Freyr - 01.10.2005, Page 18
FÓÐRUN
Fóðurefnagreining -
kjarnfóður - NorFor
1 ■l | NorFor
1 Norrænt fóðurmatskerfi
Svíþjóð, Noregur, ísland og Dan-
mörk hafa tekið höndum saman um
uppbyggingu á nýju fóðurmatskerfi
fyrir nautgripi. í þessari grein er
fjallað um efnagreiningu á fóðri og
rakin nokkur dæmi um greiningu
næringarefna í kjarnfóðri. Greinin
er önnur af þremur þar sem fjallað
er um nýja NorFor-fóðurmatskerfið
fyrir jórturdýr. í fyrstu greininni,
sem birtist í 1. tbl. Freys 2005, var
sjónum beint að markmiðum kerfis-
ins og lýsingu á því.
NÆRINGAREFNIN I FÓÐRINU
f NorFor-fóðurmatskerfinu er fóðrið að-
greint í næringarefnin hráprótein, NDF
(trefjar sem leysast upp í hlutlausri sápu-
lausn), sterkju, hráfitu, gerjunarafurðir,
ösku og leifar (afgang sem er aðallega syk-
ur).
Mynd 1. Efnagreining á fóðri í
NorFor (NDF = uppleysanlegt tréni
í sápulausn og CHO = kolvetna-
leifar/sykur).
Nákvæmari lýsing á þvl hvernig næringar-
efnin brotna niður við gerjun I vömbinni
krefst raunar enn frekari greiningar
(mynd 1).
Próteinin skiptist I þrjá hluta. I fyrsta lagi
hið ómeltanlega sem finnst í saur, óháð
fóðrunaraðstæðum. I öðru lagi óuppleysan-
legan hluta sem brotnar niður í vömb fyrir
tilstuðlan vambarörvera. Þessi hluti er
nefndur niðurbrjótanlegur þar sem við ger-
um ráð fyrir því fyrirfram að hann brotni all-
ur niður. Umfang niðurbrotsins stjórnast
hins vegar af tvennu, annarsvegar hraða
niðurbrotsins (sem er táknaður með kd. og
mældur í % á klst.) og dvalartíma I vömb-
inni. Þriðji hlutinn er uppleysanlegur í vatni.
Það einkennir þennan hluta að brotna mjög
hratt niður í vömb og við það losnar prótein
fyrir örverurnar.
PRÓTEINEIGINLEIKAR í KJARNFÓÐRI
Tafla 1 sýnir dæmi um eiginleika próteins í
fáeinum völdum kjarnfóðurtegundum.
Töluverður munur er milli tegundanna. Sem
dæmi má nefna að 66 % af hrápróteini I
baunum er leysanlegt en aðeins 16 % í
sojamjöli. Það skýrir hvers vegna sojamjöl
hefur hærra AAT-gildi en baunir. Prótein-
eiginleikar byggs og hafra eru einnig ólíkir.
Lægra AAT-gildi í höfrum stafar m.a. af
hærri leysanleika próteinsins og hraðara
próteinniðurbroti (kdCP). Það veldur því á
hinn bóginn að minna af próteini í höfrum
flæðir aftur til þarma en af próteini í byggi.
Niðurbrotshraði 11,6 %/klst. í byggi þýðir
að á einni klst. brotna 11,6 % af byggpró-
teininu niður í vömbinni.
Algengt próteinfóður sem notað er til að
auka AAT-innihald í kjarnfóðurblöndu er
maísglúten. Hátt próteininnihald, lítill leys-
anleiki og lítill flæðihraði veldur þvf að stór
hluti próteinsins flæðir til þarma og gefur
þannig af sér mikið AAT. Hlutfall ómeltan-
legs próteins f kjarnfóðri er venjulega lágt
og því skilst lítið af því út með saur.
STERKJA í KJARNFÓÐRI
Sterkja er mikilvægur orkugjafi fyrir
vambarörverur. Það er vel þekkt að mikið af
auðmeltanlegum kolvetnum í fóðri hemur
Aska
Fita
Afgangur (CHO -sykur)
Gerjunarafurðir
Sterkja
Leysanlegt
Niðurbrjótanlegt
Óniðurbrjótanlegt
Prótein
NDF
- Niðurbrjótanlegt
- Óniðurbrjótanlegt
- Uppleysanlegt
- Niðurbrjótanlegt
- Óleysanlegt ; ... 1
18
FREYR 10 2005