Víkurfréttir - 27.11.2003, Síða 22
22 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
V instri hreyfingin græntframboð samþykktisvohljóðandi ályktun á
landsfundi sínum í Hveragerði
um daginn:
„Landsfundur
Vinstrihreyf-
ingarinnar -
græns fram-
boðs fagnar því
að útlit er fyrir
að dregið verði
úr umsvifum
Bandaríkjahers
á Íslandi. Við eigum að nota þetta
sögulega tækifæri til að segja upp
herstöðvarsamningnum frá 1951
og loka NATO-herstöðinni á
Misnesheiði fyrir fullt og allt.
Við viljum að Íslendingar eigi sér
ímynd sem friðsöm þjóð. Sú
ímynd fer ekki saman við að hafa
hér hernaðaraðstöðu fyrir árásar-
gjarnt stórveldi sem meirihluti
Evrópubúa lítur nú á sem eina
helstu ógnina við heimsfriðinn.
Umræða síðustu mánaða hefur
sýnt að breytingar á herstöðinni
eru óhjákvæmilegar. Þær þurfa
að taka mið af hagsmunum ís-
lensku þjóðarinnar en ekki
bandarískra hernaðaryfirvalda.
Draga verður Bandaríkjastjórn til
ábyrgðar fyrir þeirri eyðileggingu
sem herinn hefur valdið á um-
hverf i og náttúru. Íslenskum
stjórnvöldum er skylt að sjá til
þess að herinn hreinsi til eftir sig
í samræmi við ýtrustu kröfur,
þótt reikna megi með að það
kosti þúsundir ársverka. Jafn-
framt ber að kanna réttarfarslega
stöðu sveitarfélaga og einstak-
linga sem orðið hafa fyrir
skakkaföllum af völdum herset-
unnar og rétt þeirra til skaðabóta.
Herstöðin hefur komið í veg fyrir
fjölbreytta og heilbrigða atvinnu-
þróun á Suðurnesjum, rétt eins
og herstöðvar um allan heim
gera. Við brottför hersins opnast
óteljandi möguleikar til nýsköp-
unar í atvinnulífi á Suðurnesj-
um.”
Herstöð er mein sem fjarlægja þarf
Allt frá því að bandaríski herinn
kom árið 1951 hafa vinstri menn
og aðrir unnendur friðar og þjóð-
frelsis litið á hann sem mein í ís-
lensku þjóðlífi. Við teljum enga
vörn í honum - eins og nú hefur í
raun verið viðurkennt af Banda-
ríkjamönnum sjálfum - heldur
stafar af honum hætta, því her-
stöð hlýtur ávallt að vera skot-
mark í stríðsátökum.
Atvinnulíf á Suðurnesjum sýktist
illa af þessu meini. Suðurnesin
urðu háð hermangi og aðrar heil-
brigðari atvinnugreinar hafa átt
erfitt uppdráttar. „Þið hafið her-
inn” hefur gjarna verið sagt við
Suðurnesjamenn ef þeir hafa leit-
að eftir sams konar fyrirgreiðslu
og önnur byggðarlög hafa fengið.
Herstöðvasamningnum fylgdi
valdaafsal og nú kemur berlega í
ljós að völdin yfir herstöðinni
eru að sjálfsögðu í Wasington.
Þeir gera það sem þeim hentar
óháð okkar hagsmunum, hvort
heldur rætt er um landvarnir eða
atvinnu.
Vinstri hreyfingin Grænt fram-
boð vill losa okkur Íslendinga úr
þessari sjálfheldu. Þingmenn VG
hafa tvívegis flutt tillögu á Al-
þingi um að íslensk stjórnvöld
leiti eftir samningum um að her-
inn fari og hreinsi eftir sig - og að
við nýtum okkur möguleika til
nýsköpunar í atvinnulífi sem þá
opnast. Hægristjórnin íslenska
tók það auðvitað ekki í mál, en
hefur legið löngum stundum á
hnjánum í Wasington til að biðja
þarlenda um að herinn verði
áfram. Þannig tókst að vísu að
lengja í þeirri hengingaról sem
nú herðist fastar en ella að at-
vinnulífinu hér.
Fundur með Steingrími í kvöld
Vinstri grænir halda fund um þá
stöðu sem nú er komin upp í her-
stöðvarmálinu kl. 20.00 í kvöld á
Flughóteli. Þar mun Steingrímur
J. Sigfússon, alþingismaður og
formaður flokksins, mun fjalla
um málin m.a. út frá breyttum
aðstæðum í alþjóðastjórnmálum
og öryggismálum. Ólafur Þór
Ólafsson bæjarfulltrúi í Sand-
gerði fjallar um málið af sjónar-
hóli sveitarfélags sem á mikilla
hagsmuna að gæta. Einnig fáum
við að heyra raddir verkalýðsfé-
laga hér um slóðir og vonandi
raddir margra fundarmanna. Ég
skora á sem flesta að mæta til að
hlusta og taka til máls. Þetta mál-
efni hefur margar hliðar og kem-
ur okkur svo sannarlega við.
Hvað er hægt að gera hér annað
og betra en að þjónusta erlendan
her? Leitum svara við því strax í
kvöld.
Þorvaldur Örn Árnason
líffræðingur og kennari
og formaður VG
á Suðurnesjum.
R .Ó. rafbúð - rafverk-stæði og Nesraf samein-ast. Hugmyndin á bak
við sameininguna er aðalega
hagræðing í rekstri auk þess
sem þjónustan eykst. Með því
að stækka verslunina má auka
vöru úrvalið og vera með því
betur samkeppnishæfir við
verslanir á höfuðborgarsvæð-
inu.
Eftir sameininguna verður fyrir-
tækið rekið í nafni Nesrafs en
verslunin heldur nafni sínu þ.e.
RÓ.
Fyrir 25 árum síðan stofnaði
Reynir Ólafsson fyrirtæki sitt
R.Ó. Fyrst var það til húsa að
Tjarnargötu 7, ári seinna flutti
það að Hafnargötu 44, þar sem
það var til nokkurra ára en 1987
flutti Reynir fyrirtækið í eigið
húsnæði að Hafnargötu 52.
Árið 1997 stofnuðu Reynir, Jón
Ragnar sonur hans og Hjörleifur
Stefánsson bróðursonur Reynis
ásamt mökum þeirra fyrirtækið
Nesraf. Þess má til gamans geta
að Hjörleifur var fyrsti nemi
Reynis og samstarfsmaður hans
til nokkurra ára.
Eigendur Nesraf horfa björtum
augum til framtíðar á suðurnesj-
um þrátt fyrir tímabundna erfið-
leika á svæðinu og hafa fulla trú
að Suðurnesjabúar
Vilji versla í heimabyggð.
Verð á vörum og þjónustu er það
sama og á höfuðborgarsvæðinu
og fagmaður er til aðstoðar þegar
þörf er á. Aukið vöru úrval og
hagstætt verð er það sem þeir
stefna að hjá Nesraf.
Auk verslunarinnar verður þjón-
usta við bifreiðaeigendur rekin
áfram í sömu mynd þ.e. viðgerðir
á Alternatorum og Störturum o.f.
Rekstur Nesraf hefur gengið vel
en þeir þjónusta suðurnesjabúa á
rafverktakasviðinu en hafa und-
anfarið einnig unnið verk á höf-
uðborgarsvæðinu og þjónusta
fyrirtæki þar. Sjá þeir fyrir sér
enn meiri aukningu á því sviði.
Fyrsti áfangi að breytingu R.Ó.
er að opna Jólaljósamarkað.
Og fleiri breytingar fyrirhugaðar
á næsta ári.
Bandaríska herstöðin í nýju ljósi
➤ V I Ð S K I P T I O G AT V I N N U L Í F
Rafbúð RÓ og Nesraf sameinast
VF 48. tbl. 2003 hbb #2 26.11.2003 15:26 Page 22