Veðráttan - 01.12.1999, Page 1
ISSN 0258-3836
VEÐRÁTTAN 1999
MÁNAÐARYFIRLIT SAMIÐ Á VEÐURSTOFU ÍSLANDS
Desember
Tíðarfar var talið meinlaust eða jafnvel hagstætt um mestallt norðan- og austanvert landið, en sunnanlands
var snjór víða óvenju þrálátur og tíð talin óhagstæð. í vestari Iágsveitum Suðurlands var meiri snjór en komið
hafði um langt árabil.
Þ. I. og 2. fór iægðardrag til austurs skammt norður af landinu. Vindur var suðvestlægur og vestlægur í
fyrstu, en snerist síðan til norðlægrar áttar, fyrst norðanlands. É1 voru víða um land og um tíma nokkuð
samfelld snjókoma á Vestfjörðum og Norðurlandi. Þ. 3. var norðaustanátt með éljum víða um land, en 4. var
hæðarhryggur við landið og norðanáttin gekk niður. V íða létti til, en smálægð fór þá austur með norðurströndinni.
Dagana 5. til 7. þokaðist allmikil lægð til austurs fyrir sunnan land. Vindur var fyrst af austri en snerist
síðan til norðausturs. Víða var nokkur strekkingur og stormur við suðurströndina. Um tíma snjóaði um mestallt
land, en síðan stytti upp sunnanlands. Mikla hn'ð gerði syðst á landinu síðdegis 5. Suðlæg átt var sunnanlands
7. en 8. var lægðardrag suðvestur undan og vindur af austri eða norðaustri. É1 voru þá um austanvert landið, en
skýjað syðra. Frostlítið var við sjóinn, en talsvert frost inn til landsins. Þ. 9. kom Iægðardragið inn á Suðvesturland
og þar snjóaði og 10. og 11. færðist dragið í aukana og víða snjóaði, einkum þó syðst á landinu. Hiti var nærri
frostmarki víðast hvar og austanlands var hláka og rigndi víða. Þ. 12. var enn lægðardrag undan Suðvesturlandi
með austlægri átt, norðaustlægri með frosti á Vestfjörðum, en suðlægari á Austurlandi með skúrum eða rigningu.
Þ. 13. teygðist lægðardragið norður fyrir land og fór þaðan til austurs og 14. var vindur hægur og átt breytileg.
Smáél voru víða um land.
Þ. 15. fór smálægð til austurs fyrir norðan land. Vindátt var vestlæg, víða rigndi, en inn til landsins
snjóaði. Síðdegis var grunnt lægðardrag yfir landinu en 16. var dragið suður undan. Þá létti til sunnanlands í
norðanátt, en dálítil él voru nyrðra. Þ. 17. og 18. var hæð yfir Grænlandi og síðar yfir íslandi. Dálítil él voru við
norðaustur- og austurströndina, en annars léttskýjað. Vfða var mikið frost og voru þessir dagar þeir köldustu í
mánuðinum. Síðdegis 19. fór að rigna suðvestanlands í suðaustanstrekkingi, þá var léttskýjað á Norðausturlandi.
Daginn eftir var suðlæg átt og fremur hlýtt, þá rigndi syðra, en norðanlands var úrkomulítið. Hægfara lægð var
á Grænlandshafi. Svipað veður hélst 21. og 22., nema að vindur snerist smám saman til suðausturs og síðar
norðausturs og heldur kólnaði. Síðdegis 22. var smálægð á austurleið við suðurströndina. Suðvestanlands var
léttskýjað en austanlands rigndi.
Þ. 23. og 24. var hæg norðaustanátt, él voru norðanlands, en bjart að mestu syðra. Að kvöldi 24. voru þó él
eða skúrir við suðvesturströndina. Á Vestfjörðum snjóaði þá í ákveðinni norðaustanátt. Næstu daga var vindátt
lengst af norðlæg með dálitlum éljum norðanlands en áttin varð um tíma vestlægari og élin náðu þá einnig til
Vesturlands. Meginlægðin var þessa daga alllangt norðaustur í hafi en lægðardrag teygði sig til vesturs í átt að
landinu.
Aðfaranótt 28. var vindur mjög hvass víða austanlands þó ekki fréttist af sköðum. Þ. 28. var hæðarhryggur
yfir landinu og vindur snerist til suðurs. Þá létti til á Norðurlandi. Daginn eftir var suðaustanstrekkingur með
rigningu suðvestanlands. Allskarpt lægðardrag nálgaðist landið og kom inn á það síðdegis, þá rigndi um
mikinn hluta landsins. Vindur snerist til suðvesturs á eftir lægðardraginu og þá gerði él suðvestalands, en
nyrðra létti til. Suðvestanáttin hélst fram undir kvöld 30. en þá kom mjög djúp og kröpp lægð (innan við 930
mb í miðju) inn á Grænlandshaf. Vindur snerist til vaxandi suðaustanáttar. Suðaustanhvassviðri gekk yfir
landið aðfaranótt 31. með rigningu og slyddu, en undir morgunn snerist vindur til hægari suðvestanáttar með
skúrum og síðar éljum. Gamlársdagur var hlýjasti dagur mánaðarins að tiltölu. Árið kvaddi með vægum
éljagangi um sunnan- og vestanvert landið en bjart var á milli élja. Besta veður var á Norðaustur- og Austurlandi.
(89)