Morgunblaðið - 16.05.2017, Síða 33

Morgunblaðið - 16.05.2017, Síða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 2017 Leið íslenska rappsins afjaðrinum inn í megin-strauminn hefur veriðglannalega hröð síðustu misseri. Svo hröð reyndar að það hefur verið umtalsvert djarfari ákvörðun hjá Kristínu Eysteins- dóttur að rétta Reykjavíkurdætum hljóðnema og skilyrðislaus afnot af Litla sviðinu þegar hún var tekin, en núna þegar afraksturinn er bor- inn fram. Margt mælir með að rapp eigi heima í vopnabúri leikhússins. Leikhúsið á að vera vettvangur orðsins, en sá hluti genamengis þess hefur verið bældur og jaðar- settur undanfarna áratugi, leynt og ljóst. Kannski er hægt að smygla skáldskapnum aftur inn á sviðs- miðjuna með þessari flaumkenndu og litskrúðugu rímnalist, nú þegar sífellt fleiri eru læsir á fagurfræði hennar. Margir horfa vonaraugum vestur um haf, þar sem slegist er um miðana á hiphop-söngleikinn Hamilton á Broadway. Í Bretlandi er The Hip Hop Shakespeare Company átta ára gamalt batterí. Það er hugsað öllu smærra í Borgarleikhúsinu, sem vonlegt er. Raunar finnst mér að það hefði þurft mun nánari samgang milli rappsins, laganna sem dæturnar flytja í sýningunni og annars efnis sýningarinnar. Einhverskonar sam- bræðslu, tilraun til að nýta hinn mjög svo leikræna efnivið tónlist- arinnar á forsendum leikhússins. Að opna dyr. Kannski var þetta reynt en niðurstaðan orðið þessi. Að hafa skilin skýr, að láta skiptast á tónlist og talað mál og láta innihaldið kallast á gegnum lokaðar dyrnar. Það skapast hratt skemmtileg spenna milli þessara sviða. Ýkt og yfirgengilegt sjálfsöryggi er inn- byggt í rappið. Hetjulegri tónlist hefur ekki heyrst síðan hár-metal féll úr tísku. Sumarliði hans Bjart- mars Guðlaugssonar hefði líka fundið sig í afstöðunni. Sá/sú sem hefur orðið liggur sjaldnast á þeirri skoðun sinni að hann/hún sé mest og best í listinni og lífinu en ekki síður í því að njóta lífsins og hrifsa til sín það sem þarf til þess. Rappari tekur sitt pláss í heim- inum með tilþrifum. Merking þess að konur taki sér slíka stöðu er þrátt fyrir allt enn gerólík þeirri sem verður til þegar karlar byrja að tala um eigið ágæti, velgengni og greddu. Í þessa staðreynd sækja Reykjavík- urdætur slagkraft sinn. Og fá allan sinn mótbyr. Sem verður mikil- vægur hluti af sama slagkrafti. Mótbyrinn er síðan í stóru hlut- verki milli laga. Bæði vandinn við að gera sig gildandi og njóta sann- mælis í karlstýrðum heimum rapps, tónlistar og menningar, en líka hið almenna og sjálfsmyndar- slítandi álag sem fylgir nútímalífi ungra kvenna. Konur eru á útivelli í rappinu. Rapparar í leikhúsinu. Þessar andstæður eru ágætt eldsneyti. Atriðin eru hinsvegar missterk og vilja svolítið fölna við hliðina á kröftugu og ágengu rapp- inu. Áberandi bestur er fyrsti hlut- inn, þar sem dæturnar sviðsetja spjallþátt og bjóða í hann valda- körlum menningar- og fjölmiðlalífs- ins, sem gengur misvel að dylja þá löngun sína að halda sínu og verja dyr kallaklúbbsins. Aldeilis mylj- andi snjallar skopmyndir (frekar en beinlínis eftirhermur) af leik- stjóranum Þorleifi Erni Arnarssyni og Unnsteini Manúel í Retro Stef- son, sem í meðförum sýningarinnar eru vissulega allir af vilja gerðir til að „gefa“ konum tækifæri, en … það er alltaf eitthvað en. Fleiri áberandi karlar gera sig svo líka breiða og atriðinu lýkur með ákaf- lega táknrænni og morðfyndinni gæðastund drengjanna. Hin hliðin á þeim peningi var svo innlit Borgarleikhússtýrunnar, Kristínar Eysteinsdóttur, í lokin, þar sem hún eys lofi yfir sýning- una og frammistöðu stúlknanna. Þar lekur smá af yfirgengilegu sjálfsáliti rapparans loksins undir dyrnar inn í vanmetakenndar- herbergið baksviðs. Sem er gott og skemmtilegt. Önnur atriði flugu ekki eins hátt. Játningar um öryggisleysi, erfið- leika við að tengjast öðrum, áhyggjur af hvert stefnir, óþol gagnvart mótsagnakenndum kröf- um heimsins – allt eru þetta efni sem liggja beint við og þurfa snjallari útfærsluhugmyndir, heild- stæðari hugsun eða dýpri meðferð til að hreyfa við áhorfandanum, sem er alveg örugglega ekki að heyra þessar fréttir í fyrsta sinn. Einlægnin og nálægðin er sterk, en það þarf meira. Sérstaklega þar sem krafturinn í tónlistaratrið- unum og orðavefnaði rímnanna skapar mótvægi sem nánast drekk- ir leikatriðunum. Dæturnar eru allar sannfærandi á sviði og ná áreynsluleysinu sem þarf til að vera sannfærandi í ein- lægninni og búa yfir sannfæringu og krafti fyrir tónlistaratriðin. Sýn- ingin er lipurlega sviðsett af Kol- finnu Nikulásdóttur, með hæfilega afslappaðri umferðarstjórn sem er alveg við það að verða að óreiðu í rappatriðunum en skýr og nákvæm þess á milli. Viðtalsatriðin eru líka vel útfærð og hæfilega langt geng- ið í að „ná“ viðmælendum þátta- stjórnandans án þess að detta inn í klisjur eftirhermulistarinnar. Útlit sýningarinnar er vel heppnað hjá Jóhönnu Rakel Jónas- dóttur. Hvíti liturinn allsráðandi í leikmynd og búningum og glitrandi gerviglys vísar smekklega í rapp- araklisju „blingsins“. Ég er al- mennt ekki hlynntur því að leik- myndir taki sér forystuhlutverk í að miðla merkingu leiksýninga en trommusettið sem trónir stolt á Litla sviðinu var frábær hugmynd. Ég hefði verið til í meiri ögrun í þessari sýningu. Meiri listræna áhættu, fjölbreyttari aðkomu rappsins. Það sem fyrir áhorfendur er borið er alveg ágætt, sumt vel það. Annað dálítið bragðdauft, sem kom á óvart. Borgarleikhúsið RVKDTR – THE SHOW bbbnn Eftir Kolfinnu Nikulásdóttur, Jóhönnu Rakel Jónasdóttur, Sigurlaugu Söru Gunnarsdóttur, Steinunni Jónsdóttur, Þuru Stínu, Solveigu Pálsdóttur, Stein- eyju Skúladóttur, Sölku Valsdóttur og Þuríði Blæ Jóhannsdóttur. Leikstjórn: Kolfinna Nikulásdóttir. Leikmynd og búningar: Jóhanna Rakel Jónasdóttir. Hljóðmynd og tónlistarstjórar: Salka Valsdóttir og Baldvin Magnússon. Sviðshreyfingar: Kolfinna Nikulásdóttir, Steinunn Jónsdóttir, Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir og Jóhanna Rakel Jón- asdóttir. Ljósahönnun: Juliette Louste. Myndbandsgerð: Elmar Þórarinsson. Frumsýning á Litla sviði Borgarleik- hússins 11. maí 2017. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Kraftur „Dæturnar eru allar sannfærandi á sviði og ná áreynsluleysinu sem þarf til að vera sannfærandi í einlægninni og búa yfir sannfæringu og krafti fyrir tónlistaratriðin.“ Á útivelli Íslenska þungarokksveitin HAM mun hita upp kollega sína í þýsku þungarokksveitinni Rammstein á tónleikum þeirrar síðarnefndu í Kórnum í Kópavogi á laugardag- inn, að sögn skipuleggjanda tón- leikanna, Þorsteins Stephensen. HAM hitaði einnig upp fyrir Rammstein á margfrægum tvenn- um tónleikum þýsku sveitarinnar í Laugardalshöll árið 2015. Breiðskífa er væntanlega frá HAM í næsta mánuði og á tón- leikum Rammstein mun HAM leika nokkur glæný lög af henni í bland við gömul. Þá er von á nýrri smáskífu af plötu HAM í dag og verður nafn plötunnar einnig opin- berað. Eitt lag af plötunni hefur ómað í útvarpi í nokkrar vikur, „Vestur-Berlín“, og má af því heyra að hljómsveitin er í feiki- góðu formi. Uppselt er á tónleika Ramm- stein í Kórnum núna á laugardag- inn. HAM hitar aftur upp fyrir Rammstein Morgunblaðið/Sigurjón Guðjónsson HAM! Óttarr Proppé í ham með HAM á tónleikum í Laugardalshöll árið 2006. Eyjasandi 2, 850 Hella - Víkurhvarfi 6, 203 Kópavogi, sími 488 9000 - samverk.is GLERHANDRIÐ Mælum, framleiðum, útvegum festingar og setjum upp. ÞEKKING - GÆÐI - ÞJÓNUSTA SÉRSMÍÐUM ÚR GLERI BÍÓ áþriðjudögum í Laugarásbíó 750 á allarmyndir, allan daginn! Ath! Gildir ekki á íslenskarmyndir kr. FRÍ ÁFYLL ING Á GOS I Í HLÉI SÝND KL. 5.30SÝND KL. 7.40SÝND KL. 10 SÝND KL. 6, 8, 10 SÝND KL. 5.30, 8, 10.20

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.