Víkurfréttir - 30.10.2003, Síða 16
16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
➤ H J Á L M A R Á R N A S O N A L Þ I N G I S M A Ð U R
Mikils titrings gætir hjá íslenskum
starfsmönnum Varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli eftir fréttir þess efnis að 90
starfsmönnum hafi verið sagt upp störf-
um þar, en það er um 10% íslenskra
starfsmanna Varnarliðsins. Harðast
bitna þessar uppsagnir á Suðurnesja-
mönnum því 69 af þeim 90 sem sagt var
upp störfum eru búsettir á Suðurnesj-
um. Fyrstu fréttir um uppsagnir birtust
á vef Víkurfrétta, vf.is um hádegisbil á
mánudag. Í kjölfar fréttarinnar fóru
óttaslegnir starfsmenn Varnarliðsins að
hafa samband við Víkurfréttir þar sem
þeir lýstu áhyggjum sínum og margir
spurðu meðal annars hvort þessar frétt-
ir væru réttar. Frá því fréttin birtist og
málið komst í fjölmiðla hafa fjölmargir
haft samband við fréttadeild Víkur-
frétta og tjáð sig um málefni Varnarliðs-
ins og sérstaklega niðurskurð sem kem-
ur mörgum á óvart.
Víkurfréttir hafa heimildir fyrir því að
frekari niðurskurður sé boðaður innan
Varnarliðsins á næstu misserum og að stór
hluti Varnarliðsins muni hverfa á brott inn-
an tveggja til þriggja ára. Heimildir Víkur-
frétta herma að flugsveit Varnarliðsins
muni ekki fara og að lögð verði áhersla á
viðhald bygginga á svæðinu.
Þeir heimildarmenn sem Víkurfréttir hafa
rætt við segja að starfsmenn séu óttaslegn-
ir og að viðkvæmar trúnaðarupplýsingar
séu farnar að leka út meðal starfsmanna.
Samkvæmt upplýsingum Víkurfrétta er
verið að vinna að margvíslegum áætlunum
innan Varnarliðsins þar sem gert er ráð
fyrir brotthvarfi hinna ýmsu deilda. Frið-
þór Eydal upplýsingafulltrúi Varnarliðsins
vildi í samtali við Víkurfréttir ekkert tjá sig
um málið.
Samdráttur Varnarliðsins hefur verið mik-
ill frá árinu 1990 en þá voru hermenn
Varnarliðsins tæplega 3.300 talsins og ís-
lenskir starfsmenn Varnarliðsins tæplega
1.100. Í dag eru hermenn Varnarliðsins
tæplega 2.000 og hefur því fækkað um
1.300 hermenn. Eftir uppsagnirnar í vik-
unni eru íslenskir starfsmenn Varnarliðsins
rúmlega 800 talsins og hefur fækkað um
tæplega 300 frá árinu 1990.
Kristján Gunnarsson, formaður Verka-lýðs- og sjómannafélags Keflavíkur ognágrennis sagðist í samtali við Víkur-
fréttir vera mjög ósáttur við fyrirhugaðar
uppsagnir Varnarliðsins. Kristján segir Varn-
arliðið brjóta lög um hópuppsagnir. „Við höf-
um þegar skorað á starfsmannahald Varnar-
liðsins að draga þessa ákvörðun til baka, enda
verið að brjóta lög um hópuppsagnir,” segir
Kristján í samtali við Víkurfréttir.
Hver eru viðbrögð þín við þessum tíðindum?
„Þetta er gríðarlegt áfall fyrir Suðurnesin og upp-
sagnirnar rista djúpt í hjarta félagsins. Við höfum
þegar falið málið lögmönnum Alþýðusambands
Íslands og munum vinna málið í samvinnu við
bæði ASÍ og starfsgreinasamböndin,” segir Krist-
ján Gunnarsson formaður VSFK í samtali við
Víkurfréttir.
Á rni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir að fréttir afuppsögnum séu slæmar en sé ekki tengt þeirri umræðu semvar um Varnarliðið fyrir síðustu kosningar. „Það er greini-
legt að það er tekið mjög fast á hagræðingu og
sparnaði hjá Varnarliðinu samkvæmt þessum
fréttum.”
Aðspurður sagði Árni að þessar fréttir kæmu sér á
óvart og sérstaklega hve mörgum væri sagt upp. „Það
hefur verið yfirvofandi hjá Varnarliðum Bandaríkja-
manna um allan heim að það yrði dregið saman í rek-
stri. Þetta er mjög stór aðgerð og varla hægt að kalla
það hagræðingu þegar svona hart er skorið niður.”
Aðspurður um hvort bæjarstjórn muni bregðast við þessum uppsögn-
um sagði Árni að ekki yrði hlaupið til og önnur störf fundin. „Þessar
uppsagnir eru svipaðar því sem við höfum verið að sjá í fyrirtækjum.
Um þessi störf gildir það sama og þegar uppsagnir verða hjá fyrirtækj-
um. Það er ekki hlaupið til og fundin önnur störf auðveldlega þó allir
séu að vinna að því að byggja hér upp atvinnu. En málið er alvarlegt,”
sagði Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar í samtali Víkurfréttir.
G uðbrandur Einarsson formaður VerslunarmannafélagsSuðurnesja segir að fylgst hafi verið náið með umræðu umVarnarliðið síðustu mánuði og að uppsagnirnar komi hon-
um ekki á óvart. „Við hjá stéttarfélögunum hér á
Suðurnesjum höfum fylgst mjög náið með um-
ræðunni um Varnarliðið síðustu mánuði og höfð-
um varað við þessu. Því miður höfðum við rétt fyr-
ir okkur. Varnarsamningurinn er greinilega hætt-
ur að virka, þetta eru orðnar einhliða aðgerðir.”
Aðspurður segir Guðbrandur að Verslunarmannafélag
Suðurnesja muni fylgjast mjög náið með framvindu
mála. „Verslunarmannafélagið mun að sjálfsögðu fylgjast mjög náið
með því að rétt verði að öllum hlutum staðið. Einnig er bráðnauðsyn-
legt að fá fram umræðu um framhaldið. Þar hafa fjölmargir hlutverki
að gegna og ekki síst ríkisvaldið,” segir Guðbrandur og bætir við. „Það
er kominn tími til að horfast í augu við það sem þarna er að gerast og
því miður held ég að þetta sé bara byrjunin.”
„Ég er bæði undrandi og hissa í
senn og verulega áhyggjufullur,”
segir Hjálmar Árnason alþingis-
maður vegna frétta um uppsagnir
hjá Varnarliðinu. „Það kemur
mér á óvart að svona skuli gerast
í ljósi þess sem fram hefur komið
hjá háttsettum mönnum innan
Bandaríkjastjórnar að málið í
heild sé til endurskoðunar. Ég
held að menn hafi almennt túlk-
að það sem svo að það yrðu
óverulegar breytingar þar til þessi
heildarendurskoðun færi fram.
Þess vegna hefur maður verið
frekar rólegur og þetta segir
manni það að þeir embættismenn
sem vildu loka stöðinni séu enn
að krukka í málum. Það hefur
svo sem áður gerst að tilkynning-
ar hafi borist um uppsagnir, sem
síðan hafa verið dregnar til baka
þegar nást fram fjárveitingar að
utan.” Hjálmar segist munu ræða
við utanríkisráðherra og óska eft-
ir skýringum. „Ég mun óska eftir
skýringum um þetta mál, sérstak-
lega í ljósi þess að menn hafa
túlkað ummæli bandarískra ráða-
manna sem svo að hér yrði frekar
mikill stöðugleiki þar til heildar-
endurskoðun á herafla banda-
ríkjamanna hefði farið fram.
Þetta er á skjön við það og ég
mun leita eftir skýringum og ég
hygg að Utanríkisráðuneytið
muni fara fram á skýringar á
þessu,” sagði Hjálmar í samtali
við Víkurfréttir.
Fjöldauppsagnir hjá Varnarliðinu
Ótti og óvissa á Vellinum
„Varla hægt að kalla upp-
sagnirnar hagræðingu”
„Held að þetta sé bara byrjunin”
- segir Guðbrandur Einarsson formaður
Verslunarmannafélags Suðurnesja
-segir Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar
um uppsagnir Varnarliðsins.
Segir Varnarliðið brjóta
lög um hópuppsagnir
Hissa og verulega áhyggjufullur
RAUÐUR SÍMI 8 8 8 2 2 2 2
Víkurfréttir safna frekari upplýsingum um málefni Varnarliðsins. Þeir sem telja sig
geta veitt upplýsingar en vilja ekki koma fram undir nafni er bent á talhólf VF sem er í
síma 888 2222. Einnig má senda tölvupóst til blaðsins í gegnum vefsíðu vf.is. Þar
koma ekki fram upplýsingar um sendanda. Fullum trúnaði heitið.
VF 44. tbl. 2003 hbb 29.10.2003 13:30 Page 16