Skátablaðið Faxi - 01.12.1997, Síða 9
Vetrarstarf Ff
í sveitinni eru 3 starfandi flokkar með
hressum krökkum á aldrunum 11-12
ára. Við hittumst á fundum í hverri viku
á laugardögum kl: 15 og gerum ýmis
skemmtileg verkefni og förum í leiki.
Stundum förum við í göngu eða í ein-
hverskonar vetTvangsferð eða jafnvel
útilegu í Gamla golfskálann.
Þann 10. október fórum við í göngu
niður að Heimakletti þar sem Mummi
leyfði okkur að síga og klifra í berginu,
höfðum við fengið lánaða hjálma hjá
björgunarfélaginu og fá þeir bestu
þakkir fyrir. Það var rosalega gaman
þrátt fyrir að það tæki mikið í handlegg-
ina. Við gengum lfka hálfa leiðina upp
á Heimaklett og renndum okkur í sandi
og grasi niður.
21 .-22. nóvember fóum við í útilegu í
Gamla golfskálanum. Við vorum varla
komin í skálann er farið var í göngu
þvers og kruss unt bæinn og aftur inn í
dal. Glorhungruð kláruðum við
verkefnin í brjáluðu veðri og fengum
okkur svo að borða. Vel
mett undirbjuggum við
skemmtiatriði - leikrit
um túlkun á skáta-
lögunum og leikrit um
hvað við gerðum við
vissar aðstæður t.d. ef
við brotlentum á
eyðieyju eða mættum
birni ein úti í skógi
leikritin voru var að
sjálfsögðu í anda
kjörorðs skátanna
„ávallt viðbúinn”.
Kvöldvakan var fjörug
og svo var farið í smá
útileik. Þegar köld nef
komu úr leiknum
hlýuðu þau sér yfir
kakóbolla og hlustuðu
svo á draugasögur ada
Einar Örn. Þó að allir
væru þreyttir eftir
annasaman dag sofnuðu
sumir víst ekki fyrr en undir morgunn
og olli það verulegri seinkun á ræsi en
morgunleikfimin var að sjálfsögðu á
sínurn stað, kl: 9. Eftir morgunmat var
tekið saman og svo haldin flokkakeppni
sem fól m.a. í sér að lesa úr þvotta-
merkjatáknum og að binda hnúta. Uti-
legunni var svo slitið um kl: 15 og þá
voru veittar viðurkenningar og tilkynnt
hversu mörg vörðuverkefni allir höfðu
unnið fyrir. A fyrsta fundi eftir útilegu-
na bjuggum við til hnútatöflu og á fund-
inum þar á eftir fórum við í leikhús að
sjá Emil litla sprella en þá var/ er komið
að því ókomna.
Við óskum öllum gleðilegra jóla og
gleðilegs nýs árs.
Freydís
sveitarforingi
Fyrrverandi forseti heimsækir Skátastykki
í apríl síðastliðnum var fyrrverandi forseti vor á Heimaey.
Var hún hér stödd vegna útsendinga á svokölluðu Jason-
verkefni, sem nokkrir ungir Eyjamenn tóku þátt í og var þar
á meðal hún Freydís okkar. Kom þar til tals skátahreyf-
inginn, vildi það svo til að frú Vigdís átti að flytja erindi á
félagsforingjaráðstefnu í Reykjavík.
Eftir útsendinguna fóru þær stöllurnar, Freydís og
forsetinn, suður í Skátastykkið í leit að innbæstri. Ræddu
þær heima og geima og skátastarf.
Leist frú Vigdísi Finnbogadóttur mjög vel á
framkvæmdirnar og bar okkur mikið lof fyrir skálann og
svæði í kring.
SKÁTABlAÐIÐ faxi