Barnablaðið - 04.06.2017, Side 5
Myndir: Jóhanna Andrésdóttir
Andrés Andrésson er
áhugamálsforeldri.
Andrés Ásgeir Andrésson er þriggja
barna faðir og titlar sjálfan sig sem
áhugamálsforeldri.
Hann hefur mikinn áhuga á því hvað
foreldrar gera með börnunum sínum og
hefur komið upp heimasíðunni Krakka-
kort.net sem er ætlað að auðvelda
fjölskyldum að finna sér skemmtilega
afþreyingu. Á síðunni er fjöldinn allur
af hugmyndum af nýjum stöðum sem
hægt er að heimsækja.
Hvernig varð hugmyndin til?
„Krakkarnir mínir voru að horfa á
sjónvarpið einn laugardaginn þegar
mér datt þetta í hug. Mann
vantar stundum hugmyndir
til að koma sér af stað og
standa upp frá sjónvarp-
inu eða tölvunni.
Þetta þarf ekki að vera
flókið, heldur skiptir
samveran mestu máli.“
Síðan Krakkanet.net
er ætluð foreldrum til að
skiptast á hugmyndum.
„Þetta var í grunninn gert til að
einfalda mér lífið,“ segir Andrés og hlær.
„Ég er þó enginn einráður þarna og allar
ábendingar vel þegnar.
Hugmyndin er að foreldrar, krakkar, afar
og ömmur bæti inn nokkrum stöðum og
deili sýnum uppáhalds. Það er ekkert
mál að bæta inn nýjum stöðum og tekur
það bara nokkrar mínútur.
Á síðunni er einfaldlega kort af Íslandi
með um 80 atriðum í dag. Hægt er að
leita eftir flokkum eða landsvæðum.
Þarna eru t.d. gönguleiðir, sundlaugar,
bóndabæir, leiksvæði og fleira.“
Hvernig hafa viðbrögðin verið?
„Þau hafa verið mjög fín og fólk virð-
ist ánægt með þetta. Það þarf ekki
endilega að fara til útlanda til að upplifa
eitthvað nýtt.
Þetta er mjög einföld aðgerð að smella
einhverri afþreyingu á kortið. Engin
innskráning eða slíkt.
Svo er líka hægt að finna hóp á face-
book undir sama nafni en þar hafa
ýmsar hugmyndir fæðst.“
Hefur þú gert eitthvað í líkingu við
þetta áður?
„Ég og bróðir minn gerðum á
sínum tíma kirkjukort.net.
Þar eru um 400 kirkjur
landsins á korti. Þar er
að finna helstu upp-
lýsingar og myndir.
Þú ert hrifinn af
.net?
„Já, er þetta ekki
svona fjölskyldunet? eða
krakkanet?“
Og hvernig sérðu fyrir þér framhaldið?
„Að fólk haldi áfram að benda á
skemmtilega hluti og upplifa landið upp
á nýtt. Allar hugmyndir vel þegnar.
Svo er jafnvel hugmynd um að þróa
þetta eitthvað lengra þannig að fólk
geti sett inn afþreyingu innandyra. T.d.
skemmtilega leiki eða spil.
Þetta snýst fyrst og fremst um að verja
tímanum saman með fjölskyldunni og
ekki hanga í símanum. Losa okkur und-
an stöðugu áreiti frá tölvum, sjónvörpum
og símum. Ég keypti mér einmitt gamlan
takkasíma um daginn. Hann virkar fínt.“
GERT TIL AÐ
AUÐVELDA
FORELDRUM
„Það
þarf ekki
endilega að fara
til útlanda til að
upplifa eitthvað
nýtt.“
Andrés hvetur fólk til að skiptast á hugmyndum