Freyr - 01.10.2005, Page 41
FÓÐUR
Samhengi NDF í heildarfóðri, NDF-áts og hámarks-mjólkurframleiðslu.
legri vambargerjun og því um leið háum
meltanleika í heildarfóðri og góðri fóður-
nýtingu. Það er náið samhengi á milli NDF í
fóðri og eðlilegs jórturs, sem aftur leiðir til
mikillar munnvatnsframleiðslu og stjórnun-
ar á sýrustigi í vömb. Rikuleg munnvatns-
framleiðsla er nauðsynleg til þess að koma í
veg fyrir of mikla sýringu í vömbinni og þar
með að draga úr starfsemi trénismeltandi
örvera. Til þess að hámarka orku- og pró-
teinnám skepnunnar er því mikilvægt að
fóðra með gróffóðri með lágt innihald af
UNDF og háan meltingarhraða á PNDF jafn-
hliða sem NDF-innihaldið er nægjanlegt til
að tryggja gerjunaraðstæðurnar í vömbinni.
SÍUN FÓÐURAGNA ÚT FRÁ VÖMB
Annað, ekki síður þýðingarmikið hlutverk
frumuveggjarefnanna í fóðrinu, er að
mynda sk. „trénisteppi" á yfirborði vambar-
innihaldsins. Teppið virkar eins og sía sem
kemur I veg fyrir að smáar fóðuragnir, sem
ekki eru fullmeltar, flæði út úr vömbinni.
Áður en ómeltar fóðuragnir geta borist út
úr vömbinni verða þær að smækka niður (
1-2 mm að stærð. Smækkunin verður aðal-
lega við jórtur. Til viðbótar stærðinni er
þungi fóðuragnanna mikilvægur fyrir flæði-
hraðann þar sem léttar agnir flæða hægar
frá vömb en þungar. Jórturdýr hafa þroskað
með sér sérstakan eiginleika sem heldur aft-
ur af flæði smárra fóðuragna sem ekki eru
að fullu meltar. Vambarörverurnar, sem eru
festar við fóðuragnirnar, framleiða gas sem
leiðir til þess að þeir verða léttar. Það kem-
ur í veg fyrir eða seinkar flæði þeirra frá
vömb. Gasfylltar fóðuragnir fljóta eða halda
sig upp undir síunarteppinu. Ef teppið er
ekki nægilega þétt eða það ekki fyrir hendi,
flæða agnirnar of fljótt aftur til þarmanna.
Þetta þýðir að ef hin sérhæfða temprun á
flæði ómeltra fóðuragna virkar fullkomlega
er vambarmeltanleiki PNDF nánast fullkom-
inn eða 100%.
( norskri beitartilraun með mjólkurkýr var
dvalartími NDF í vömb mældur. Fóðurgildi
beitargrassins í tilrauninni var sérlega hátt
og mælt NDF-innihald var um 41 % (til sam-
anburðar er NDF í vallarfoxgrasi við skrið
um 60%). Út frá mældu fóðuráti átti reikn-
aður dvalartími í vömb að vera 75 klst. og
meltanleiki NDF um 70%. Hins vegar kom i
Ijós að raunverulegur dvalartími varð 40
klst. og meltanleiki NDF aðeins 55%. Niður-
stöðurnar leiddu einnig í Ijós að aðeins um
70 af hundraði af meltanlega hluta NDF
meltist en 30% af NDF-hlutanum meltist
ekki. Sú ályktun var dregin að lægri meltan-
leika en vænst var mætti skýra með of mikl-
um flæðihraða NDF og það mætti skýra
með að „trénisteppið" hafi ekki verið nægi-
lega gott vegna of lítils trénis i fóðrinu. Nið-
urstöðurnar benda til mikilvægis þess að í
heildarfóðrinu sé nægilegt tréni, ekki síst
þegar beitt er og gróffóðrið er snemmsleg-
ið og inniheldur lítið NDF. I slíkum tilvikum
getur gróft ósaxað hey eða hálmur, 1 - 2 kg
á grip á dag, komið að góðu gagni við að
tryggja eðlilega trénismeltingu.
HÆFILEGT NDF-INNIHALD í FÓÐRI
Hvert er hið æskilega NDF-innihald í fóðri
mjólkurkúa? Athuganir hafa sýnt að það er
háð fjölda þátta, eins og mjaltaskeiði (nr.),
nyt, stubblengd/grófleika fóðurs og sam-
setningu kjarnfóðurs. Til að ná miklu gróf-
fóðuráti og mikilli nyt hafa amerískar rann-
sóknir sýnt að NDF í dagsfóðrinu þurfi að
vera á bilinu 35-40% (350 til 400g í kg þe.).
Lægstu gildin eiga við um mjólkurkýr
fyrst eftir burð en þau hæstu á mið- og síð-
mjólkurskeiði. Lesa má út úr mynd 3 að
æskileg NDF-upptaka sé 12-13g NDF á kg
lífþunga, eða 6,0 - 6,5 kg á dag fyrir 500 kg
mjólkurkú.
Sé tekið mið af myndinni og að fóðrið
innihaldi 40% kjarnfóður og NDF-innihald-
ið sé 19% - hvert er þá æskilegt NDF inni-
hald í gróffóðrinu?
Útreikningar sýna að gróffóðrið þarf að
innihalda 46-54 % NDF, þar sem lægra gild-
ið á við mjólkurkýr snemma á mjólkurskeiði.
Minnki hlutdeild kjarnfóðurs I heildarfóðri í
30% þarf NDF-innihald fóðurskammtsins
að vera 42-49%.
Dæmigerður fóðurskammtur íslenskra
mjólkurkúa er samsettur úr kjarnfóðri með
tiltölulega hátt hlutfall af auðleysanlegum
kolvetnum (sykur og sterkja) og töluvert
forþurrkuðu rúlluheyi með tiltölulega hátt
trénisinnihald. I ár gefst bændum í fyrsta
sinn tækifæri á að fá NDF mælt í þjónustu-
sýnum, gegn sérstöku gjaldi. Fyrir þá sem
það hafa gert er ástæða til að rýna (tölurn-
ar og gera samanburð við það sem hér er
nefnt. Ekki er þó ætlast til að við yfirfærum
erlendar niðurstöður hvað kolvetnin varðar
yfir á okkar aðstæður. En tilgangurinn er að
vekja athygli á þeim mikilvæga þætti sem
vitneskja um kolvetnahluta fóðursins er fyr-
ir eðlilega og afkastamikla meltingarstarf-
semi kúnna og þar með okkar mjólkurfram-
leiðslu.
Grein þessi er að stofni til byggð á grein eftir
Harald Volden sem birtist í norska tímaritinu
Buskap, nr. 1, árið 2000.
Freyr 10 2005