Skátablaðið Faxi - 01.12.1997, Síða 16
D.S. Vestmenn
Síðasta vor var ákveðið að reyna að
endurvekja dróttskátasveitina
Vestmenn. Akveðið var að tveir elstu
flokkarnir hjá skátafélaginu myndu
ganga í sveitina nú í haust. Gekk það
allt eftir og voru Fálkar og Inkar settir í
sveitina. Eg var settur sveitarforingi.
Starfið fór strax af stað og fór sveitin
saman í útilegu sennipart septembermá-
naðar. Var margt skemmtilegt gert í úti-
legunni, farið í göngu, næturleik og
þessháttar. Fóru Inkar með í
ævinýraferð þar sem gist var á hálendis-
skálanum Dalakoti. Inkar voru með úti-
legu niðri í dal 28. nóv. Síðan var haldið
matarkvöld 29. nóv. Sömu helgi sváfu
Fálkar undir berum himni tvær nætur,
l'yrst suður í Skátastykki í austan 7 vind-
stigum og síðan niðri í Herjólfsdal í
logni en rigningu, einungis tveir sváfu
úti alla nóttina. Báðir flokkar hafa verið
með vídeókvöld og voru Fálkar síðasl
þegar fréttist að taka kvikmynd.
Mikið og gott starf hefur verið hjá
sveitinni það sem af er og vil ég þakka
það að skátarnir í sveitinni hafa verið
mjög jákvæðir fyrir öllu því sem hefur
verið boðið uppá og líka mjög fram-
takssamir og duglegir að finna sér eitt-
hvað að gera. Því hefur verið haft lítið
fyrir þeim og að halda starfseminni gan-
gandi. Flestir krakkarnir í sveitinni eru
Ilokksforingjar og hafa staðið sig vel
það sem af er. Framundan er skíða-
ferðalag, ferð í Arnarsetur og svo auð-
vitað útilegur hér heima ásamt fullt af
fjölbreyttu starfi.
Einar Örn Arnarsson
Sveitarforingi Vestmanna
Sendum öllum bœjarbúum bestu
óskir um
GLEÐILEG JÓL
og farsœlt komandi ár
Þökkum ykkur góð viðskipti
á árinu sem er að líða.
BÆJARVEITUR VESTMANNAEYJA
HITAVEITA • RAFVEITA ■ SORPBRENNSLA • VATNSVEITA
SKÁTABLAÐIÐ FAXI