Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.11.2003, Síða 20

Víkurfréttir - 27.11.2003, Síða 20
E itt af hlutverkum for-eldraráða grunnskóla erað huga að öryggismál- um og hafa foreldraráð grunn- skólanna í Reykjanesbæ í sam- vinnu við foreldrafélögin ákveðið að beita sér sameigin- lega fyrir bættu umferðarör- yggi við skólana. Sameiginlegt erindi var sent til fræðsluráðs Reykjanesbæjar þar sem óskað var eftir því að settur yrði á laggirnar samstarfshópur bæjaryfirvalda, lögreglu, skóla og foreldra sem myndi beita sér fyrir bættri umferðarmenningu. Að mörgu þarf að huga þegar rætt er um umferðarmenningu. Í fyrsta lagi þarf að bæta aðkomu við skólana, lækka hámarkshraða og auka merkingar. Í öðru lagi þarf að bæta umferðarmenningu okkar foreldranna. Flestir skólar hvetja nemendur sína til þess að ganga í skólann og er það vel enda þurfum við öll á hreyfingu að halda og með til- komu skólahverfa er gönguleið nemenda í skólann ekki löng. Hinsvegar er ekki alls staðar raunhæft að nemendur gangi í skólann eins og staðan er í dag sem er miður því aukin bílaum- ferð skapar enn frekari slysa- hættu. Lögreglan hefur verið virk í um- ferðareftirliti við skólana frá því í haust og hefur lýst sig fúsa til frekara samstarfs sem er mjög já- kvætt. Það er von okkar að sam- starf takist jafnframt með bæjar- yf irvöldum og skólunum en samvinna er nauðsynleg til þess að hægt sé að ná árangri í bættu umferðaröryggi fyrir nemendur. Dagný Gísladóttir formaður foreldraráðs Myllubakkaskóla. LÍFSLEIKNI 20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Foreldrafélög grunnskól-anna héldu sinn sameig-inlega árlega haustfyrir- lestur í Njarðvíkurskóla fimmtudag 13. nóvember sl.Að þessu sinni var fyrirlesturinn um kynhegðun unglinga og hlutverk foreldra í kynfræðslu. Fyrirlesarar voru þær Dag- björt Ásbjörnsdóttir mann- fræðingur og starfsmaður hjá ÍTR og Sigurlaug Hauksdóttir félagsráðgjafi hjá Landlæknis- embættinu og starfsmaður í Neyðarmótttöku nauðgana. Dagbjört ræddi um fjölmiðla og kynhegðun unglinga. Hún ræddi um það hvað unglingar vilja vita um kynlíf og hvað þeir þurfa að vita um kynlíf. Hún ræddi um kynvitun og breytta kynheðgun unglinga og að stöðugt yngri hópar unglinga væru farnir að stunda kynlíf. Dagbjört lagði þó áherslu á að unglingar hefðu í sjálfu sér ekki breyst heldur flest allt sem í kringum þá er. Hún tók sem dæmi PoppTíví og Skjá 1, internetið og ýmsar unglinga- kvikmyndir eins og t.d. 40 days and 40 nights og American Pie. Hún sagði að markaðsöflin ættu sinn þátt í að börn eru nú orðin kynverur yngri en áður og nefndi hún t.d. í því sambandi svokölluð G-strengs nærföt. Fram komu mismunandi hug- myndir drengja um kynþokka- fullar stúlkur og hvað stúlkur teldu kynþokkafullt hjá drengj- um. Hún skyldi eftir þá spurn- ingu hjá fundarmönnum hvort þeir teldu að gott væri fyrir 15 ára börn að stunda kynlíf en sam- kvæmt könnunum er meðalaldur þeirra sem byrja að stunda kynlíf á Íslandi 15,4 ár. Dagbjört lagði einnig áherslu á að börn þyrftu að kunna að segja já til að geta sagt nei og að í kyn- fræðslunni ættu foreldar að vanda sig bæði með stúlkur og drengi. Virðing og vellíðan eru lykilorð í kynfræðslunni. Það má minnka hræðsluáróðurinn við stúlkur sögðu þær stöllur báðar. Sigurlaug sem er félagsráðgjafi kom að efninu með aðeins öðr- um hætti en Dagbjört og sagði frá ýmsum tölulegum staðreynd- um t.d. að í hverjum mánuði væru tilkynntar tvær nauðganir á 12-18 ára stúlkum og fóstureyð- ingar væru að meðaltali þrjár í hverjum mánuði. Sigurlaug lagði áherslu á siðferðisþáttinn í kyn- fræðslunni og sagði að foreldrar þyrftu að hjálpa börnum að læra hvað er rétt og rangt í kynlífi. Foreldrar þurfa að efla siðgæðis- vitund barna sinna og kenna þeim að vera gagnrýnin. Sá þátt- ur er oft vanræktur enda einkenn- ir mikill tímaskortur nútímafjöl- skyldulífið. Við lifum á upplýs- ingaöld þar sem börn hafa að- gang að alls konar upplýsingum og þess vegna er svo mikilvægt að þau heyri um gildismat for- eldra sinna. Nú þegar kynlíf er orðin neysluvara þurfum við að fara að öllu með gát og kunna að virða takmörk hvers annars. Fundurinn var frekar fámennur en gleðilegt var að nokkrir ung- lingar tóku áskorun um að mæta á fundinn. Helga Margrét Deildarstjórar hafa skipulagt námsefni til viðbótar við hefð- bundið lífsleikninám og tengja þannig dygðir sérstaklega við efnið. Teknir eru tveir mánuðir í senn um ákveðna dygð og er unnið með dygðina í lífsleikni- tímum og nemendur fá heima- nám tengt því. Ef við tökum dæmi um kurteisi þá er unnið með dygðina í tímanum þar sem kennarinn vinnur með efn- ið í skólanum en nemendur fá einnig verkefni með sér heim og þurfa að æfa sig í kurteisi heima og skrá niður það sem þau gera og foreldrar kvitta undir. Þannig fer samþætting í náminu fram og í leiðinni skap- ast vettvangur fyrir samstarf heimila og skóla. Hér er um einkar áhugaverða aðferð að ræða og gott framlag í siðferði- legt uppeldi nemenda þar sem allir leggjast á eitt að skerpa á veigamiklum atriðum í sam- skiptum fólks. Drífa Gunnarsdóttir deildar- stjóri í 6. - 10. bekk í Njarðvík- urskóla hafði þetta að segja um dygðirnar: „Verkefnið um dygðir tengist lífsleikninám- inu. Við tökum tvo mánuði í senn og vinnum með ákveðnar dygðir. Kennarar vinna með þær í kennslustundum t.d með því að gera plaköt og stjórna umræðum. Nemendur vinna með sama efni heima. Kennar- ar hafa frjálar hendur með út- færsluna. Á þessu skólaári fer í fyrsta sinn fram námsmat í lífs- leikni og mun það án efa gera námið markvissara og gefur okkur færi á að sjá hvernig námið í þessu fagi skilar sér. Einnig gerir námsmatið kröfur um að vandað sé til námsefnis- ins. “ Helga Margrét Kynhegðun unglinga rædd ➤ F O R E L D R A F É L Ö G G R U N N S K Ó L A N N A ➤ S K Ó L A M Á L A U M R Æ Ð A V Í K U R F R É T TA í Njarðvíkurskóla Það sem vekur athygli á heimsíðu Njarðvíkurskóla er aðþar eru nemendur að læra ýmislegt um dygðir. Er hérum athyglisverða nýung að ræða. Dygðir nóvember og desembermánaðar eru GLEÐI og ÞAKKLÆTI. Kennarar vinna með dygðirnar í kennslustundum í lífsleikni. Bætt umferðar- öryggi við skólana Ef vel er skoðað má sjá börn á leið til skóla með töskur á bak- inu í sortanum. Hérna vantar endurskinsmerki. Börnin eru ekki nógu dugleg að nota endurskinsmerki í dag. VF 48. tbl. 2003 hbb 26.11.2003 14:55 Page 20

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.