Morgunblaðið - 16.05.2017, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.05.2017, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017 Reynt að hemja þann rauða Heldur var vindasamt í Færeyjum þegar forseti Íslands lenti þar í heimsókn sinni, vindurinn reif duglega í rauða dregilinn sem breiða átti út fyrir Guðna. Sverri Egholm Hvar varst þú í síðustu viku þeg- ar Ferðafélag Íslands kallaði sam- an fólk á öllum aldri til að ganga á fjöll í nánd höfuðborgarinnar klukkan sex að morgni? Ég brölti á fætur og var kominn tvo morgna á vettvang með víkingum, annars vegar til að ganga á Haukadals- fjöllin í Mosfellsdalnum og hins vegar á Úlfarsfell. Rokið og rign- ingin fyrri daginn var yndisleg þegar skrokkurinn tók að hitna undan erfiði göngunnar upp að Tröllafossi, þá skynjaði maður að veður er gott alla daga, bara klæða sig og fara út, ekki væla fyrir innan rúðuna og telja sér trú um að best sé að breiða upp fyrir haus. „Vilji er allt sem þarf,“ sagði skáldið og í útiverunni er fólginn lækningamáttur og lífsþrótturinn magnast. Það er bæði hestinum og hundinum þínum mikilvægt að svitna ganga og hlaupa. Þetta á líka við um mannskepnuna og ekki síst hana, sem hefur oft tamið sér óhóf í mat og drykk og er í eðli sínu værukær. Það segir mér Kári Stefánsson að sextugur eigi að vera jafn sterkur eða sterk og þegar hann eða hún var tvítug. Ferðafélag Íslands er í raun lýðheilsufélag sem stefnir fólki til fjalla að sækja hreysti sína og njóta í leiðinni fegurðar landsins. Hversu mikla peninga væri hægt að spara í heil- brigðiskerfinu ef læknarnar vísuðu mörgum þeim sem stefna lífi sínu á háskabraut með mataræði og hreyfingarleysi fram hjá apótekunum, út í náttúruna og í þjálfun hjá íþróttakenn- urunum okkar, inn í heilsuræktarstöðvarnar, í sundlaugarnar, í útivistina? Tak sæng þína og gakk, sagði frelsarinn forðum, þetta er enn að gerast. Reynir Traustason lýsir því í bók sinni Fólk á fjöllum hvernig hann bjargaði sjálfum sér frá bráðum bana með göngu á fjöll og firnindi, að hann og læknarnir hans segja. Við öll getum tekið upp nýjan lífsstíl og það er prýðilegt félagslegt verkefni, fjölskyldu, vina og vinnufélaga, þetta get- ur verið hópstarf ef vill og þannig er það náttúrlega skemmti- legast. En fyrir alla muni „bættu lífi við árin og árum við lífið,“ með því að skora sjálfan þig á hólm og hefja göngur í náttúru Íslands. Það er aldrei of seint að byrja, löng ferð hefst nefni- lega á einu skrefi. Takirðu skrefið á gönguleiðirnar eða til fjalla eignastu marga hamingjudaga. Góða ferð. Eftir Guðna Ágústsson » „Bættu lífi við árin og árum við lífið“ með því að skora sjálfan þig á hólm og hefja göngur í náttúru Íslands. Guðni Ágústsson Höfundur er fv. ráðherra. Morgungöngur við fyrsta hanagal Aðsókn að fjölsóttum ferða- mannastöðum hérlendis hefur margfaldast að undanförnu í samræmi við stóraukinn straum erlendra ferðamanna til landsins. Um langt skeið höfum við vanrækt að vinna að úrbótum með framsýnu skipulagi og dreifingu ferða- manna um landið. Á meðan fjöldi ferðmanna sem sótti okkur heim var nálægt einni milljón á ári voru aðstæður þegar orðnar óviðunandi víðast hvar, hvað þá nú þegar sú tala hefur tvöfaldast. Loksins sér þess merki að stjórnvöld, Alþingi, ríki og sveit- arfélög, séu að átta sig á í hvert óefni er komið, m.a. með lagabótum og auknum fjárveitingum til aðgerða á ferða- mannastöðum. En þá kemur í ljós að und- irbúningur aðgerða tekur tíma og mestu máli skiptir að vanda skipulag sem taki mið af náttúruvernd og breytilegum að- stæðum litið til langs tíma. Breytingar á einum mannsaldri Í árdaga skemmtiferða á síðustu öld höfðu menn ekki áhyggjur af örtröð, hvorki af fólki, hestum eða ökutækjum. Það þótti sjálfsagt að koma sér fyrir við bestu aðstæður sem næst stöðum og nátt- úrufyrirbærum með aðdráttarafl. Skálar voru byggðir fast við Geysi og Gullfoss og sæluhús á hálendinu, í vinjum á Hveravöll- um, í Landmannalaugum og Herðubreið- arlindum svo dæmi séu nefnd. Á Þingvöll- um gátu menn valið að tjalda nánast þar sem hugurinn girntist og tjaldvagnar þjón- uðu sem sumarbústaðir frá vori til hausts á Efri-Völlum. Hér sem annars staðar breytti bílaeign almennings þessum að- stæðum, slóðir opnuðust inn í óbyggðir og brátt fór að þrengjast um á áningarstöðum um hásumarið. Þetta þekkja allir sem náð hafa miðjum aldri. – Í Bandaríkjunum gekk þessi þróun yfir upp úr miðri 20. öld og þar brugðust stjórnvöld við á verndar- svæðum með því að draga úr gistiþjónustu sem byggð hafði verið upp innan þeirra og reisa skorður við bílaumferð að eftirsóttum náttúrufyrir- bærum. Ég átti kost á að kynnast þessum breyttu viðhorfum vestanhafs um 1970 og dró af þeim álykt- anir um æskilegt skipulag. Þingvellir og Skaftafell Þjóðgarðurinn á Þing- völlum var stofnaður 1928 sem „friðlýstur helgistaður allra Íslendinga“ eins og kveðið er á um í lögum. Ekkert skipulag gilti um hann fyrstu 60 árin og á því skeiði voru gerð margvísleg mistök sem enn minna á sig. Framkvæmdir þar tengdust að öðru leyti aðallega stórhátíðum, m.a. 1930 og 1974, en ferðamennska fór troðnar slóðir með Valhöll sem helsta kennileiti. Í fyrstu skipulagssamkeppni um staðinn 1972 lögðum við nokkrir til að færa þunga- miðju aðkomu að Þingvöllum vestur fyrir Almannagjá nálægt Hakinu. Sú stefna var loks staðfest í fyrsta skipulagi þjóðgarðs- ins 1988. Þótti mörgum það goðgá og enn í dag heyrast hugmyndir um að reisa ætti stórhýsi niðri á Völlunum. – Fyrsti þjóð- garður samkvæmt náttúruverndarlögum var stofnaður í Skaftafelli 1967 og þar voru megindrættir í skipulagi umferðar ákveðnir í aðdraganda akvegar og brúa- gerð á Skeiðarársandi 1974. Eftir umræðu í Náttúruverndarráði varð sammæli um að byggja þjónustumiðstöð með tjaldsvæði undir Austurbrekkum og að öðru leyti væri umferð aðeins ætluð göngufólki. Svipuð viðhorf réðu ákvörðun ráðsins um þjónustuhús og tjaldsvæði í Jökulsárgljú- frum við útenda Ásbyrgis. Dæmi af misjöfnum toga Umræðan um breytt viðhorf vegna vax- andi umferðarþunga og fjölgunar ferða- fólks hefur því miður ekki skilað sér sem skyldi í tillögugerð og ákvörðunum um skipulag á ýmsum eftirsóttum ferða- mannastöðum. Á Hveravöllum voru þau mistök gerð fyrir um 20 árum að end- urnýja þjónustuaðstöðu með gistingu í næsta nágrenni við hverasvæðið og auka með því álag á náttúru staðarins, auk mengunar af bílageri. Slíka aðstöðu hefði átt að byggja upp nokkru austar skammt frá Kjalvegi og koma þar upp þjónustu af ýmsu tagi. Nýlegt skipulag við Skógafoss endurspeglar á sama hátt skammsýni og fastheldni við úrelt viðhorf, þar sem ferða- mannaaðstaða er sett niður alltof nærri fossinum þótt nægt landrými sé fjær, t.d. niðri við þjóðveg. Í svipað sýnist mér stefna við Seljalandsfoss og Gljúfrabúa með tilheyrandi sjónmengun og álagi sem fylgir þjónustumiðstöð hið næsta foss- unum. Lykillinn að því að draga úr álagi er að hafa slíka þjónustu og bílastæði fjær og láta ferðamenn hafa fyrir að ganga þaðan að því náttúrufyrirbæri sem mest aðdrátt- arafl hefur. Þaðan má síðan skipuleggja almenningssamgöngur, m.a. fyrir fatlaða. – Miklu skiptir að menn læri af mistökum úr fortíðinni og sem betur fer er víða verið að fóta sig í skipulagi ferðamannastaða. Þannig virðist mér nýtt skipulag í Land- mannalaugum stefna í rétta átt og við Dettifoss hafa menn verið að þræða ásætt- anlegan meðalveg um aðkomu. Hálendi og útnes í sérstöðu Hér hefur sjónum verið beint að stöðum í alfaraleið þangað sem hindrunarlítið verður komist á ökutækjum. Stór hluti há- lendis og útnes með ströndum fram eru hins vegar utan við seilingu bifreiða nema kannski á snjó. Kosti slíkra aðstæðna þarf að varðveita og einnig í þeim efnum reynir á framsýnt skipulag. Eftir Hjörleif Guttormsson » Lykillinn að því að draga úr álagi er að hafa þjónustu og bílastæði fjær og láta menn hafa fyrir að ganga að náttúru- fyrirbæri sem aðdráttarafl hefur. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Skipulag ferðamannastaða og náttúruvernd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.