var komið á áfangastað með öðrum leið- um. Farþeginn sendi Samgöngustofu kvörtun þar sem hann fór fram á bætur, kvörtunin var send Flugfélagi Íslands til umsagnar og í svari fé- lagsins kemur fram að það telji að um óviðráðanlegar aðstæður sé að ræða, þar sem tjónið á vélinni hafi verið af völdum þriðja aðila, þ.e. flug- rekstrarbíls. Því var Samgöngustofa ekki sammála, þar sem um var að ræða atvik af völdum þriðja aðila sem tengist venjulegri starfsemi flugrek- anda. Ekkert bendi til þess að atvikið megi rekja til einhvers sem falli utan hefðbundinnar flugvallarþjónustu, akstur flugvallarbílsins hafi ekki ver- ið óvenjulegur og ekkert bendi til þess að um skemmdarverk hafi verið að ræða eða ásetning af einhverju tagi, eins og segir í ákvörðun Sam- göngustofu. Bera tjón af alls óskyldum aðila „Að okkar mati voru þetta óviðráð- anlegar aðstæður,“ segir Árni. „Bíll- inn var ekki á okkar vegum, heldur voru þetta starfsmenn annars fyrir- tækis sem sér um afgreiðslu á flug- vellinum. Við berum núna tjón af at- viki sem aðili okkur alls óskyldur olli. Ef þetta er almenn túlkun á þeirri reglugerð, sem er í gildi í Evrópu, þá finnst okkur hún nokkuð sérstök.“ Eftir atvikið þurfti að endurbóka farþegana í aðrar flugferðir, sem að sögn Árna tók nokkurn tíma. Það hafi ekki tekist innan þriggja tíma eftir upprunalegan brottfarartíma og því hafi farþegar átt rétt á fébótum. Hann segir að forsvarsmenn flug- félagsins hafi ekki tekið ákvörðun um hvort ákvörðun Samgöngustofu verði kærð til ráðuneytisins, verið sé að kanna það innan félagsins. „En við erum farin að skoða ábyrgð fyrirtækisins sem á bílinn, hvort það taki þátt í kostnaði við við- gerð á vélinni. Við gerum aftur á móti ekki ráð fyrir að fara fram á þátttöku þess í afleiddu tjóni, þ.e. bótum til farþega.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Flugvél Ein af flugvélum Flugfélags Íslands. Félagið þarf að bera þann kostnað sem hlaust af því þegar flugvallarbíl var ekið á eina af vélum þess. Ók á flugvél og flugfélagið borgar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.