Veðráttan - 01.03.1999, Page 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 1999
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFU ÍSLANDS
Mars
Tíðarfarið var talið þokkalegt sunnan til á landinu þrátt fyrir nokkum kulda en fyrir norðan var veðráttan
rysjótt en lítið um stórviðri. Talsvert bætti á snjóalög á Norður- og Norðausturlandi og jarðbönn vom um allt
land.
í byrjun mánaðarins var norðaustanátt á landinu og víða éljagangur með snjókomu fyrir norðan en léttskýjað
var um sunnanvert landið. Lægð var austur við Noreg og hæð yfir Grænlandi. Aðfaranótt þ. 2. herti vind um
leið og lægð fór austur fyrir sunnan land og snerist til norðanáttar með éljagangi um allt norðanvert landið og
kólnaði. Þ. 4. dró úr veðurhæðinni um leið og hæðarhryggur þokaðist austur yfir landið nema við
norðausturströndina, þar var norðvestan strekkingur og éljagangur.
Dagana 5.-8. var aðgerðarlítið veður. Smá lægðardrag var við suður- og vesturströndina og snjóaði þar
þ. 6. og einnig næsta dag við suðurströndina, en annars staðar var þurrt að mestu og kalt.
Aðfaranótt þ. 9. dýpkaði lægð á Grænlandssundi og hreyfðist suðaustur um land og myndaði allvíðáttumikla
kyrrstæða lægð fyrir austan og suðaustan land. Sunnanátt var og slydda eða snjókoma á sunnan- og vestanverðu
landinu en úrkomulítið norðan-og austanlands þar til þ. 10. að hvessti að austan með snjókomu og slyddu við
norðurströndina og var vonsku veður á Vestfjörðum aðfaranótt þ. 11. Dagana 11. og 12. var hlýjast að tiltölu
f mánuðinum. Hvöss austanátt og snjókoma eða slydda var um norðanvert landið og sums staðar éljagangur
suðaustanlands. Síðdegis þ. 12. snerist vindátt til norðurs og létti til á sunnaverðu landinu en snjókoma var
áfram norðan til. Næstu daga fóru lægðir norðaustur milli Islands og Bretlandseyja og náði úrkomusvæði frá
einni þeirra inn á land þ. 14 með snjókomu og slyddu um tíma syðst, en éljagangur var á norðanverðu landinu.
Næstu nótt gekk norðanáttin niður og létti víðast hvar til.
Þ. 16. var léttskýjað og hæg suðlæg átt á landinu en þykknaði upp með vaxandi austanátt þegar leið á
kvöldið. Vaxandi lægð nálgaðist landið úr suðvestri. Austan hvassviðri og snjókoma var á landinu þ. 17. um
leið og skil þokuðust norður yfir land. I kjölfarið var hæg suðlæg átt og skúrir sunnan til. Um nóttina var
hvöss norðaustan- og síðar norðanátt með snjókomu um norðanvert landið og var mjög vont veður fram eftir
degi þ. 18. en lægði svo með kvöldinu vestast. Dagana 19.-20. var austlæg átt og él við ströndina norðanlands
og við suðurströndina var snjókoma eða slydda öðru hveiju.
Dagana 21.-27. var norðaustlæg átt og fremur kalt. Lægð fór austur fyrir sunnan land þ. 22. og var stíf
austan- og norðaustanátt og víða snjókoma sunnan til á landinu en él fyrir norðan. Dagana 23.-25. var víða
bjart veður nema við norðurströndina, þar voru él. Aðfaranótt þ. 26. myndaðist lægðardrag yfir vestanverðu
landinu og fór að snjóa þar í hægri suðaustanátt og létti þá til við norðausturströndin um tíma. Lægðardragið
þokaðist austur yfir land næsta dag og létti til um tíma.
Aðfaranótt þ. 28. nálgaðist lægð landið úr suðvestri. Austan og norðaustan hvassviðri og stormur voru við
suðurströndina en hægari vindur í öðrum landshlutum. Smá él voru syðst á landinu og við norðausturströndina.
Næstu nótt gekk í norðaustanátt með snjókomu fyrir norðan og létti þá til á Suðvesturlandi, en snjókoma var
á Suðausturlandi. Þ. 30. gekk norðanáttin niður og kólnaði. Síðustu tveir dagar mánaðarins voru köldustu
dagar mánaðarins að tiltölu.
Loftvægi var 0,8 mb undir meðaltali áranna 1931-1960, frá því að vera 3,2 mb undir á Dt að vera 1,5 mb
yfir í Sth. Hæst stóð loftvog í Vm, 1032,2 mb, þ. 18. kl. 21 og 24 og lægst í Vm, 973,9 mb, þ. 28. kl. 21.
Vindáttir úr suðri voru fátíðastar í mánuðinum og var sunnanáttin sjaldgæfust. Aðeins norðlægar áttir
voru tíðari en venja er og var norðanáttin lang algengust.
Veðurhæð náði 12 vindstigum í Vm þ. 17 og á Npr þ. 18. og 11 vindstigum þ. 12. í Æð, þ. 13. á Blfl og í
Æð, í Vm þ. 17., á Hvrv og í Brkh þ. 18. og á Npr þ. 19
(17)