Víkurfréttir - 27.11.2003, Blaðsíða 24
Körfuboltalið Keflavíkur varð
fyrir blóðtöku þegar hinn reyn-
di bakvörður Hjörtur
Harðarson viðbeinsbrotnaði í
úrslitaleik Hópbílabikarsins.
Hjörtur lenti í samstuði við
Brandon Woudstra í byrjun
leiks og kom ekki meira við
sögu í leiknum. Hann var umsv-
ifalaust fluttur á sjúkrahús þar
sem umfang meiðslanna kom í
ljós og ljóst er að hann mun
ekki vera fær um að stunda
æfingar næstu fjórar vikurnar
og óljóst er hvenær hann
verður orðinn leikfær á
ný.Þetta er mikið áfall fyrir
Keflavíkurliðið sem stendur
frammi fyrir ströngu leikjapró-
grammi í Intersport-deildinni
og Evrópukeppni bikarhafa.
„Ég er bara kominn í jólafrí „,
sagði Hjörtur í samtali við
Víkurfréttir og neitaði að
svekkja sig á þessu. „Það þýðir
ekkert að vera að gráta þetta.
Þetta getur komið fyrir hvern
sem er.“ Fjarvera hans þýðir
meira álag á hinum
bakvörðunum en vafalaust eru
liðsfélagar hans reiðubúnir til
að fylla í skarðið og mun reyna
á þá í fullri alvöru í átökum
næstu vikna.
24 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
■Knattspyrnudeild Grindavíkur / Jónas Þórhallsson formaður knattspyrnudeildar ómyrkur í máli:
sport
Þennan málarekstur má rekja allt
aftur til þess að stjórnvöld
ákváðu árið 1993 að íþróttafélög,
stjórnmálaflokkar, blaðburðar-
fólk og aðrir sem höfðu fram að
því verið látnir óáreittir gegn op-
inberum aðilum, skyldu þar eftir
hlýta sömu reglum og aðrir hvað
varðaði skattheimtu. Þau skyldu
þess vegna skila launaframtali og
halda nákvæmt bókhald yf ir
rekstur sinn eins og hver önnur
fyrirtæki. Það kom flatt upp á
íþróttafélögin sem höfðu fram að
því ekki hugsað mikið um bók-
hald og þess háttar.
Í framhaldi af því fór skattstjóri
af stað með rannsókn á fjárhag
félaganna og ákvað að rannsaka
4 deildir af handahófi. Um var að
ræða knattspyrnudeild Grinda-
víkur og FH auk körfuknattleiks-
og knattspyrnudeildar Njarðvík-
ur.
Tekin voru til hliðsjónar sex árin
þar á undan, þ.e. 1988-1993, og
átti af þeim að ráða hvernig
venjubundinn rekstur hafi verið á
tímabilinu. Jónas Þórhallsson,
formaður knattspyrnudeildar
Grindavíkur sagði í samtali við
Víkurfréttir að á þessum tíma
hafi félagið verið í þriðju deild
(sem nú er 2.deild) í tvö af þess-
um árum og hin fjögur í 2. deild
(nú 1.deild) og því hafi rekstur-
inn ekki verið stór í sniðum mið-
að við liðin í efstu deild sem
mörg hver tóku þátt í Evrópu-
keppnum og þar fram eftir götun-
um. Knattspyrnudeildin í Grinda-
vík hafi þó fært bókhald allt frá
1977 og sami bókari hafi séð um
bókhaldið fram á þennan dag.
„Það var ýmislegt í ólagi í þess-
um efnum hjá okkur eins og öll-
um liðum. Við lögðum til dæmis
ekki virðisaukaskatt á auglýsing-
ar sem við seldum, og sendum
ekki inn launaframtöl þegar um
slíkt var beðið vegna þess að við
áttum enga slíka pappíra. Hin fé-
lögin voru í nákvæmlega sömu
málum og við en í stað þess að
koma hreint fram eins og við
gerðum, teiknuðu þau bara upp
einhverja platmiða sem þau skil-
uðu sem alvöru gögnum.”
Jónas leggur mikla áherslu á að
Grindavík hafi strax brugðist við
með réttum vinnubrögðum. „Allt
frá og með 1995 höfum við rekið
deildina líkt og hvert annað fyrir-
tæki, með miklum sóma og eng-
inn hefur tapað krónu í viðskipt-
um við okkur. Á stórum fundi í
Laugardal það sama ár kom fram
hjá fulltrúa skattayfirvalda og
forseta ÍSÍ, Ellerti Schram, að nú
kæmu allir jafnir að sama borði
og tækju upp rétt vinnubrögð og
fortíðin skildi gleymd. Engu að
síður var áætluð á okkur sekt upp
á 2 milljónir króna vegna þessara
gömlu synda þegar rannsókninni
lauk 1995.” Jónas sagði að eftir
þennan úrskurð hefði knatt-
spyrnudeildin þrjóskast við að
borga sektina af þeirri ástæðu að
þeim fannst ekki komið fram við
félög með jafnaðarreglu að sjón-
armiði. „Það vita allir að mörg
félög skila inn gögnum sem ekki
er sannleikskorn í og ef á að refsa
okkur vil ég að það sama gangi
yfir alla. Ég sagði við Skúla Egg-
ert Þórðarson, skattrannsóknar-
stjóra, að ef að við þyrftum að
sætta okkur við þessa sekt skyldu
hann og hans menn taka öll úr-
valsdeildarfélögin fyrir og skoða
þeirra launaframtöl.”
Nú þegar komið er að skulda-
dögum hefur upprunalega sektar-
upphæðin fimmfaldast vegna
vaxta, fjárnámsbeiðna og annarra
gjalda og nemur nú 10 milljón-
um króna. Ljóst er að greiðsla
slíkrar sektar mun kollvarpa öllu
því starfi sem hefur verið unnið í
Grindavík síðustu árin og hefur
orðið til þess að byggja upp
sterkt lið sem hefur staðið sig vel
í keppnum hér heima, þrátt fyrir
misjafnt gengi á síðustu leiktíð,
og tekið þátt í Evrópukeppnum.
Jónas er á þeirri skoðun að þetta
geti gert útaf við knattspyrnu-
deildina. „Það er nú nógu erfitt
að reka deildina frá degi til dags
án þess að þurfa að vera með
svona skuld á bakinu. Þetta drep-
ur niður allar okkar vonir um að
fá til okkar leikmenn og án þess
gengur reksturinn ekki upp og
við þurfum að fara að íhuga, þó
ég megi varla hugsa til þess, að
lýsa yfir gjaldþroti! Ef slíkt kæmi
til fengi ríkið ekki krónu í vasann
vegna þess að deildin sem slík er
alveg eignalaus. Ég tel rétt að við
greiðum höfuðstólinn, eða því
sem næst. Þannig tryggjum við
framhald knattspyrnudeildarinnar
og ríkið fær pening í kassann.”
Jónas heldur áfram að lýsa von-
brigðum sínum en segist helst
vera sár vegna þess að þeim sé
refsað en önnur félög sleppi
skammlaust úr sömu málum.
„Við erum bara gerðir að fórnar-
lömbum fyrir önnur félög. Krafa
okkar er sú að önnur félög muni
einnig þurfa að opna sín bókhöld
og sýna hvað þar fer fram. Ef
þessi 10 milljóna sekt fær að
standa mun fótunum vera kippt
undan okkur. Mér finnst það vera
fyrir neðan virðingu opinberra
aðila að leggjast svo lágt að vera
að hamast svona á íþróttafélög-
um, sem vinna samfélaginu
ómælt gagn t.d. í formi forvarna
gegn eiturlyfjum og öðru böli.”
Jónas klykkir út með því að lofa
starf þeirra sem hafa unnið svo
dyggilega að knattspyrnumálum
í Grindavík
„Meðalstarfsaldur stjórnarmanna
í Grindavík er 18 ár, hér eru
100% hugsjónarmenn að störfum
sem hafa byggt upp félag úr
neðstu deild og uppí efstu deild
og tekið þátt í allri uppbygginu á
öllum þeim mannvirkjum tengd-
um knattspyrnu sem Grindvík-
ingar státa af, og hér endurtekur
sagan sig, því í gegnum söguna
hafa hugsjónarmenn lent í tóm-
um vandræðum og jafnvel verið
drepnir, samanber Jesús, Gandhi,
Martin Luther King og John
Lennon.”
Knattspyrnudeild Grindavíkur þarf að greiða 10 milljónirkróna vegna vangoldins virðisaukaskatts, en sektin er frá ár-inu 1995. Þetta kom í ljós í gær þegar knattspyrnudeild
Grindavíkur lýstu því yfir að samningafundur til að leysa deilu
þeirra við skattayfirvöld hefði engan árangur borið og því komi
ekkert annað til greina frá sjónarhóli yfirvalda en að skuldin verði
greidd að fullu.
Gert að greiða 10 milljóna króna fortíðarskatt
Knattspyrnudeild Keflavíkur
hefur gert fjögurra ára samning
við PUMA íþróttavörumerkið.
Um er að ræða þríhliða samning
milli Knattspyrnudeildarinnar,
TÓ ehf, umboðsaðila PUMA á
Íslandi, og verslunarinnar K-
sports, söluaðila PUMA í
Reykjanesbæ.
Rúnar V.Arnarson formaður
Knattspyrnudeildar Keflavíkur
segir samninginn góðan. „Það er
ljóst að menn hafa trú á liðinu og
okkar verk er að standa undir
þeim væntingum. Þeir eldri
þekkja PUMA af góðu einu og
þeir yngri eru mjög spenntir fyr-
ir því. Það er afar mikilvægt að
fá slíkan samstarfsaðila nú þegar
liðið er að hefja keppni í úrvals-
deildinni“, sagði Rúnar.
Við undirritun samningsins sagði
Tómas Torfason hjá TÓ ehf að
Keflavík væri áhugaverður sam-
starfsaðili PUMA. Liðið væri
ungt og ferskt og hefði alla burði
til að vera skemmtilega liðið í úr-
valsdeildinni á komandi sumri.
„Liðið samræmist því vel ímynd
PUMA“, bætti Tómas við.
Verslunin K-sport hefur til
margra ára staðið vel við bakið á
Knattspyrnudeildinni en í kjölfar
samningsins mun úrval af
PUMA vörum aukast til muna í
K-sport.
Puma merkið hefur sótt verulega
í sig veðrið á síðustu árum, það
hefur mikla breidd, allt frá há-
gæða alvöru fótboltaskóm yfir í
tískulegri sportfatnað. Keflavík
verður eina PUMA-liðið í úrvals-
deildinni á komandi sumri.
KEFLAVÍK Í PUMA
Erla Dögg
Haraldsdóttir, 15
ára sundkona úr
ÍRB, gerði sér
lítið fyrir og
bætti Íslandsmet
kvenna í 400m
bringusundi um
rúmlega 11 sekúndur á meta- og
lágmarkamóti SH sem fram fór sl.
föstudagskvöld. Gamla metið var í
eigu Berglindar Óskar Bárðardóttur
úr SH og var frá árinu 2000. Þessi
árangur hjá Erlu lofar góðu því hún
er enn í unglingaflokki, og því er
þetta met bæði kvenna- og stúlkna-
met. Erla er ein af ellefu sundmön-
num sem fara til keppni á Norð-
urlandameistarmót unglinga í Osló
helgina 6. - 7. des. Auk hennar fara
úr Reykjanesbæ þeir Birkir Már
Jónsson og Hilmar Pétur Sigurðs-
son.
Sundfólk úr Reykjanesbæ gerði
góða hluti á metamótinu en auk
mets Erlu setti karlasveit ÍRB met í
4 x 50m flugsundi. Sveitina
skipuðu: Jón Oddur Sigurðsson,
Birkir Már Jónsson, Þór Sveinsson
og Örn Arnarson.
Erla Dögg bætti Íslandsmet um 11 sekúndur
Hjörtur frá í fjórar vikur
Tómas Torfason hjá TÓ ehf, Rúnar V. Arnarson formaður
Knattspyrnudeildar Keflavíkur og Sigurður Björgvinsson eigandi
K-sports handsala samstarfið.
VF 48. tbl. 2003 hbb #2 26.11.2003 15:07 Page 24