Fréttablaðið - 20.12.2017, Síða 4
Séra Kristján Valur Ingólfsson,
vígslubiskup í Skálholti, var
rangfeðraður í blaðinu í gær
og sagður Gíslason. Beðist er
velvirðingar á þessu.
Leiðrétting
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
Opið alla virka daga 10–19 | laugardaga 11–19
„Hörkuspennandi flettitryllir …“
H E L G A B I R G I S D Ó T T I R / F R É T T A B L A Ð I Ð
„Dúndurendir á spennandi
þríleik … Lilja er mjög flinkur
glæpasagnahöfundur.“
A N N A L I L J A Þ Ó R I S D Ó T T I R
M O R G U N B L A Ð I Ð
RÍGHELDUR
kjaramáL Orðið er við ósk Agnesar
M. Sigurðardóttur, biskups þjóð
kirkjunnar, með nýjum úrskurði
kjararáðs og laun hennar hækkuð.
Nemur hækkunin 18 prósentum og
fara launin úr um 1.281.981 krónum
á mánuði í 1.553.000 krónur.
Launahækkun biskups nemur
271 þúsund krónum á mánuði.
Hækkunin er afturvirk til síðustu
áramóta og fær Agnes því ríflega 3,2
milljóna króna eingreiðslu. Það eru
70 prósent þeirrar upphæðar sem
ríkisstjórnin ákvað í gær að verja af
ráðstöfunarfé sínu í jólauppbót til
517 hælisleitenda.
Vígslubiskuparnir tveir, Krist
ján Valur Ingólfsson í Skálholti og
Solveig Lára Guðmundsdóttir á
Hólum, hækka einnig umtalsvert í
launum. Skálholtsbiskup fer úr 970
þúsund krónum á mánuði í 1.292
þúsund. Hækkunin hjá Kristjáni er
322 þúsund krónur eða 33,3 pró
sent. Solveig hækkar úr 970 þúsund
krónum í 1.196 þúsund á mánuði.
Er hækkunin hjá Hólabiskupi 226
þúsund krónur sem er 23,3 prósent.
Bæði fá þau afturvirka hækkun í eitt
ár og skipta því á milli sín tæplega
6,6 milljóna króna eingreiðslu.
Kjararáð úrskurðaði einnig um
kjör presta þjóðkirkjunnar. Laun
þeirra eru mishá eftir fjölda sóknar
barna. Þeir sem eru með fæst sókn
arbörn hækka um rúmar 66 þús
und krónur og verða með tæp 670
þúsund í mánaðarlaun. Þeir sem
flest sóknarbörn hafa fá umtalsvert
hærri laun eða 971 þúsund. Getur
því munað 300 þúsund krónum á
launum presta eftir því hvar þeir
eru staðsettir á landinu.
Að því er fram kemur í umfjöllun
kjararáðs sendi Agnes M. Sigurðar
dóttir biskup ráðinu bréf í ágúst
2015 og óskaði eftir því að launa
kjör biskups yrðu endurmetin „með
hliðsjón af ábyrgð og umfangi emb
ættisins“ sem sé „eitt af æðstu emb
ættum landsins“.
Biskup rekur að svokallaðar
vísitasíur krefjist ferðalaga um
allt land, gjarnan utan hefð
bundins vinnutíma. Þá sé biskup
fyrirsvarsmaður og talsmaður
þjóðkirkjunnar hérlendis jafnt sem
erlendis. Því fylgi starfsskyldur við
opinbera viðburði og hátíðir – jafnt
á vegum ríkisins, kirkjunnar og
annarra aðila, hérlendis og erlendis.
Biskup hafi verulega stjórnunar
ábyrgð til viðbótar, meðal annars
sem forseti kirkjuráðs. Undir hana
heyri starfsfólk biskupsstofu og
prestar þjóðkirkjunnar, samtals um
150 manns.
„Að endingu er þess getið í bréf
inu að biskup greiði nú húsaleigu
fyrir afnot sín af embættisbústað
þeim sem honum sé skylt að sitja,“
upplýsir kjararáð en ekki kemur
fram hversu há leiguupphæðin er.
„V i ð á k v ö r ð u n l a u n a
kjara hans er höfð hliðsjón af
því hlutverki hans og starfs
skyldum samkvæmt lögum og
starfsreglum sem og eðli og umfangi
starfsins. Þá er einnig tekið mið af
því innbyrðis samræmi sem kjara
ráði ber að gæta,“ segir í úrskurði.
gar@frettabladid.is
johannoli@frettabladid.is
Biskup fær fimmtungs hækkun
launa eftir ósk um endurmat
Mánaðarlaun Agnesar M. Sigurðardóttur biskups hækka um 18 prósent og eru orðin 1.553 þúsund krónur.
Hækkunin er afturvirk í eitt ár og fær Agnes því eingreiðslu upp á yfir 3,2 milljónir, 71 prósent af þeirri upp-
hæð sem 517 hælisleitendur fá í jólauppbót. Laun tveggja vígslubiskupa hækka verulega sem og laun presta.
Agnes M. Sigurðardóttir, biskup þjóðkirkjunnar á Íslandi, hækkar verulega í launum. FréttAblAðið/VilhelM
DÓmSmáL Karlmaður var í Héraðs
dómi Suðurlands síðasta mánu
dag dæmdur í 30 daga fangelsi og
til greiðslu skaða og miskabóta
vegna líkamsárásar sem átti sér stað
á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum árið
2015. Refsingin er bundin skilorði
í tvö ár.
Atvik málsins voru að maðurinn
fór óboðinn inn í svokallað „hvítt
tjald“ til að kasta af sér þvagi. Þegar
fólk kom inn í tjaldið brást hann
hinn versti við. Skallaði hann einn
þeirra og var af þeim sökum dæmd
ur fyrir líkamsárás.
Maðurinn var dæmdur til að
greiða brotaþola 150 þúsund krónur
í skaða og miskabætur. Þá var hann
dæmdur til að greiða laun verjanda
síns auk málskostnaðar. Sú upphæð
nam rúmri milljón króna. – jóe
Pissaði óboðinn
í hvítu tjaldi
kjaramáL Kjararáð ákvarðaði á
fundi sínum síðasta sunnudag laun
dómara sem taka sæti sem lands
réttardómarar næstu áramót. Laun
forseta réttarins eru sambærileg
við laun ráðherra. Mánaðarlaun
forsetans, að teknu tilliti til fastrar
yfirvinnu verða rétt rúmlega 1,8
milljónir króna. Aðeins munar
tæpum 10 þúsund krónum á mán
aðarlaunum forseta réttarins og
kaupi ráðherra í ríkisstjórn.
Varaforseta réttarins er skipað
skör lægra en forseta en fast mán
aðarkaup hans verður 1.735 þúsund
krónur. Óbreyttir dómarar við rétt
inn fá hins vegar tæplega 43 þúsund
krónum minna í sinn hlut.– jóe
Forsetinn fær
ráðherrakaup
LÖgregLUmáL Ekki liggur fyrir hvort
farið verður fram á áframhaldandi
gæsluvarðhald yfir mönnunum
þremur sem handteknir voru hér á
landi vegna stórfellds fíkniefnamáls
þann 12. desember síðastliðinn. Gæslu
varðhald yfir mönnunum rennur út
næstkomandi föstudag, 22. desember.
Arkadiusz Maciej Latkowski, annar
eigenda Market ehf., er einn þeirra
þriggja sem sitja í gæsluvarðhaldi hér
á landi vegna aðildar að stærsta máli
tengdu skipulagðri glæpastarfsemi
sem komið hefur upp hér á landi.
Market ehf., sem á og rekur verslan
irnar Euro Market í Hamraborg, Stakk
holti og Smiðjuvegi, tengist málinu. Á
meðal þeirra eigna sem haldlagðar
hafa verið vegna málsins eru eignar
hlutir í Market ehf., en samanlagt
hefur lögregla lagt hald á eignir fyrir
um 200 milljónir króna hér á landi í
tengslum við málið. Latkowski hefur
verið búsettur á Íslandi í um áratug en
hann hlaut fjögurra mánaða dóm árið
2009 fyrir vörslu og meðferð á rúmu
kílói af marijúana. Í apríl 2013 dæmdi
Héraðsdómur Reykjavíkur svo ríkið
til að greiða Latkowski hálfa milljón
króna í miskabætur fyrir gæsluvarð
hald sem hann mátti sæta árið 2010
vegna rannsóknar lögreglu á fíkni
efnainnflutningi. – skh
Óvíst með áframhaldandi gæsluvarðhald
Frá blaðamannafundi europol og íslensku og pólsku lögreglunnar í fyrradag.
FréttAblAðið/erNir
2 0 . D e S e m b e r 2 0 1 7 m i ð V i k U D a g U r4 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð
2
0
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:4
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
8
E
-0
A
A
0
1
E
8
E
-0
9
6
4
1
E
8
E
-0
8
2
8
1
E
8
E
-0
6
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
5
6
s
_
1
9
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K