Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.11.2003, Síða 18

Víkurfréttir - 27.11.2003, Síða 18
18 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Bókasafn Reykjanesbæj-ar ákvað að verðlaunasérstaklega þau Reykja- nesbæjarskáld sem þóttu skara fram úr með ljóðum sínum í ljóðasamkeppninni, Ljóð unga fólksins, sem haldin er af Þöll samstarfshópi um barnamenn- ingu á bókasöfnum.Alls bárust 131 ljóð frá 99 ungskáldum. Þátttaka hefur aldrei verið eins góð og voru 4 skáld valin úr úrvali 18 ljóða sem komust til úrslita í samkeppni Þallar og af þessum 18 voru fjögur úr Reykjanesbæ. Reykjanesbæj- arskáldin sem Bókasafnið verðlaunaði fengu að launum bókagjöf frá safninu og 5.000 kr. frá Sparisjóðnum í Kefla- vík. Þessi skáld eru: Ingibjörg Íris Ásgeirsdóttir 11 ára, Magnús Þór Magnússon 11 ára, Ingi Snær Þórhallsson 12 ára og Kristján Helgi Olsen Ævarsson 11 ára sem fékk sérstök hvatningarverð- laun. Að auki voru úrslitaljóðin gefin út á bók sem hægt er að nálgast á bókasafninu. Stríðið og ungabarnið Magnús Þór Magnússon Það kom stríð og ég fór að gráta. Sprengja féll á húsið mitt, ég særðist bæði á höfði og höndum. Mamma dó, pabbi lamaðist og bróðir minn dó. Ég var ungabarn og grét. Mamma var jarðsett 5 árum síðar þegar stríðinu lauk. Pabbi var í hjólastól alla ævi og dó fljótt. Ég hafði ekkert í hönd- unum nema mitt litla hjarta. Páll Skúlason háskólarektor heldur þvífram að þroski tilfinninganna skipti höf-uðmáli í uppeldinu vegna þess að þær skipti sköpum við mat á gæðum lífsins. Hann segir að tilfinningarnar gegni eins konar miðl- unarhlutverki gagnvart skilningi og ímyndun. Páll segir að uppeldi snúist um að opna augu barn- anna fyrir heimi sem er fullur af gæðum sem eru til og bíða þess eins að vera uppgötvuð - gæði sem eru til óháð öllum tilfinningu, en sem við lærum ein- ungis að njóta og meta með því að dýpka og rækta tilfinningar okkar. Þess vegna skiptir þroski tilfinn- inganna öllu máli í uppeldinu. Þegar höfundur listar setur fram verk sín er hann að opinbera tilfinningar sínar. Um leið er hann að þros- ka þær, hreinsa þær og víkka þær út. Höfundurinn er að sýna eitthvað úr einstökum hugarheimi sínum sem skírskotar til allra einstakra hugarheima. Ef við veltum fyrir okkur mikilvægi bókmennta og lista í lífi okkar leitar sú spurning á okkur hvort við getum verið án þeirra? Páll Skúlason spyr ennfremur hvað fái hugi til að snertast. Hann segir að með því að skapa brú milli ólíkra hugarheima tryggi listin undirstöðusamskipti manna. Fari þau forgörðum glatar lífið merkingu sinni. Án listarinnar væri upplifun okkar og per- sónuleg reynsla okkur algerlega óskiljanleg. Við þurfum á listinni að halda til að skilja okkur sjálf og aðra. Þessi orð Páls Skúlasonar rektors HÍ úr bók- inni Sjö siðfræðilestrar leituðu á hugann þegar ég las ofangreint ljóð unga ljóðskáldsins í Reykjanes- bæ. Helga Margrét UNG LJÓÐSKÁLD Í REYKJANESBÆ SKÓLAMÁLIN Tilfinningaþroski barna Í V Í K U R F R É T T U M Hljómsveitin Írafár hélt tónleika í íþróttahúsi Myllubakkaskóla á þriðjudagskvöld og er óhætt að segja að spenn- ingurinn hafi verið mikill í salnum þegar hljómsveitin og Birgitta Haukdal stigu á svið. Fjölmenni var á tónleikun- um, en Írafár er að endurgjalda greiða þegar Myllubakkaskóli lánaði þeim Sundhöll Keflavíkur til afnota. Í Sund- höllinni var nýjasta myndband hljómsveitarinnar tekið upp. Mikil stemmning myndaðist í salnum og tóku krakk- arnir vel undir, enda gjörþekkja þau lög hljómsveitarinnar. Írafár spilaði í Myllubakkaskóla ➤ VF-ljósm ynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson Bæjarstjórn Sandgerðis-bæjar skorar á ríkisstjórnÍslands að viðurkenna sér- stöðu Suðurnesja í atvinnumál- um og að ríkisstjórnin bregðist við uppsögnum Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli með afger- andi hætti. Þetta kemur fram í tillögu sem lögð var fram sam- eiginlega af bæjarfulltrúum Sandgerðisbæjar á 202. fundi bæjarstjórnar Sandgerðis í síðustu viku og samþykkt sam- hljóða. Orðrétt segir: „Bæjarstjórn Sand- gerðisbæjar lýsir yfir áhyggjum af þeim uppsögnum og þeirri óvissu sem ríkir í atvinnumálum íslenskra starfsmanna Varnarliðsins á Kefla- víkurflugvelli. Hópuppsagnir munu hafa slæm áhrif á samfélagið á Suðurnesjum og á þá einstaklinga sem í hlut eiga. Hagræðingaráætl- anir Bandaríkjahers varpa skýru ljósi á viðkvæma stöðu atvinnu- mála hér á Suðurnesjum. Atvinnulífið á Suðurnesjum mun væntanlega taka einhverjum breyt- ingum á næstu árum en undirbúa þarf slíkar breytingar í tíma. Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar skor- ar því á ríkisstjórn Íslands að viður- kenna sérstöðu Suðurnesja í at- vinnumálum og að ríkisstjórnin bregðist við umræddum uppsögn- um með afgerandi hætti“. Samþykkt samhljóða af bæjar- stjórn. Skora á ríkisstjórnina Kolbrún Guðjónsdóttir, Hjördís Baldursdóttir, Halldór Kristinsson, Baldur Jóhann Baldurss., Ingibjörg Soffía Sveinsd., Tinna Björk Baldursdóttir, Björgvin Færseth, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Baldurs Guðjónssonar, Langholti 15, Keflavík. VF 48. tbl. 2003 hbb #2 26.11.2003 15:06 Page 18

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.