Víkurfréttir - 27.11.2003, Qupperneq 23
VÍKURFRÉTTIR I 48. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 27. NÓVEMBER 2003 I 23
F jölskyldu- og félagsþjón-usta Reykjanesbæjar,Svæðisskrifstofa málefna
fatlaðra á Reykjanesi og Sjálfs-
björg á Suðurnesjum eru í
samvinnu að skoða möguleik-
ann á því að koma á fót at-
hvarfi fyrir geðfatlaða á svæð-
inu.
Til þess að fá sem besta mynd af
þjónustu þörfinni hefur verið
ákveðið að boða til fundar með
geðfötluðum, þeim sem búa við
geðraskanir og aðstandendum.
Fundurinn verður haldinn í húsi
Sjálfsbjargar við Fitjabraut 6 í
Njarðvík, miðvikudaginn 3. des-
ember kl. 20:00.
Sigursteinn Másson formaður
Geðhjálpar verður sérstakur gest-
ur fundarins.
Boðið verður uppá kaffi og kök-
ur.
Allir sem vilja láta sig málið
varða, eru hvattir til að mæta.
Félagsmálastjórinn
í Reykjanesbæ
Aðalfundur Styrktarfé-lags HSS verður haldinnmiðvikudaginn 3. des-
ember n.k. á Víkinni, Hafnar-
götu 80, kl. 20:00.
Áhugafólk um heilbrigðismál á
Suðurnesjum stofnaði styrktarfé-
lag Sjúkrahúss Keflavíkurlæknis-
héraðs, síðar Sjúkrahúss Suður-
nesja og núverandi Heilbrigðis-
stofnun Suðurnesja. Markmiðið
með stofnun félagsins 1. apríl
1975, var að sýna samstöðu Suð-
urnesjabúa og þrýsta á um
stækkun gamla sjúkrahússins.
Mikill áhugi var um eflingu heil-
brigðisþjónustunnar á Suðurnesj-
um og voru stofnendur félagsins
um eitt þúsund.
Stjórn félagsins vill vekja athygli
á að þó svo ýmislegt hafi áunnist
á þessum tæpu 30 árum í sam-
bandi við framkvæmdir við
stofnunina, þá er enn full þörf á
að Suðurnesjabúar haldi áfram
að sýna samstöðu um málefni
hennar. Mörgum verkefnum,
m.a. „framtíðarsýn“ félagsins í
sambandi við D-álmu, er enn
ólokið.
Tekjur félagsins hafa frá upphafi
verið sala minningarkorta og hef-
ur allur ágóðinn runnið óskiptur
til Sjúkrahússins og Heilsugæsl-
unnar.
Stjórn Styrktarfélags Heilbrigðis-
stofnunar Suðurnesja vill þakka
Suðurnesjabúum ómetanlegan
stuðning á undanförnum árum
og vonar að sem flestir sjái sér
fært að mæta á aðalfund félags-
ins þann 3. desember n.k. á Vík-
inni kl. 20:00.
Fundur um málefni geðfatlaðra á Suðurnesjum
Styrktarfélag Heilbrigðis-
stofnunar með aðalfund
K irkjudagar og jólabasar kvenfélags-ins Gefnar sunnudaginn 30. nóvem-ber
Kirkjudagurinn hefst með messu í Útskála-
kirkju kl. 14. Prestur verður Sr. Björn Sveinn
Björnsson. Kvenfélagskonur munu sjá um
lestur.
Jólabasar félagsins verður í Sæborgu kl. 15:15.
Þar verður margt góðra muna t.d. til jólagjafa
og einnig úrval af kökum.
Basarnefndin
KIRKJUDAGAR OG
BASAR Í GARÐI
VF 48. tbl. 2003 hbb #2 26.11.2003 15:57 Page 23