Skátablaðið Faxi - 01.12.1997, Síða 5
Skátafélagið Faxi 60 ára á næsta ári
Saga skátafélagsins Faxa er samofin
sögu Vestmannaeyja og skátahreyfin-
garinnar sem hefur verið eins og og
ævintýri, bæði löng og heillandi.
Ævintýrið hófst árið 1907 í Englandi.
Maður að nafni Baden-Powell safnaði
saman hóp drengja í fyrstu skátaúti-
leguna á eyjunni Brownsea. Baden-
Powell skipti drengjunum í smærri
hópa, sem hann kallaði flokka. Hver
flokkur fékk sitt tjaldbúðasvæði og sitt
inerki. Hverjum flokki stjórnaði drengur
sem var svolítið eldri en hinir.
Flokkarnir fengu mörg verkefni sem
þyngdust með hverjum deginum sem
leið. Flest snerust um að geta bjargað sér
við frumstæðar aðstæður.
I Eyjum hófst ævintýrið þann 22.
febrúar árið 1938 þegar 24 piltar á
aldrinum 12-14 ára stofnuðu skátafélag-
ið Faxa í leikfimissal Barnaskólans.
Félagið starfaði fyrst í þremur flokkum
með 8 drengi í hverjum flokki auk
flokksforingja en þeir voru Feifur
Eyjólfsson, Jón Oli og Sigurjón
Kristjánsson, en félagsforingi var
Friðrik Jesson.
Starfandi skátar í félaginu eru nú um
150 talsins skipt niður í 4 sveitir og
hefur starfið gengið vel á undanförnum
árum. Skátaheimilið er rammi utan um
vetrarstarfið og Skátastykkið á að vera
ramminn utan um sumarstarfið og allt
útilíf skáta hér í Eyjum.
Það verða liðin 60 ár frá stofnun
félagsins þann 22. febrúar á næsta ári,
1998. Sá dagur, sem ber upp á sunnu-
dag, mun verður haldinn hátíðlegur á
margan hátt. Dagurinn hefst í
Skátaheimilinu við Faxastíg, þaðan
verður gengið í fylktu liði til kirkju og
mun Ólafur Ásgeirsson skátahöfðingi
halda stólræðu á skátamessu. Síðar um
daginn mun Skátastykkið verða form-
lega tekið í notkun að viðstöddum
öllum þeim sem það vilja.
Margt annað verður á döfinni þennan
dag svo og allt afmælisárið og í því
sambandi hefur skátafélagið kosið
sérstaka afmælisnefnd sem í sitja Viktor
Ragnarsson, Vigdís Rafnsdóttir,
Sigurbjörg Jónsdóttir og Sigmar
Hjartarson. Nefndin mun leggja fram
tillögur sínar að dagskrá ársins síðar í
þessum mánuði.
Þegar er vitað að afmælismót mun
verða haldið í Skátastykkinu um miðjan
júlí og von er á mörgum gestum.
Þá hefur verið rætt urn að eldri skáta
og velunnarar stofni með sér Gildi-,
sem er alþjóðlegur félagsskapur eldri
skáta, sem bæði vilja uppfylla eigin
Páll Zóphóníasson félagsforingi
þarfir á góðu og heilbrigðu félagslífi
með fyrri félögum og um leið stuðla að
góðu skátastarfi.
Stjórn Faxa
l'iittmuS
*Öskum öCCum
CœjarCúum
gCeðíCegrajóCa
með pökkfyrír
víðskíptín á árínu
StarfsfóCk og eígencCur
O
SKATABLAÐIÐ FAXI